|
Posted on 06.25.08 by steini @ 22:34
Pínu væmið, en fuckin geðveikt video. Þetta er Matt sem ferðast um heiminn og tekur upp þegar hann dansar hér og þar. Fær svo oft fólk með sér þannig að örugglega >1000 manns taka þátt í þessu hjá honum. Skemmtilegt að þarna bregður Íslandi einmitt fyrir Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Netið Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.28.08 by steini @ 21:54
ég missti af Bob Dylan um daginn þar sem ég var í útlöndum. Aftur á móti upplifði ég fínustu tónleika á leiðinni uppá Bifröst núna áðan þegar ég keyrði hingað. Skellti tónleikadisknum Familiar to Million með Oasis í græjurnar hækkaði vel og þvílík stemmning. Byrjar með látum á Fuckin’ in the Bushes og eftir það kemur hvert gæða lagið á fætur öðru. Diskurinn er tvöfalldur og um miðjan seinni disk taka þeir svo Hey Hey my my eftir Neil Young og er það eina lagið á disknum sem ég er ekki alveg sáttur með, en það er einungis vegna þess að upprunalega lagið er betra plús að ég á aðra útgáfu af laginu flutta af Oasis bræðrum sem er mun betra. Engu að síður okey lag. Champagne Supernova, Rock ‘n’ Roll Star koma svo áður en lokalagið Helter Skelter eftir Bítlana er tekið, en Bítlarnir eru víst meðal uppáhalds sveita og miklir áhrifavaldar á bræðurna. En þetta var allavega mjög öflugt og langt síðan ég hef verið í jafn miklum fíling í bílnum. Kæmi mér ekki á óvart að margir bílstjórar sem sáu mig hafi rekið upp stór augu ef þeir sáu mig þar sem ég var að missa mig í söngnum, svo ekki sé minnst á gangandi vegfarendur í Mosfellsbæ og Reykjavík sem gætu hafa séð mig á einhverjum ljósum Ferðasaga auk smá bjórrýni úr ferðinni kemur svo inn innan skamms. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Ferðalög og Tónlist Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 05.25.08 by steini @ 19:07
Thyskaland, Sviss, Lichtenstein, Austurriki, Tyskaland, Austurriki og nuna i Salzburg. Forum tadan a morgun og stefnan er aftur sett a Tyskaland og ad eyda einum degi tar adur en vid hoppum uppi flugvelina heim a leid fra Frankfurt. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.15.08 by steini @ 17:56
var að ganga frá því að panta flug til Friedrichshafen í S-Þýskalandi (20 mai) og svo heim frá Frankfurt (27 mai) rétt í þessu. Munum fara saman bræðurnir í þessa ferð. Hugmyndin er að taka bílaleigubíl á flugvellinum í Friedrichshafen og keyra svo um sviss, lichtenstein, austurríki og að endingu aðeins í Þýskalandi áður en brunað er um autobahn-in til Frankfurt. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 12.25.07 by steini @ 13:21
Jæja, jólin hafa verið fín hér í Thailandi, var reyndar frekar sólbrenndur í gærkvöldi vegna mikillar sólar fyrr um daginn þegar við skuppum í veiðiferð sem endaði með um 20-25 fiskum (túnfisk). Maturinn í gær var annars jólahlaðborð hjá hótelinu sem var nú ekki alveg jafn gott og heima, steikin reyndar bara frekar slöpp, en forréttirnir og eftirrétturinn voru góðir. Í dag var svo borðaður mjög traditional thai matur í hádeginu og það kæmi mér ekkert á óvart að við skellum okkur í svipaðan pakka núna á eftir (kvöldmat). Annars er hér lítil jóla og nýárskveðja frá Thailandi Byð að heilsa og sé svo bara alla einhvern tíman eftir að ég kem heim 2. jan. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 12.20.07 by steini @ 4:44
5 dagar og 3 dagsferdir bunar i Bangkok. 3x jakkafot og vesen med gistinguna a Phuket. Hiti og sviti, filareidtur, klappa tigrisdyrum og thai nudd. Phuket a eftir. Skráð sem: Ferðalög Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 12.14.07 by steini @ 21:38
Síðasta prófið búið, gekk bara helvíti vel, 20 min í að við yfirgefum íbúðina sem er búin að vera heimili okkar síðustu 3,5 mánuðina og stökkvum uppí flugvél til Thailands næstu 11 dagana eða svo. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34
Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi). — Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :)) En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um. — Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar. — Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll. — Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel — Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist Svör: It´s all happening! - (10) |
|
Posted on 11.08.07 by steini @ 10:30
Maður þarf víst að henda inn einni færslu svo mamma fari ekki að fá áfall og haldi að eitthvað hafi gerst fyrir mann hérna úti — Hvað er málið með þetta? Ætla kirkjusöfnuðir ekki að skilja að það er fáránlega mikil kristinfræðikennsla fyrir í skólum til móts við frekar litla almenna trúarbragðafræðslu. Það mætti svo miklu frekar nota tímann í að kenna krökkum meira í öðrum fögum sem hafa hugsanlega eitthvað raunverulegt gildi fyrir þau varðandi frekara nám eða vinnu. Og að efla kristið siðferði? Ef mig misminnir ekki stendur einnig í námskrá grunnskólanna að allt nám eigi að vera miðað að kristinni siðfræði. Það ætti miklu frekar að afnema eitthvað svona ákvæði og kenna krökkunum almennt siðferði sem er ekki bundið við gamla bók sem er full af andstæðum pólum, ofbeldi, hræðsluáróðri og hatri gagnvart vissum minnihlutum.
Það þarf reyndar að passa vel uppá það hvaða leið er notuð og hvort hún skili virkilega einhverjum árangri, en sé ekki bara sóun á peningum í fyrirfram töpuð verkefni. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Trúmál Svör: It´s all happening! - (3) |
