furðulegt val á mynd
Posted on 10.12.08 by steini @ 12:30

Við þessa frétt á mbl er mjög furðuleg mynd látin fylgja með. Tengingin er allavega frekar langsótt. Myndin er frá Stríðssafninu í Seoul og einhverjir krakkar eru þar að leika sér fyrir framan minnismerki af S-Kóreskum hermönnum (og reyndar óbreyttum borgurum líka) frá því í Kóreustríðinu. Hér er t.d. ein mynd sem ég tók þegar ég fór og skoðaði safnið. Hér er safnið á wiki og svo önnur mynd sem sýnir sama merki betur.

Þannig að tengingin við að N-Kórea sé nú talin hryðjuverkafrítt land virðist ekki vera mikil. Það væri þá hugsanlega í tengslum við hugmyndir um sameiningu ríkjanna (fyrir aftan þetta minnismerki er annað merki sem sýnir tvö brot sem tákna suður og norður Kóreu og vænta sameiningu ríkjanna) og að hryðjuverkatengsl n-Kóreu muni hverfa við þá sameinginu. Líklegast er þó að blaðamaðurinn hafi skrifað “war + korea” eða eitthvað álíka í fréttamyndagagnagrunn og fundið þessa mynd. Allavega er tenging hennar við fréttina lítil sem engin, í besta falli mjög langsótt.


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea
Svör: Ekkert ennþá

af moskum og hhs djammi
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03

Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar.
Annars má fólk trúa því sem það vill fyrir mér. Það eina sem ég set algjör mörk við er að ég er ekki hlynntur því að farið verið að gera sér dómstóla eða dómskerfi fyrir mismunandi trúar/lífsskoðunar hópa og ég vil að allir lúti almennum mannréttindum og fái ekki í krafi trúarsannfæringar að kúga aðra, hvernig sem sú kúgun á sér stað. Auk þess á að ríkja gagnkvæm virðing milli fólks með mismunandi skoðanir. Ég á ekki að öskra fyrir utan kirkjur eða moskur meðan bænarhald stendur og á móti kemur að ég tel að kirkjur og moskur eigi ekki að varpa hávaða sínum utandyra þannig að heyrist í hundruða metra fjarlægð.

HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt.

Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun.


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál
Svör: 1 svar komið

ræður alþingismanna og “fegranir” á orðalagi
Posted on 08.27.08 by steini @ 1:10

Í dag benti Matthías Ásgeirsson í Vantrú á að ræða Guðna Ágústssonar á vef Alþingisvefsins, eins og hún kemur fyrir í textaformi, sé aðeins öðruvísi en sú sem hann hélt í ræðustól. Fyrst bjuggust menn við að þetta væri einhver yfirsjón hjá þeim sem slá inn ræðurnar, en Vísir hafði samband við Guðna og þar viðurkenndi hann að hann hafi breytt ræðunni eftir á þar sem hann taldi sig hafa gengið of langt.
Nú get ég auðvitað röflað endalaust um það hvað ég er ósammála Guðna í þessu máli, hvort sem er í ritaða textanum eða því sem hann sagði blaðlaust - finnst það bæði vera niðrandi sagt af honum, en eitt er víst að héðan í frá mun maður horfa öðrum augum á áræðanleika þess sem skrifað er á alþingisvefinn. Ef alþingismenn eða aðrir hafa ráðrúm til að breyta og hreinlega falsa heimildir um það sem þeir hafa sagt eða gert áður, þá finnst mér ansi lítið til hins háa Alþingis koma. Hvað þá að þetta gæti stangast á við hugmyndina um opna og gegnsægja stjórnsýslu.
Það er spurning hvort blaðamenn og fólk sem er að berjast fyrir ákveðnum málefnum (og fólk í heimildaleit á alþingisvefnum) þurfi núna að fara að yfirfara allar ræður sem þar eru fluttar til að vera öruggt um að það sem skrifað sé þar hafi verið sagt í raunveruleikanum, en ekki fegrað og breytt af þingmönnum seinna meir, þegar þeir telja að ummælin hafi kanski verið of hörð eða ekki við hæfi. Þessi málsgrein segir ef til vill allt sem segja þarf um starfshætti sem virðast líðast á Alþingi:

Breytingar á ræðum þingmanna, frá því að þær falla í ræðustólnum og þangað til þær enda á vefnum, eru víst algengar að sögn Guðna, enda er það réttur allra þingmanna að mega yfirfara sínar ræður. „Yfirleitt breyta menn ekki merkingunni mikið en þetta var heldur lengra en ég vildi og ég játa það.”

Fyrir utan hve rangt mér finnst það að vera að breyta ræðunum eftir á, þá fer Guðni hér vel yfir strikið og breytir hreinlega merkingu orða sinna. Ég tel annars að einhver fjölmiðillinn ætti að senda spurningalista á þingmenn og spurjast fyrir hvort þeir hafi breytt ræðum sínum og ef svo er hvort þeir geri það oft. Ég vil vita hvort þingmenn landsins komi hreint fram eður ei. Þetta hefur reyndar kanski aðeins minna vægi en mörg lygin sem sögð er, en óheiðarleiki er þetta samt og ég tel að ráðamenn þjóðarinnar eigi ekki að standa í þannig leik.

Í versta falli ætti (annars góður) alþingisvefurinn að taka það til skoðunar að hafa möguleika á að ræður þingamanna birtist óbreyttar, en þingmenn geti svo gert athugasemdir (eins og comments í word eða alíka) við punkta sem þeir telja sig hafa farið offari í eins og þessu máli

Kaldhæðni dagsins frá Denver


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

Háskóli Íslands og markmiðin
Posted on 06.21.08 by steini @ 16:30

Málefni HÍ rata oft í fjölmiðla, enda um stóra stofnun að ræða með marga starfsmenn og nemendur. Nú síðast vegna skrifa Svans Kristjánssonar um skólann og mál Hannesar H. Gissurarsonar. Hvernig sem menn horfa á það málefni (kæruna gegn HHG), má ljóst þykja að orðstýr skólans beið skaða af og áhyggjur og skoðanir Svans því að einhverju leiti réttmætar. Það má svo aftur á móti spyrja sig hvort maður fái rétta mynd af stöðu mála þegar 2 menn sem hafa eldað grátt silfur saman svo lengi eigast við.

En HÍ og HHG var ekki það sem ég ætlaði að pæla í hér. Í sambandi við umfjöllun um HÍ síðustu árin hefur mikið verið talað um þennan top 500 lista og að HÍ þurfi að komast á top 100 innan einhverra X ára. Í þeirri umræðu fannst mér aldrei nægjanlega vel tekið fram að Háskólinn væri ekki einu sinni á top 500 listanum. Þessi grein hans Pawel Bartoszek á deiglunni sýnir svo að þetta markmið er frekar langt utan við þann raunveruleika sem við búum við. Hann skrifaði þessa grein fyrir 2 árum, en samkvæmt skýrslunni frá því í fyrra, er HÍ ekki enn kominn á þennan top 500 lista. Spurning hvenær HÍ fer að setja sér raunhæf markmið, en gefur ekki bara frá sér fögur fyrirheit um eitthvað sem verður seint eða aldrei.

Nýjustu markmiðin um að vera á top 10 á einhverjum fjórum sviðum gæti alveg breytt þessu eitthvað smá, en er þá ekki allavega krafa um að upplýsa hver þessi fjögur svið eiga að vera og í hvaða verkefni eigi að leggja mikinn kraft og dugnað í? Lítur dálítið út fyrir að hafa verið enn ein upphrópunin um fögur fyrirheit sem ekkert er á bakvið, enda yrðu örugglega þær deildir sem ekki myndu vera hluti af þessu verkefni frekar sárar og þá kæmi örugglega að þeirri fyrirstöðu að skólinn er ríkisrekinn og að ekki mætti upphefja deilir umfram aðrar meira en nú er.
Annars veit maður ekki. Kanski tekst þeim hið ótrúlega.


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir
Svör: Ekkert ennþá

staðsetningin
Posted on 06.16.08 by steini @ 17:48

Svona til að setja þessa veiðiferð okkar aðeins í samhengi við fréttir dagsins, þá er hérna mynd úr google earth og smá viðmið. Mælirinn segir 1.76 km, en ég hef sirkað Hraun aðeins ranglega út á kortinu og það er aðeins lengra í burtu í raun (sjá seinni mynd). Þetta eru því örugglega um 2 km samtals.
Ath að Hraun sem er þarna í miðjunni er sett inn af google earth og er á kolvitlausum stað.

hraun-isbjorn

hraun-isbjorn


Skráð sem: Fréttir
Svör: Ekkert ennþá

áhættusöm veiði?
Posted on 06.16.08 by steini @ 14:54

Skemmtilegar fréttir frá Hrauni á Skaga. Spurning hvort maður taki ekki eins og einn riffil með þegar maður fer að veiða eftir 2 vikur, en eins og kanski einhverjir vita er vatnið sem við veiðum í á landi Hrauns og aðeins um 3-4 km frá staðsetningu þessa björns.

Viðbót: Stundum efast ég virkilega um að heilastarfsemi sumra moggabloggara sé einhver. Eftir að þetta seinna ísbjarnarmál kom upp er fólk að keppast við að tala um að ekki megi skjóta bjössa og að það þurfi að svæfa hann og fanga og flytja til Grænlands, já eða þá ennþá betra, leyfa honum bara að chilla þarna út í fjöru svo við getum grætt á ferðamönnum sem koma að skoða hann.
Er ekki í lagi? Það er ísbjörn í bakgarðinum hjá þremur bæjum (Hraun, Hraun II og Hraun III) og ég get ekki ímyndað mér að Gilla, Rögnvaldur, Steini og þau hin sem búa þarna vilji að ísbjörn leiki lausu hala þarna og haldi þeim í ótta. Einnig hefur bjössinn látið vel að æðarvarpinu og valdið þar töluverðum ursla, sem verður víst ekki metinn til fjár nema eftir 1-2 ár þegar það kemur í ljós hvort fuglarnir komi aftur eftir svona upplifun. Fólkið á Hrauni hefur ekkert um endalausa atvinnumöguleika þarna úti á Skaga að velja. Það hefur takmarkað land til að rækta, fjöldi rekaviðs minnkar alltaf ár frá ári, en þess fyrir utan er það æðardúnninn, sala veiðileyfa og veðurathugun sem getur skapað fólkinu atvinnu á þessu svæði. Ef stórum hluta þessara tekna er kippt undan fólkinu vegna þess að eitthvað rómantískt hugsandi pakk sem þekkir ísbirni bara úr teiknimyndum eða álíka vill að birninum verði þyrmt og að hann fái að ganga laus um æðarvarpið, þá er illa komið fyrir fólki. Ætlar þetta sama fólk að reiða fram nokkra þúsundkalla og gera sjóð til styrktar fólkinu á Hrauni til að koma til móts við tap þeirra? Ég geri ekki ráð fyrir því. Hræsni.

Maður hefur verið að sjá hálfvitaleg komment hjá þessum fyrrgreindu moggabloggurum eins og t.d. að Björninn sé meinlaus, hafi ekki gert neinum neitt og sé ekki neinum til ama. Já eða að það megi ekki skjóta hann því það stefni ímynd Íslands á alþjóðavettvangi í hættu, auk þess sem fólki virðist allt í einu vera orðið skítsama um líf annara dýra eins og fugla, bara af því að ísbirnir eru sjaldgæfir hér á landi auk þess sem dýrið er svo tignarlegt. Einn bloggarinn talar svo um að hún muni tryllast verði bjössi drepinn og biður lögregluna um að nota þessa litlu baun sem þeir hafi.
Ég veit bara ekki hvar ég á að byrja þegar ég les svona heimskuleg komment. Maður ætti kanski að hleypa þessari litlu sál út fyrir borgarmörkin og leiða hana að bjössa og sína henni að þetta er ekki bara eitthvað sætt dýr sem er tekið úr einhverjum disney þáttum eða Golden compass eða álíka ævintýramyndum. Þetta er bara grimm náttúran eins og hún er í raunveruleikanum, ekkert rómantískt við það (nema rómantíkin liggi í grimmdinni og kvötinni að lifa af). Og ummælin um gáfur lögreglunnar koma greinilega úr hörðustu átt.

Júlíus og Ebbi eru aftur á móti ekki skemmtilegir. Ísbjörn mætti éta þá.


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir
Svör: 1 svar komið

ísbirnir og mogginn
Posted on 06.03.08 by steini @ 18:26

Rosalega er fólk að missa sig yfir þessum ísbjarnafréttum. Skoðum þetta mál aðeins á raunsægju nótunum. Í fyrsta lagi geta ísbirnir orðið hættulegir. Þessi ísbjörn hefur væntanlega verið í góðan tíma á ferðalaginu sínu og jafnvel í einhvern tíma á Íslandi. Á þeim tíma hefur hann örugglega ekki borðað neitt rosalega mikið og því orðinn svangur eða stutt í að hann verði svangur. Það þýðir að ekki myndi líða á löngu þangað til hann færi að skoða hvað hægt væri að borða á nærstöddum bæjum eða jafnvel inná Sauðárkróki.
Fólk hefur aftur á móti verið með hugmyndir um að það hefði átt að svæfa hann, en ekki drepa hann svona grimmilega. Okey, en hvað svo? Húsdýragarðinn? Nei dýraverndunarsinnar eru einnig á móti því + að það sýndi sig með Knút í Berlín að það getur komið upp óeðlileg hegðun í dýrunum við þess konar aðstæður, svona fyrir utan að Húsdýragarðurinn hefur engan veginn fjármagn eða aðstöðu fyrir svona dýr. Hvað er þá í stöðunni? Svæfa dýrið og flytja í upprunaleg heimkynni? Já, nei, ég hreinlega veit það ekki. Að fara út í einhverjar björgunaraðgerðir af þessu tagi minnir mig bara á Keikó ævintýrið og persónulega fannst mér það langt frá því að vera sniðugt, plús að allt svona kostar slatta af peningum.
Þó það hafi því vissulega verið leiðinlegt að drepa dýrið var það það eina rétta frá mínum bæjardyrum séð.

Styrmir kveður með hvelli í gær þegar hann átti frekar spes leiðara. Ólafur átti svo í dagmisheppnaða fyrstu forsíðu :) Gaman að þessu


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir
Svör: It´s all happening! - (6)

detox
Posted on 04.29.08 by steini @ 11:03

Kannski er ég bara svona narrow minded á allt sem tengist nýöld og allskonar kukl fræðum, en mér finnst það mjög kaldhæðnislegt þegar “detox drottningar” (sjá fréttablaðið í dag bls 22) tala um að kasta steinum úr glerhúsi. Að vera að halda einhverju fram sem hefur ekkert staðfast á bakvið sig og vilja svo meina að aðrir sem geri það sama séu að kasta steinum úr glerhús… Fyrir mér er þetta svipað og þegar trúaðir einstaklingar upphefja sinn guð, en á sama tímapunkti útiloka þeir að aðrir gætu verið til.

Var með smá hitting fyrir garðabæjar og verslóliðið á föstudaginn. Held að það hafi bara heppnast ágætlega. Allavega var fólk fram eftir nóttu og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Langt síðan maður hefur hitt flest af þessu fólki. Þakka allavega gestunum fyrir komuna.

Kúrsinn Trúarbrögð og stjórnmál er byrjaður. Þetta er 3 vikna kúrs með lokaritgerð uppá 15 bls. Áhugavert efni, en ég get ekki sagt að ég sé orðinn ready til að pæla í ritgerðinni enn, eða að maður sé mjög áhugasamur að fara að lesa á fullu. Það hlýtur samt að koma.

Það byrjaði svo að snjóa smá í dag hér uppfrá. Þ.e. það komu nokkur snjókorn, þó ekkert þeirra hafi enn náð að festa sig á jörðina. Vonum að það gerist ekki.



Nýja Baggalúts lagið
er klárlega lagið þessa dagana. Gleymið þessu Bahamas lagi hans Ingó sem er hreint út sagt hræðilegt og stillið ykkur inná Baggalút :)

Finnst dálítið fyndið að heyra og lesa um alla vera að tala um hvað hitt og þetta geti verið ógn við stöðugleikann (í efnahagsmálum). Hvernig væri nú að fólk færi að tala um þetta á réttan hátt. Það er ekkert stöðugleiki og allar breytur sem einhverju skipta í því samhengi hafa áhrif á óstöðugleikann, en ekki stöðugleikann.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Tónlist
Svör: Ekkert ennþá

trú á mbl
Posted on 03.30.08 by steini @ 3:05

Afhverju setur fréttamaður á mbl.is gæsalappir utan um orðið trú í fréttinni sem ber yfirskriftina Doherty tekur “trú”?
Ef þetta er meining um að vísindakirkjan sé eitthvað minni trú en t.d. kirkjan, þ.e. að það sé trúað á einhver hindurvitni og hugmyndir sem ekki er hægt að sanna, þá er það rugl. Báðir þessir söfnuðir ala á því sama, þótt maður geti vel tekið undir það að vísindakirkjan sé nú eiginlega aðeins ruglaðri. Finnst samt kaldhæðni í því þegar það er verið að gera grín að því að vísindakirkja sé algjört djók, meðan kirkjan fær litla sem enga gagnrýni fyrir það sama.
ja hérna hér!


Skráð sem: Fréttir og Trúmál
Svör: Ekkert ennþá

rokkað hringinn og vogue
Posted on 03.28.08 by steini @ 15:38

Þegar ég sá þessa frétt á mbl hugsaði ég bara um það hvað hægt væri að sjá staðlímynir út úr öllu og þetta væri bara plebbaskapur í sjálfskipuðum siðapostulum (þetta er btw algjör tísku orðatvenna). Svo fletti ég upp forsíðunni og bara baby jesus! Er hægt að gera hallærislegri mynd og að reyna að láta manneskju líkjast king kong meira? Það má svo deila um það hvort hægt sé að sjá ákveðnar staðalímyndir úr myndinni, en það er greinilegt að blaðið hefur viljað stuða fólk og vekja upp umfjöllun um forsíðuna. Þetta er allavega í besta falli ótrúlega hallærisleg mynd.

Sérstakt með þessa Rás2 tónleika sem kallast Rokka hringinn. Þarna er verið að tala um að nú þurfi sko að vera með tónleika fyrir landsbyggðina og hvað er gert? Jú, það verða tónleikar á Selfossi, Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri, Höfn, Vestmannaeyjum og Eskifirði. Okey, það verða sem sagt tæplega helmingur tónleikanna í kringum Reykjavík (reykjavík, reykjanesbær og selfoss) meðan annar helmingur verður á landsbyggðinni. Einnig er athugavert að engir tónleikar verða frá Akureyri til Reykjavíkur. Ekkert í Skagafirði, Húnavatnssýslu, Vestfjörðum, Snæfellsnesi eða Borgarbyggð.
Fínt framtak hjá Rás2 og allt það, en kallið þetta réttum nöfnum. Þegar það á að fara hringferð um landið og halda tónleika finnst mér frekar lítilfjörlegt að vera með tónleikana bara á Akureyri, Vestmannaeyjum, Höfn og Eskifirði. Bylgjulestin fór á sínum tíma á mun fleiri staði.

Að lokum langar mig bara að segja eitt. Hálfvitar!


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir
Svör: 1 svar komið

« newer posts previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
kvikmyndir
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
allt í volli
fullir ökumenn
árið 2008 í stuttu máli
jólagjöf
áhugavert myndasafn og tónleikar.
staður, stund og ímynd
skókast
full-control zone í N-Kóreu
steve jobs í kringlunni áðan
Fínt föstudagskvöld og hörmuleg W
blússandi góðæri í skeifunni
það vilja allir kosningar strax, vilji þjóðarinnar !!!
merkilegur prestur
kaupþing að gera það gott í Sviss, setja met og svona
takmarkið

Eldra efni
January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér