|
Posted on 12.16.08 by steini @ 20:40
Merkilegt hvað staður og stund geta breytt miklu um það hvernig fólk almennt horfir á hegðun fólks. T.d. flokkast sú hegðun að fara út að skemmta sér um leið og fengið er sér neðan í því eðlileg. Aftur á móti þykir það venjulega frekar lonely að vera einn heima hjá sér að drekka. Þetta hefur þó þá undantekningu að ef viðkomandi er í baði að drekka, þá finnst mörgum það bara vera dæmi um kósýheit. Sé þessi sami einstaklingur aftur á móti að drekka sterkt vín eða staupa sig í baði, þá er það aftur orðið óeðlilegt. Einnig þykir drykkja í sturtu mjög óeðlileg. Hér er ágætur listi yfir þetta: ath. fyrir fólk sem hengir sig í smáatriðum þá er þessi grein full af staðhæfingum um hvað sé rétt og rangt eða í lagi og ekki í lagi. Það er sett þannig fram til að hafa þetta áhrifaríkara og um leið skemmtilegra og afþví að ég nenni ekki að pæla í of nákvæmri rétthugsun Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 10.11.08 by steini @ 15:36
ekkert alveg eins, en minna pínu á hvort annað: Valhöll: IMF HQ: — Og svona vegna þess umróts sem er í gangi þessa dagana. Gulli og perlum að safna sér, Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.11.08 by steini @ 0:41
Sá sem uppgötvaði manna fyrstur að matarolía væri tilvalin í að þrífa harpix af höndum er/var snillingur, en umfram allt held ég að hann hafi verið mjög pervertískur einstaklingur sem uppgötvaði áhrif töframeðalsins fyrir slysni. Ekki ólíkt því þegar Alexander Flemming uppgötvaði (enduruppgötvaði?) áhrif pensilíns. Það fer þó engum sögum hér hvort Flemming þessi hafi verið pervertískur eður ei. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.18.08 by steini @ 3:10
Ég er ennþá að undra mig á því afhverju maður gúdderar að kaupa mygluost fyrir morðfé og telur sig vera að kaupa munaðarvöru, en á meðan hendir maður brauði og öðrum matvælum þar sem minnsta arða af myglu gerir vart um sig. — Skítaleikur áðan, strákarnir þurfa að hysja upp um sig buxurnar, standa vörnina og hitta almennilega á markið ef þeir ætla sér einhverja hluti í næstu umferð. — Ágætis hönnunar blog síða vitnar hér í íslenska hönnuðinn Bobby Breiðholt. Skemmtilegar myndir og sérstaklega finnst mér hverfa merking fyrir rvk vera töff. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.10.08 by steini @ 18:04
Það vakti nokkra athygli á þessum ólympíuleikum að þátttakendur frá Suður og Norður Kóreu hafi ekki gengið inn á opnunarhátíðina og keppt undir merkjum sameinaðrar Kóreu eins og hefur verið hefðin á Ólympíuleikum frá árinu 2000. Þess í stað keppa þessir þátttakendur núna undir merkjum hvors ríkisins fyrir sig. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 07.17.08 by steini @ 14:12
Gaman að sjá hvernig einstaklingur, sem telur sig jafnréttishugsandi, bindur eina starfsstétt við ákveðið kyn og gerir ráð fyrir að karlar séu ekki hjúkrunarfræðingar (hjúkkur). — Olivia Judson, pistlahöfundur hjá NY Times er með skemmtilegar hugmyndir síðasta þriðjudag. Þar talar hún um afhverju það ætti ekki að kalla einstaklinga sem hneigjast að þróunarkenningunni Darwinista eða fræðin sjálf Darwinisma. Er ekki frá því að maður muni hafa þetta næst í huga þegar maður tjáir sig um þessi málefni.
— Bensínverð á alþjóðamarkaði hækkaði fyrir nokkrum dögum. Olíufélögin brugðu þá á það ráð að hækka verðið hjá sér og sögðu að það væri þörf á hækkunum strax þar sem almenningur væri alltaf að krefjast þess að verðbreytingar gerðust strax. Eitt félag hækkaði strax um töluverða upphæð, en dró svo hækkunina til baka eftir óheppileg ummæli vörustjóra Olís og gagnrýni almennings. Hækkunin stóð engu að síður, þótt hún hefði verið aðeins minni. Næsta dag lækkar svo heimsmarkaðsverð all svaðalega og olíufélögin lækka verið lítillega og segja t.d. að miklar lækkanir gagni oft til baka fljótlega. Heimsmarkaðsverðið lækkar svo annan daginn í röð og N1 veitir 2 daga 5kr afslátt af sínu verði. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 07.13.08 by steini @ 17:01
Ég skil ekki eitt varðandi íslenska pólitík. Nú er framsókn búin að vera í stjórnarandstöðu í smá tíma og miðað við allt sem hægt er að gagnrýna við núverandi ríkisstjórn og framvindu mála í þjóðfélaginu ætti nú ekki að vera erfitt að koma með sterka gagnrýni og vinna sér inn fylgi þeirra sem eru ósáttir. Þetta eiga VG og frjálslyndir auðvitað líka að vera að vinna í, en þeir flokkar hafa kanski aðeins þéttari og ákveðnari hóp á bak við sig og ná kanski ekki að höfða til svo margra utan þess hóps. En allavega, það er fullt sem hefur gerst sem stjórnarandstæðan gæti gagnrýnt dag og nótt, en það eina sem maður heyrir í þeim er eitthvað tíst sem týnist samdægurs og það kemur í umræðuna, fyrir utan að sjaldnast tekur maður eitthvað mark á framamönnum þessara flokka, það er eins og það vanti alltaf eitthvað smá edge í þá. Afhverju hafa stjórnarandstöðuflokkarnir t.d. ekki tekið eftirfarandi málefni uppá sína arma að mikilli festu og sýnt á heildstæðan hátt hvað sé ekki í lagi og hvernig eigi að bregðast við eða laga þau (þetta er nefnilega það sem er auðveldast fyrir stjórnarandstöður, þær þurfa ekki að sýna fram á afköst í alvörunni, bara með kenningum); Ég er reyndar ekkert ósáttur með hvernig öll þessi mál hafa þróast eða hvernig þau voru höndluð af yfirvöldum, plús að stundum er ósanngjarnt að segja að þau séu stjórninni að kenna. Þetta hafa þó allt verið umtöluð málefni þar sem fólk hefur mismunandi skoðanir og ætti að vera hægt að nýta sér til að vinna inn fylgi. Þetta væri örugglega ekkert svo vitlaus tími til að koma og minna all svaðalega á sig og sinn flokk, koma með alsherjar gagnrýni á núverandi ástand og fá fólk í lið með sér, en nei, íslensk pólitík virkar ekki þannig, það gerist bara fyrir kosningar þegar allir lofa öllu. Með þessu er ég þó ekki að segja að ég vilji sjá framsókn eða VG sem stóra flokka, það er bara svo rangt takíklega séð að vera ekkert að gera almennilegt á þessum tíma. Örugglega ekkert of erfitt að komast að í fréttum og ef þetta væri eitthvað alvöru, þá héldist þetta örugglega í töluverðan tíma í umræðunni. Auk þess er það jú verk stjórnarandstöðunnar að halda stjórninni við efnið með því að sækja að henni og knýja þar með stjórnina til að standa sig svo þau missi ekki stólana í næstu kosningum. Það verður nefnilega ekkert tekið af ríkisstjórninni að hún er töluvert búin að vera að skíta uppá bak og svo virðast átök innan ríkisstjórnarinnar vera nokkur þannig að hún ætti að vera veik fyrir góðu áhlaupi sem vönduð og heilsteypt gagnrýni myndi valda. Til að eitthvað þessu líkt gengi upp þyrftu þó framsóknarmenn að verða aðeins samheldnari og skipta um formann og koma með einhvern sem stór hluti þjóðarinnar gæti hugsað sér að gúddera. Það er ekki að gerast með honum Guðna. Ég gæti t.d. alveg séð þetta fyrir mér sem heilsteypta áætlun sem væri svo skipt niður eftir ráðuneytum og flokkurinn myndi taka eina viku í að kynna og koma á framfæri hverjum málaflokk fyrir sig. Þá gætu þeir örugglega hámarkað áhuga fréttamanna, alltaf komið með eitthvað nýtt og haldið sér í umræðunni í góðan tíma. Þetta verður samt örugglega eitthvað sem við munum seint sjá í íslenskri pólitík. — Neytendahetja dagsins. Djöfull hefur mig lengi langað til að gera þetta. Var alltaf alveg nóg af útrunnum vörum í Hagkaup, þó það væri alltaf verið að fara í gegnum hillur og standa, það fer alltaf slatti framhjá manni. Væri gaman að sjá hvernig þetta er í búðum sem pæla lítið eða ekkert í því að taka úr hillunum útrunnið dót. Ekki frá því að maður plebbist einhverntíman til að gera eitthvað líkt þessu Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Pólitík Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.27.08 by steini @ 1:49
Eftir 7 klst byrjar síðasta prófið mitt á Bifröst. Síðasti tíminn var á þriðjudaginn, en þá var líka síðasta verkefnaskilið. Svo er auðvitað BA ritgerðin eftir, en annars er allt að klárast. Flestir flytja af svæðinu eftir lokaprófin á morgun og þá verðum við örugglega frekar fá eftir hér sem verðum í því að skrifa. Maður eiginlega fattar ekki hvað þessi 2 ár hafa verið fljót að líða. Þegar maður sagði bless við fullt af fólki í dag var það eitthvað svo óraunverulegt, því það er eitthvað svo skrítið að vera ekki að fara að hitta alla hér aftur núna næsta haust. Og þá kemur auðvitað enn áhugaverðari spurning. Hvað er ég að fara að gera næsta haust? Hingað til hefur allt einhvernvegin bara reddast hjá mér. Lífið hefur leitt mig áfram á einhvern undraverðan hátt, en núna er ég í einhverri óvissu hvað muni gerast næst og treysti ekki alveg jafn mikið á þessa slembilukku mína um að allt reddist bara. Ég hreinlega er pínu mát, ætlaði að sækja um kúrsa í HÍ, en ruglaðist á lokadagsetningum og endaði uppi með að hafa ekki sótt um neitt. Þannig að hvað á maður að gera? Bara vona hið besta og fara aftur í bæinn og flytja inn til mömmu og pabba í einhvern tíma? Nú hefur maður verið í burtu í næstum 2 ár og það er frekar skrítin tilfinning að fara aftur. Þessi tími hefur nefnilega verið yndislegur og Bifröst hefur verið frábær staður fyrir mig. Ég hef kynnst fullt af góðu og skemmtilegu fólki sem maður vildi helst hafa áfram í svona nálægð við sig, en ekki að þetta verði að fólki sem maður hittir nokkrum sinnum á ári og spjalli við á msn þess á milli. Spilakvöldin í Bollakotunum, kubbur á kvöldin, borðtennis, labb á Grábrók, fimmtudagspartý, hrekkir við aðra íbúa svæðisins, póstar frá Öldu, potturinn og allt annað sem gerir Bifröst að þessum stað sem ég elska. Þetta er örugglega allt á leiðinni að hverfa og svo mun eitthvað nýtt taka við. Ég hef hingað til ekki verið smeykur við breytingar og venjulega verið bara nokkuð sáttur með að skipta um stað í lífinu og prufa eitthvað nýtt. En í þetta skiptið held ég að ég sé ekki alveg tilbúinn í það. Þessi tvö ár voru svo stuttur tími að ég hefði alveg viljað vera hér eitt ár í viðbót. Ég er nefnilega ekki nógu viss um að það nýja sem muni koma geti komið í staðin fyrir það sem hverfur þegar maður fer héðan. Ég hef meira að segja verið duglegur að slaka á hérna uppá Bifröst um helgar og vona í leiðinni að ég nái að eyða nægjanlega miklum tíma hér til að “fá nóg” eða allavega vera tilbúinn að sættast við að hafa eytt nægjum tíma hér og haldið áfram. En sú stund hefur ekki enn komið. Ég hef alltaf bara orðið hrifnari og hrifnari af staðnum. Það eru t.d. nokkrar svipmyndir sem ég held að maður eigi eftir að sakna rosalega héðan. Að horfa frá endanum af Hamragörðum upp meðfram pottunum og á Grábrók, sjá yfir leiksvæðið og Aðalból þegar það er vetur og allt frosið og í snjó, svæðið milli Kotanna og Garðanna- hvort sem það er sumar eða vetur. Eins rosalegt og þetta svæði verður á fimmtudögum kemur alltaf rosaleg ró yfir það flest önnur kvöld þegar kemur yfir miðnætti. Paradís og Hreðavatn eru auðvitað alltaf fallegir staðir líka, en það er eitthvað við ásýndina við þessa fyrrnefndu svæði sem gerir mig pínu dreyminn. Það er eitthvað við Bifröst sem hefur náð til mín. Miklu meira en bara námið, fólkið og djammið. Þetta er eiginlega í fyrsta skiptið sem ég hef virkilega fengið þá löngun að vilja eyða miklum tíma á ákveðnum stað, að ég eigi virkilega heima einhverstaðar (fyrir utan að eiga heima hjá m&p). Bifröst hefur allavega gefið mér svo miklu meira en mig hefði getað grunað nokkurntíman. Hvort sem manni líkar það betur eða verr, þá held ég að hægt sé að segja að ég hafi þroskast töluvert. En já, hvað á maður að gera eftir þetta nám? Jú ég stefni á master, annaðhvort í alþjóðastjórnmálum eða einhverskonar hagfræði, en það má bíða í eitt ár. Í millitíðinni hlýtur eitthvað skemmtilegt að koma upp í hugann. Enskukennsla í Japan? Internship einhverstaðar, vinna í bænum, auka skólanám eða bara eitthvað annað sem vekur áhuga og löngun. Held það verði bara að koma í ljós. Núna er það bara helgin sem skiptir máli. Veiðiferð með strákunum og pabba í Kolluvatn. Allt annað verður að ráðast eftir það. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 03.25.08 by steini @ 20:06
Ég vil færa íslensk orðatiltæki nær samtímanum og láta þau fljóta með klámvæðingunni sem hefur víst nú þegar tröllriðið íslensku samfélagi. Legg hér með til að “hefndin er sæt” verði “hefndin er sexy”. Bið aðra um að koma með fleiri uppástundur. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 03.24.08 by steini @ 1:29
Þetta orð finnst mér yndislegt. Hreint og beint yndislegt og þegar ég sá þetta fyrst hló ég upphátt. Prufið bara að segja þetta upphátt. Tjáningarklám! Prufið svo að segja þetta á aðeins lágstemmdari og pervertískari hátt. Þá verður þetta hálf listrænt “tjáningarklám…”. Ég sé fyrir mér fullkominn stað fyrir notkun á þessu orði. Bóhem ljóðastaður í film noir stíl (ekki ólíkt staðnum Blue Casket í tölvuleiknum Grim Fandango) þar sem listamenn með mikla og ríka réttlætiskennd* stíga á stokk og segja fá, en um leið djúp og merkingarþrungin orð sem fólkið í salnum reynir svo að melta og koma fyrir í nýjustu samfélagskenningum sínum. Á milli atriða pískrar fólkið svo saman og laumar miðum sín á milli með áróðri eða hugmyndum um skipulag fyrir næstu uppreisn. Mikilmetnasti einstaklingurinn í þessum hópi stendur svo upp undir lok kvöldsins, íbygginn á svip, labbar að micnum og segir “tjáningaklám” á hugsandi en um leið dimman og dularfullan hátt. Endurtekur þetta svo aftur lágt og lætur orðið fade-a hægt út “tjáningaklám”. Þetta er skrifað undir miklum nostalgíuáhrifum frá þeim dögum sem maður spilaði Grim Fandango og inní það fléttast brenglað hugmyndaflug vegna mikils lesturs á réttlætissiðfræði núna í upplestrfríinu. Annars er þetta orð tekið úr stórskemmtilegri grein eftir konu sem kallar sig Habba Kriss og ég verð eiginlega að vera sammála í þessu sambandi. *hér skal tekið fram að réttlætiskennd getur auðvitað verið af mismuandi toga og þetta á auðvitað við um hugmyndir þessara einstaklinga um réttlæti — Þessi Tómas er svo auðvitað frábær. Ein af þeim fréttum þar sem fleiri spurningar vakna en er svarað. Skráð sem: Hugleyðingar og Sniðugt stöff Svör: It´s all happening! - (2) |
| previous posts » |


