|
Posted on 12.02.08 by steini @ 0:41
W er hræðileg kvikmynd. Ekki eyða tíma eða peningum í hana. Ekki hlusta á gagnrýnendur sem hafa hrósað henni, þetta er hreinlega pínleg og kjánleg og léleg mynd. Nei, ekki léleg, heldur horbjóður. Að einhverjum hafi dottið í hug að gefa henni 4 stjörnur?? Hvað er eiginlega í gangi. — Síðasta föstudag kíkti ég í jólahlaðborð vinnunar sem var haldið heima hjá einni sem vinnur uppí banka. Fínasta kvöld, góður matur og mikil gleði. Eyfi kom svo og spilaði fyrir mannskapinn og tók nokkra vel valda slagara. Eftir miðnætti var svo haldið niður í bæ á útgáfutónleika Jeff Who á Nasa sem voru alveg afbragð (sá reyndar bara seinni hlutann). Hljómsveitin var þétt, en það hefði reyndar mátt vera meiri stemmari í áheyrendum. — Æjæjæj, er snyrtivörubransinn aftur búinn að vera að búa til eitthvað sem virkar svo ekki, surprise surprise! — Utandeildin er komin í hlé fyrir áramót og er heimsliðið sem stendur í 3-5 sæti, sem er nokkuð ásættanlegt. Stefnan er þó sett á að bæta þann árangur eftir áramót og príla upp nokkur sæti. — Í dag fékk ég svar við 2 ára gamalli gátu og í leiðinni tók gamalt samviskubit sig upp. Veit reyndar ekki hver þessi Ragga er, en eigum við ekki bara að taka orð hennar trúlega og búast við að ég hafi verið leiðinlegur við saklaust símasölubarn. Ef einstaklingurinn var aftur á móti yfir 18 ára, þá held ég að ég felli niður samviskubitið, fólk sem á að hafa vit fyrir sér, en er samt í símasölu hefur ekki vorkunn mína. Hugsanlega að fólk sem seldi tryggingar og bankamál á göngum smáralindar og kringlunnar sé samt lægra í pýramíðanum. — Nokkrir skemmtilegir linkar hér að lokum: Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Kúltúra og Netið og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 11.22.08 by steini @ 11:53
Ég uppgötvaði hvað ég er skrítinn eftir að ég bað leigubílsstjórann að hækka í útvarpinu því veðurfréttir á rás 2 voru að byrja kl 4 eða 5 þegar ég var á leiðinni heim. — Kanski gaman að bæta því við að utandeildarleikurinn í gær endaði með stórsigri heimsliðsins á leiftra, heil 16 kvikindi, 39-23 sem er einmitt stærsti sigurinn í utandeildinni þetta tímabil
Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.13.08 by steini @ 1:48
Merkilegt hvernig sumir fréttamenn/dálkahöfundar eigna sér efni sem aðrir hafa nýverið skrifað um. Á bls 18 í fréttablaðinu á þriðjudaginn (pdf - html)er t.d. Freyr Gígja Gunnarsson með stuttan pistil um Tékkóslóvakíu 1989 og flauelsbyltinguna og fann út úr því nýtt orð sem passar við íslenskar aðstæður “Flísbylting”. Eða var þetta kanski eitthvað sem hann tók upp hér. Fólk á endilega að skiptast á skoðunum, dreifa skoðunum og hugmyndum sem það telur vera góða eða áhugaverða, en það ætti að vera almenn vinnuregla að geta heimilda. Þetta mætu margir fréttamett taka til sín — Á sunnudaginn hélt Heimsliðið í víking til Selfoss til að etja kappi við Selfyssinga í handknattleik. Eftir mikla baráttu og framúrskarandi karakter stóðu heimsliðsmenn uppi sem sigurvegarar og lönduðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu (eftir töp gegn Víking og Júmboys). Lokatölur voru 27-28 og hálfleikstölur 17-13 (fyrir Selfoss). Þeir austanmenn náðu hæst 6 marka forystu í stöðunni 24-18, en þá fór maskínan í gang, Ástþór átti t.d. 3 heimsklassamörk - slánna inn allt saman og Heimsliðið kláraði síðustu 10-12 min leiksins með 10 mörkum gegn 3 hjá Selfoss. Í kvöld var svo annar leikur gegn Aftureldingu B. Í framhaldi af góðum sigri á sunnudaginn voru allir tilbúnir í annan slíkan og því var byrjað af krafti gegn Mosfellingum og strax var komist í um 5 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleik (16-11). Í seinni hálfleik misstum við reyndar aðeins einbeitingu og hleytum Aftureldingu í jafna stöðu (22-22) þegar um 15 min voru eftir. Þá var tekið stutt leikhlé, mannskapurinn róaður og strengir stilltir og uppfrá því var leiðin bara uppá við. 10 mörk gegn 2 hjá Mosfellingum og lokaniðurstöður 32-24. Heimsliðið er því komið með 4 stig af 8 mögulegum og ætti að vera í kringum 5-6 sætið þegar umferðinni verður lokið. — Segja eitthvað um hrunið? Nei, pass. — Á föstudaginn ákváðum ég, Árný, Stjáni og Sandra að skreppa uppá Bifröst og kíkja á hátíðarkvöldverð HHS deildarinnar. Halló halló, djöfull var það gaman. Nostalgía, góður matur og mikið skrall. Mjög sáttur með ferðina og þynnkulaugardag í sveitinni. Held að ég muni áfram kalla Bifröst “heima” í smá tíma, frábær staður. — Spurning hvað eigi svo að gera þessa helgi. Grill hjá Stjána, afslöppun, ræktin og heilsusamlegt húllumhæ (og reyna að vinna að því að taka við af Krumma sem aðallínumaður liðsins), bíó (Bond), djamm eða eitthvað allt annað? Held ég reyni allavega að troða Bond og ræktinni þarna einhverstaðar. — Vá hvað þetta hefði verið mikið stærri frétt ef þetta hefði gerst fyrir 2 mán síðan (þ.e. fréttin komið fram) — Það má margt gott segja um þær hugmyndir að taka upp einhliða aðra mynt en krónu hérlendis, en hefur fólk ekkert velt því fyrir sér að með tilheyrandi hækkunar lána vegna verðbólgunnar undanfarið, þá mun slæm gengisstaða gera það að verkum að hækkunin á lánum verður töluvert meiri ef farið verður út í þessar aðgerðir. Djöfullsins, gat ekki setið á mér að nefna eitthvað tengt hruninu — Langar í lokin að benda á nokkra áhugaverða tengla sem maður hefur ratað á með netvafri síðustu daga: Africa, skattar í us, mcdonalds, god - a god?. og nokkur fyndin: rational?, skrípó, kveðjur frá nördum, wtf?, us forsetar, it’s the hat, indy, fail, kandídatar, svekkjandi að sjá þetta svona Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og grín og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:37
Var að skoða hsi vefinn aðeins áðan. Komst þá að nokkrum áhugaverðum atriðum varðandi landsliðsmenn sem ég vissi ekki en voru smá áhugaverðir. Í fyrsta lagi heitir Ólafur Stefánsson fullu nafni Ólafur Indriði Stefánsson og svo ef hann er alveg hættur núna með landsliðinu, þá hættir hann með 1337 skoruð mörk (nördinn blundar stundum í manni ) Annars er nú ksi vefurinn skemmtilegri yfirlitum og mætti hsi endilega taka þá til fyrirmyndar varðandi upplýsinga söfnun og miðlun upplýsinga. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og íþróttir Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 09.18.08 by steini @ 19:24
Alltaf áhugavert að heyra fréttir frá Kóreu. Sérstaklega finnst mér fréttir um mótmæli þarlendis vera áhugasöm, en Kóreubúar hafa verið iðnir við kolann í þeim efnum og oftar en ekki fengið athygli erlendis frá fyrir sérstakar leiðir til að mótmæla. Hér má t.d. sjá nokkur dæmi um það. Á eyjunni í dag er svo ný frétt um blinda nuddara, en blindir eru víst þeir einu sem mega nudda í Kóreu (þetta vissi ég ekki) og mótmæli þeirra gegn því að aðrir en blindir og sjóndaufir megi starfa við það að nudda. Til að leggja áherslu á baráttu sína hótuðu þeir t.d. að hoppa fram af brú! Hvað getur maður sagt, alltaf lærir maður eitthvað nýtt. — Fór með Lóu frænku á tælenska veitingastaðinn Siam í Hafnarfirði í gær. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir. Það voru ekkert mjög margir í salnum, þó eitthvað hafi verið um fólk sem kom að sækja mat, en sú sem var að afgreiða var ekkert að fylgjast um of með kúnnunum svo við þurftum t.d. að bíða töluvert eftir að fá drykki, glös o.s.frv. Maturinn aftur á móti bætti það heldur betur upp og ég hef aldrei smakkað svona góðan thailenskan mat hér á íslandi áður. Fékk mér Pad Thai sem ég bað um að yrði gert töluvert sterkara en venjulega og djöfull hitti kokkurinn í mark með því sem ég fékk - vel sterkt, en enn pad thai bragðið. Rétturinn hennar Lóu var einnig rosalega góður og báðir réttirnir voru ríflega skammtaðir þannig að ekki var séns fyrir mig nema að klára tæplega 2/3 af matnum þó ég væri glorhungraður. Verðið er svo ekki neitt neitt, en rétturinn var á held ég 1290 með hrísgrjónum og salati. Þetta er allavega staður sem ég mun fara aftur á og get hiklaust mæla með fyrir alla þá sem finnst thailensk matargerð góð. Annars, mæli með þessu fyrir alla hina líka, frábær matur. — Það er vonandi að það verði æfingaleikur á föstudaginn hjá Heimsliðinu og svo á laugardaginn verður heljarinnar HHS-partý. Allt bara að gerast. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og matur og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.04.08 by steini @ 0:33
Heimsliðið tók sína fyrstu æfingu á þessu ári í kvöld. Gaman að vera byrjaður að spila aðeins aftur, en það er á hreinu að það verða útihlaup næstu vikurnar. Þetta gengur ekki upp svona til lengdar. Maður þarf að setja raunhæft markmið um að vera farinn að hlaupa 7km fyrir jól, er það ekki? Held að það sé ágæt byrjun allavega. Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.02.08 by steini @ 1:01
Stundum gerir maður alveg hræðileg mistök. Í gær horfði ég á nýju X-files myndina (elskaði gömlu þættina) og það er eitthvað sem ég get því miður ekki tekið til baka. Ekki bara að þetta hafi verið tímaeyðsla, þá eyðilagði þetta rosalega nostalgíuhugsunina við X-files hjá manni - ekki sniðugt. Fyrir utan slappt handrit, lélega díaloga og ótrúverðuga persónusköpun, þá var Gillian Anderson alveg hræðileg í þessari mynd. Hvað hefur eiginlega komið fyrir, hún var alltaf fínasta leikkona í gömlu þáttunum, en þarna er hún bara plain slæm. Mæli öllum frá að sjá þessa hörmung. *1/2/***** — Byrjaði í dag að vinna hjá Landsbankanum í Hamraborg. Verð þar gjaldkeri í þessu nýlega sameinaða útibúi (Hamraborgin og Háaleitið). Get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þetta, hresst fólk og þægileg staðsetning. Dagurinn í dag var reyndar frekar busy (fyrsti mánaðarins) þannig að ég komst ekkert vel inní neina hluti, en það kemur vonandi í vikunni. — Næsta helgi verður helguð útskriftarveislum. Helgina eftir það er pæling um að kíkja á Upplyftingarball á Bifröst. Helgina eftir það verður svo HHS partý hérna heima þar sem nýir og gamlir hhs-ingar munu hittast og vonandi skemmta sér frameftir nóttu. Þannig að nóg að gera næstu helgar. — Heimsliðið er komið á stjá aftur. Komnir með tíma í mýrinni og stefnan er sett á utandeildina í ár. Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta massa lið hjá okkur sem ætti að geta ýtt frá sér og látið önnur lið finna aðeins fyrir því. Stefnir í góðan vetur Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 08.27.08 by steini @ 12:00
Samkvæmt þessari frétt BBC um allskonar reikninga varðandi medalíufjölda, þá ættum við íslendingar ekki að vera aftarlega í töflunni um medalíur miðað við höfðatölu, eða einhverstaðar í 3-4 sæti. (ath. þetta var tekið saman á föstudaginn, áður en við fengum verðlaunin fyrir handboltann). — Góð hugmynd að tónlistarmyndbandi Örugglega grín, en mjög súrt. Hver á 42 dverga ?? Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
