|
Posted on 12.05.08 by steini @ 19:01
Hvet sem flesta til að lesa eina eða fleiri af eftir farandi greinum sem segja frá raunum einstaklings sem flúði úr vinnubúðum í N-Kóreu og komst yfir til Kína þaðan sem komst svo til S-Kóreu og hefur náð að segja frá reynslu sinni. Hann fæddist sem sagt í vinnubúðum þar sem móðir hans og faðir voru pólitískir fangar. Af lýsingu að dæma hljómar þetta eins og útgáfa af útrýmingarbúðum þriðja ríkisins þar sem gasklefunum er sleppt. Vesturveldin töluðu um að láta aldrei neitt í líkingu við það sem gert var við gyðinga, sígauna, fatlaða o.fl. í þriðja ríkinu endurtaka sig. Það gerist samt ennþá og enginn veit af neinu. Skráð sem: Fréttir og Kórea Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 10.20.08 by steini @ 19:48
Hér er ágætis samantekt á kóreskum drykkjuvenjum. Ég allaveg brosti út í annað þegar ég las þetta. Með þessu fylgir svo video sem sýnir tvo haugadrukkna kóreubúa á almannafæri. Ég verð þó að segja að þó maður hafi oftar en ekki séð blindfulla kóreubúa, þá voru þeir sjaldnast með einhverja ofbeldistilburði eins og manni sýnist vera í þessu myndbandi Skráð sem: Kórea og Netið Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 10.12.08 by steini @ 12:30
Við þessa frétt á mbl er mjög furðuleg mynd látin fylgja með. Tengingin er allavega frekar langsótt. Myndin er frá Stríðssafninu í Seoul og einhverjir krakkar eru þar að leika sér fyrir framan minnismerki af S-Kóreskum hermönnum (og reyndar óbreyttum borgurum líka) frá því í Kóreustríðinu. Hér er t.d. ein mynd sem ég tók þegar ég fór og skoðaði safnið. Hér er safnið á wiki og svo önnur mynd sem sýnir sama merki betur. Þannig að tengingin við að N-Kórea sé nú talin hryðjuverkafrítt land virðist ekki vera mikil. Það væri þá hugsanlega í tengslum við hugmyndir um sameiningu ríkjanna (fyrir aftan þetta minnismerki er annað merki sem sýnir tvö brot sem tákna suður og norður Kóreu og vænta sameiningu ríkjanna) og að hryðjuverkatengsl n-Kóreu muni hverfa við þá sameinginu. Líklegast er þó að blaðamaðurinn hafi skrifað “war + korea” eða eitthvað álíka í fréttamyndagagnagrunn og fundið þessa mynd. Allavega er tenging hennar við fréttina lítil sem engin, í besta falli mjög langsótt. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.18.08 by steini @ 19:24
Alltaf áhugavert að heyra fréttir frá Kóreu. Sérstaklega finnst mér fréttir um mótmæli þarlendis vera áhugasöm, en Kóreubúar hafa verið iðnir við kolann í þeim efnum og oftar en ekki fengið athygli erlendis frá fyrir sérstakar leiðir til að mótmæla. Hér má t.d. sjá nokkur dæmi um það. Á eyjunni í dag er svo ný frétt um blinda nuddara, en blindir eru víst þeir einu sem mega nudda í Kóreu (þetta vissi ég ekki) og mótmæli þeirra gegn því að aðrir en blindir og sjóndaufir megi starfa við það að nudda. Til að leggja áherslu á baráttu sína hótuðu þeir t.d. að hoppa fram af brú! Hvað getur maður sagt, alltaf lærir maður eitthvað nýtt. — Fór með Lóu frænku á tælenska veitingastaðinn Siam í Hafnarfirði í gær. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir. Það voru ekkert mjög margir í salnum, þó eitthvað hafi verið um fólk sem kom að sækja mat, en sú sem var að afgreiða var ekkert að fylgjast um of með kúnnunum svo við þurftum t.d. að bíða töluvert eftir að fá drykki, glös o.s.frv. Maturinn aftur á móti bætti það heldur betur upp og ég hef aldrei smakkað svona góðan thailenskan mat hér á íslandi áður. Fékk mér Pad Thai sem ég bað um að yrði gert töluvert sterkara en venjulega og djöfull hitti kokkurinn í mark með því sem ég fékk - vel sterkt, en enn pad thai bragðið. Rétturinn hennar Lóu var einnig rosalega góður og báðir réttirnir voru ríflega skammtaðir þannig að ekki var séns fyrir mig nema að klára tæplega 2/3 af matnum þó ég væri glorhungraður. Verðið er svo ekki neitt neitt, en rétturinn var á held ég 1290 með hrísgrjónum og salati. Þetta er allavega staður sem ég mun fara aftur á og get hiklaust mæla með fyrir alla þá sem finnst thailensk matargerð góð. Annars, mæli með þessu fyrir alla hina líka, frábær matur. — Það er vonandi að það verði æfingaleikur á föstudaginn hjá Heimsliðinu og svo á laugardaginn verður heljarinnar HHS-partý. Allt bara að gerast. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og matur og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 12.14.07 by steini @ 21:38
Síðasta prófið búið, gekk bara helvíti vel, 20 min í að við yfirgefum íbúðina sem er búin að vera heimili okkar síðustu 3,5 mánuðina og stökkvum uppí flugvél til Thailands næstu 11 dagana eða svo. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34
Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi). — Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :)) En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um. — Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar. — Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll. — Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel — Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist Svör: It´s all happening! - (10) |
|
Posted on 11.24.07 by steini @ 11:05
Vinátta á ekki að þurfa að vera að raka bakhár af vini sínum. Það er mannvonska að biðja um þannig hluti. — Fór annars til Incheon í dag með 4 öðrum skiptinemum. Röltum þar aðeins um, kíktum á styttu af Douglas MacArthur, kínahverfið, litla hæð þar sem hægt var að sjá yfir borgina, einhverja kirkju o.fl. Tvær stelpur í kringum 5-7 ára slógust í lið með okkur uppá hæðinni þegar þær uppgötvuðu að við vorum í stuði til að haga okkur bjánalega og troða okkur t.d. inní lítil barna rafmagnsfaratæki (borgar 50kr og þá fer það fram og aftur, fullt af svona í kringlunni og þannig stöðum). Fífluðumst eitthvað með þeim áður en við fórum svo heim með lestinni aftur (34 stoppustöðvar og um 85min á leiðinni). Myndir frá ferðinni koma vonandi inn á morgun. Stefnan er aftur á móti sett á afmælispartý hjá Mathieu, Jenn og Marie í kvöld. Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.20.07 by steini @ 13:24
Palli er eitthvað slappur þessa dagana og er duglegur við að reyna að láta vorkenna sér. Það varð til þess að ég ákvað að skreppa út eftir pizzu í dag fyrir hann (reyndar ekki fyrr en ég var búinn að láta hann reyna að hringja á undan sér og panta pizzuna - það gekk ekki…). Ég sem sagt kem á staðinn panta pizzuna og er sagt að það séu svona 15-20 min í að hún sé tilbúin. Ég ákveð því að labba aðeins um hverfið og kíkja á stemninguna. Á einum stað mæti ég konu með ekta lítinn-ljótan hund sem er klddur í kápu, húfu og skó. Einni mínútu seinna sé ég svo búðarglugga þar sem kona er að raka feldinn af einu hundkvikindinu. Þó að þetta hafi væntanlega verið einhverskonar primo snyrtistofa fyrir málleysingjana, þá datt mér samt í hug í smá stund að þetta væri svona prepare fyrir lúxusveitingastaðina. Gaman að vita til þess að eftir að ég update-aði wordpress þá getur maður gert svona tags við hverja færsla og það eru svona examples alltaf “Tags (separate multiple tags with commas: cats, pet food, dogs)” — Tel mig vera búinn að komast fyrir þetta vesen sem kom þegar maður commentaði. Látið mig vita ef það kemur aftur error þegar þig commentið Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 11.20.07 by steini @ 5:38
Nokkrar nýjar myndir frá rölti mínu um miðbæinn á sunnudaginn, en ég kíkti t.d. á eitt palace, lenti á mandarínukynningu, sá einhverskonar mótmæli og kíkti á mjög flottann og uppgerðan læk sem rennur um eina götuna. Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Myndir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.19.07 by steini @ 12:52
Í kvöld byrjaði að snjóa í Seoul og ég sé ekki nema svona 300 metra. Spurning um að skella sér á bretti. Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea Svör: It´s all happening! - (2) |
| previous posts » |
