|
Posted on 11.16.08 by steini @ 23:40
Ætli hafi eitthvað breyst í hugum almennings á síðustu vikum? — Kíkti á Bond í kvöld. Hún er fín, en hún er ekki svo mikil Bond mynd, meira bara endalaus hasarmynd. Ég vil fá minni hasarBond, en meira af uppbyggingu (fyrir svo spennu og hasaratriðin) í næstu mynd. Skráð sem: Kúltúra og Netið Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 10.22.08 by steini @ 0:44
Að fara á Max Payne myndina er með því vitlausara sem ég hef gert í lengri tíma. Það er vanhelgun á mannlegri reisn að fara á og eyða tíma í svona tilgangslaust rusl. Eftir á að hugsa hefði verið skynsamlegra að læra að syngja Mambo nr 5 afturábak, en að fara á þessa mynd. Þvílík sóun, þvílík hörmung og þvílík mannvonska. Skráð sem: Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 09.02.08 by steini @ 1:01
Stundum gerir maður alveg hræðileg mistök. Í gær horfði ég á nýju X-files myndina (elskaði gömlu þættina) og það er eitthvað sem ég get því miður ekki tekið til baka. Ekki bara að þetta hafi verið tímaeyðsla, þá eyðilagði þetta rosalega nostalgíuhugsunina við X-files hjá manni - ekki sniðugt. Fyrir utan slappt handrit, lélega díaloga og ótrúverðuga persónusköpun, þá var Gillian Anderson alveg hræðileg í þessari mynd. Hvað hefur eiginlega komið fyrir, hún var alltaf fínasta leikkona í gömlu þáttunum, en þarna er hún bara plain slæm. Mæli öllum frá að sjá þessa hörmung. *1/2/***** — Byrjaði í dag að vinna hjá Landsbankanum í Hamraborg. Verð þar gjaldkeri í þessu nýlega sameinaða útibúi (Hamraborgin og Háaleitið). Get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þetta, hresst fólk og þægileg staðsetning. Dagurinn í dag var reyndar frekar busy (fyrsti mánaðarins) þannig að ég komst ekkert vel inní neina hluti, en það kemur vonandi í vikunni. — Næsta helgi verður helguð útskriftarveislum. Helgina eftir það er pæling um að kíkja á Upplyftingarball á Bifröst. Helgina eftir það verður svo HHS partý hérna heima þar sem nýir og gamlir hhs-ingar munu hittast og vonandi skemmta sér frameftir nóttu. Þannig að nóg að gera næstu helgar. — Heimsliðið er komið á stjá aftur. Komnir með tíma í mýrinni og stefnan er sett á utandeildina í ár. Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta massa lið hjá okkur sem ætti að geta ýtt frá sér og látið önnur lið finna aðeins fyrir því. Stefnir í góðan vetur Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 07.28.08 by steini @ 16:43
Fór í gær á nýju Batman myndina Dark Knight. Mjög góð mynd, en besta mynd allra tíma? Nei. Er basically sammála þessum sem skrifaði þetta comment á imdb (ath. spoilers). Margt gott í myndinni. Ledger er mjög góður sem Jokerinn, Michael Caine, Maggie Gyllenhaal og Morgan Freeman góð í sínum hlutverkum og Gary Oldman einnig með mjög góða framistöðu. Skráð sem: Kúltúra Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 07.12.08 by steini @ 1:56
Var að klára að horfa á myndina Rocket Science og VÁ hvað ég var að fíla hana mikið. Þetta var svona eins og blanda af igby goes down, little miss sunshine og öðrum skemmtilegum andhetjumyndum, með smá say anything atriði og góðri tónlist eins og í juno. Sem sagt, klassa mynd. Eftir myndina leið mér svo ekki ósvipað og eftir að hafa séð Little miss sunshine, sem sagt mjög vel. Mæli með að fólk athugi með þessa og gefi henni séns. Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.05.08 by steini @ 20:59
eftirtaldi aðilar/hlutir fá sérstakar þakkir vegna viknanna sem voru að líða með tilheyrandi prófalestri, pirringi og vonleysi á köflum. Þetta er það sem gerði að verkum að maður hélt geðheilsunni og er bara þreyttur núna eftir prófin en ekki algjör taugahrúga.
Magnús fyrir að benda mér á þetta video þegar maður var alveg að fara yfir um. Another late night og Late night tales seríurnar auk Deck Safari diskanna sem eru einhver besta læru-tónlist sem maður getur fundið. Late night tales með Flaming lips og Groove armada voru sérstaklega öflugir. Air, guðdómleg tónlist sem maður getur notað til að ýta öllu öðru í burtu og fókusa á lærdóminn. Grétar kennari fyrir gott email (sjá neðar). — Prófin gengu annars bara ágætlega, 3 munnleg og 2 skrifleg. Er ósáttur með frammistöðuna í einu prófanna, en það er vegna þess að ég átti að vita allt um efnið. Gekk annars mjög vel í 2 prófum og ágætlega/vel í 2 öðrum.
og svo kostnaðar og nytjagreining. Shit hvað mér líst samt vel á fyrri kúrsinn. Það virðast reyndar vera mismunandi skoðanir á henni og bókunum sem hún skrifar, en ég vona að það muni bara leiða til meira dýnamískra tíma þar sem allir vilja mæta til að kynnast hennar hlið vel svo hægt sé að samsinna henni eða gagnrýna í verkefnatímum. 75% lokaritgerð hljómar líka ágætlega fyrir svona kúrs. Maður fær að kynna sér eitt efni rosalega vel og skoða það ofan í kjölinn (eða allavega frekar vel). — Flott að þetta sé komið á hreint. Reyndar verður maður að hafa í huga að það sem er næst fólki í tíma er líka það sem er því næst í hugsun. Engu að síður ættu þessir menn að vera einna færastir að setja hluti í sögulegt samhengi og velja. Og þó það væri töluverð skekkja í þessu og jafnvel þó þessi tala lækkaði niður í 50%, þá hlýtur þetta að teljast frekar slæmt fyrir hann tvöfalt vaff Bush. — Þetta hljómar vel. Ef einhver á pening og langar að gefa mér eitthvað, má sá hinn sami kaupa svona miða. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og Pólitík og USA Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 02.26.08 by steini @ 20:34
Í gær horfði ég á mynd sem náði rosalega til mín, skildi mikið eftir og fékk mig til að hugsa töluvert. Myndin er Into the wild og er í leikstjórn Sean Penn með Emile Hirsch í aðalhlutverki. Myndin gengur út á að karakter Emile’s er að klára college með fínar einkunnir en í stað þess að fara í áframhaldandi nám ákveður hann að gefa spariféð sitt til góðgerðamála og halda á vit ævintýranna, fjarri heiminum þar sem allt snýst um peninga og starfsferil. Hann heldur því í vestur frá vestur Virginíu og ferðast svo með vesturströnd Bandaríkjana áður en hann ákveður að halda einn síns liðs til Alaska þar sem hann ætlar að búa og ferðast um óbyggðirnar. Í framhaldi af því að hafa séð þessa mynd sem mun örugglega hafa mun meiri áhrif á mig til langs tíma en ég er að gera mér í hugarlund núna, þá fór ég að rifja upp aðrar myndir sem hafa náð til mín og haft mikil áhrif á það hvernig ég er og haga mér í dag. Meðal þessara mynda má nefna (ekki í neinni sérstakri röð): The Man from Earth, Amelie, The Virgin Suicides, Lawrence of Arabia, Fight Club, Crash, City of God og Almost Famous. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 11.22.07 by steini @ 8:05
Cocktail Vomit - Everybody (rækjusalat) Are you somebody? Not everybody can be somebody. Well I’m somebody and you are nobody! Nobody!! HAHAHA Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra og Tónlist Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 11.12.07 by steini @ 5:13
Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið. Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni. Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið — Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Kúltúra og Sniðugt stöff og Tónlist Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.01.07 by steini @ 4:58
Orðið frekar langt síðan maður hennti inn færslu hér svo ætli það sé ekki kominn tími á nýja. Vill byrja með að þakka öllum fyrir góðar kveðjur á afmælisdaginn, gaman að fá svona frá fólki. — Þá er fyrsta sería af Californication búin og ég get bara sagt að ég sé svona nokk sáttur með hvernig hún endaði. Þó að þetta hafi endað með smá væmnu dæmi, þá er bara að vona að sería 2 tækli þetta á krassandi hátt eins og þeirra er von og vísa. — Sá frétt um daginn á mbl sem mér fannst frekar asnaleg. Þar var verið að segja frá ofsaakstri einhverstaðar úti á landi og í stað þess að segja “ofsaakstur” eða “glannaakstur” eða eitthvað í svipuðum dúr, þá var sagt “methraði”. Það var svona eins og höfundur væri að segja frá því að met hefði verið slegið í hraðakstri á landsbyggðinni, en hver er svo venjulega afstaða fólks til meta? Jú að bæta þau… — Það er svo einkennilegt hvernig allt virðist reddast hjá okkur Palla. Á þriðjudaginn eftir Nanta showið sem ég talaði um hér að ofan, þá áttum við víst að vera með kynningu á ákv. umfjöllunarefni í Understanding Korean Society. Einhverra hluta vegna vorum við alveg búnir að stimpla það í hausinn á okkur að það væri ekki fyrr en næsta þriðjudag svo við vorum ekkert að stressa okkur yfir þessu þar til um morguninn þegar ég kíkti óvart á námsáætlunina og sá nöfnin okkar. Mættum svo í tímann hálf skömmustulegir til að heyra kennarann segja að hann þyrfti að fara fyrr þennan daginn og því gæfist ekki kostur fyrir allar kynningarnar og kynningin hjá mér og Palla yrði að bíða þar til í næstu viku. Já, það er gaman af þessu — Djöfull finnst mér kostulegt að fylgjast með því að verið sé að breyta biblíunni til að gera hana meira political correct fyrir nútímann auk þess að reyna að koma meira jafnræði í hana og minnka fordóma gangvart minnihlutahópum. Ætli kirkjan sé nokkuð að gera þetta vegna þeirrar tilvistarkreppu sem hún er í og vegna þess að uppgötva að fólk er að snúast gegn henni? Væntanlega. En það skrítnasta við þetta allt saman er að meðan hún reynir að höfða til nýrra hópa þá snýr hún næstum algjörlega baki við þá hvað mest trúa á guð kirkjunnar og hans boðskap og hreinlega breytir merkingum nokkurra versa. — Nýja tónlistin er svo klárlega Datarock. Þakka Steina bróðir kærlega fyrir að hafa kynnt mig fyrir þessu. Tekur smá tíma að melta, en eftir það er þetta snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea og Kúltúra og Nöldur og Trúmál og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |
