|
Posted on 11.12.07 by steini @ 5:13
Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið. Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni. Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið — Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Kúltúra og Sniðugt stöff og Tónlist Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.01.07 by steini @ 4:58
Orðið frekar langt síðan maður hennti inn færslu hér svo ætli það sé ekki kominn tími á nýja. Vill byrja með að þakka öllum fyrir góðar kveðjur á afmælisdaginn, gaman að fá svona frá fólki. — Þá er fyrsta sería af Californication búin og ég get bara sagt að ég sé svona nokk sáttur með hvernig hún endaði. Þó að þetta hafi endað með smá væmnu dæmi, þá er bara að vona að sería 2 tækli þetta á krassandi hátt eins og þeirra er von og vísa. — Sá frétt um daginn á mbl sem mér fannst frekar asnaleg. Þar var verið að segja frá ofsaakstri einhverstaðar úti á landi og í stað þess að segja “ofsaakstur” eða “glannaakstur” eða eitthvað í svipuðum dúr, þá var sagt “methraði”. Það var svona eins og höfundur væri að segja frá því að met hefði verið slegið í hraðakstri á landsbyggðinni, en hver er svo venjulega afstaða fólks til meta? Jú að bæta þau… — Það er svo einkennilegt hvernig allt virðist reddast hjá okkur Palla. Á þriðjudaginn eftir Nanta showið sem ég talaði um hér að ofan, þá áttum við víst að vera með kynningu á ákv. umfjöllunarefni í Understanding Korean Society. Einhverra hluta vegna vorum við alveg búnir að stimpla það í hausinn á okkur að það væri ekki fyrr en næsta þriðjudag svo við vorum ekkert að stressa okkur yfir þessu þar til um morguninn þegar ég kíkti óvart á námsáætlunina og sá nöfnin okkar. Mættum svo í tímann hálf skömmustulegir til að heyra kennarann segja að hann þyrfti að fara fyrr þennan daginn og því gæfist ekki kostur fyrir allar kynningarnar og kynningin hjá mér og Palla yrði að bíða þar til í næstu viku. Já, það er gaman af þessu — Djöfull finnst mér kostulegt að fylgjast með því að verið sé að breyta biblíunni til að gera hana meira political correct fyrir nútímann auk þess að reyna að koma meira jafnræði í hana og minnka fordóma gangvart minnihlutahópum. Ætli kirkjan sé nokkuð að gera þetta vegna þeirrar tilvistarkreppu sem hún er í og vegna þess að uppgötva að fólk er að snúast gegn henni? Væntanlega. En það skrítnasta við þetta allt saman er að meðan hún reynir að höfða til nýrra hópa þá snýr hún næstum algjörlega baki við þá hvað mest trúa á guð kirkjunnar og hans boðskap og hreinlega breytir merkingum nokkurra versa. — Nýja tónlistin er svo klárlega Datarock. Þakka Steina bróðir kærlega fyrir að hafa kynnt mig fyrir þessu. Tekur smá tíma að melta, en eftir það er þetta snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea og Kúltúra og Nöldur og Trúmál og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 10.22.07 by steini @ 5:39
Helgin búin og komið að prófaviku. Fórum í eitt próf í dag sem er væntanlega það þyngsta, svo kemur annað sem er væntanlega smá erfitt á morgun og vonandi létt próf á föstudaginn. Prófið í dag gekk bara ágætlega. 6 spurningar um national security og 75 min til að svara. Var með 4 af þessum spurningum nokkuð góðar, 1 ágæta og 1 frekar slappa. Vona samt að ég fái einhver stig fyrir hana (mismunandi vægi fyrir hverja spurningu og þessar 2 sem gengu ekkert svo vel voru lágt eða miðlungs rate-aðar) — Undanfarna daga er ég búinn að vera aðeins að kanna nýja tónlist. Fyrst af öllu er það nýi Radiohead diskurinn. Hef hingað til ekki verið neinn stór aðdáendi, þótt mér finnist þetta góð hljómsveit. Nú er ég búinn að hlusta á In Rainbows 3-4x og þótt þetta sé góður diskur, þá finnst mér hann ekki eins frábærlega góður og margir eru að tala um. Diskurinn rennur rosalega vel í gegn, en það vantar eitthvað meira finnst mér. Einhverja góða hápunkta. Reyndar eru lögin Weird Fishes/Arpeggi og 15 Step að mínu mati þau bestu, en það vantar eitthvað meira. Þetta er alls ekki það besta sem radiohead hafa gert.
Síðasti diskurinn er jafnframt sá sem ég hef fílað hvað mest, eiginlega bara langt síðan ég hef orðið svona hrifinn af tónlist við fyrstu hlustun, er diskurinn Back to Black með Amy Winehouse. Ég hefði auðvitað fyrir löngu átt að vera búinn að uppgötva kjellu, en sögur um 23 ára stelpu sem hagar sér eins og blanda af Lindsey Lohan og Brittney Spears hefur haldið mig í órafjarlægð frá því að langa að hlusta á hana. Ekki bætir svo að ég er hálf útvarpsheftur og er sjaldan að reyna að koma mér inní mainstream hlustun. En boy oh boy, djöfull er þetta mikil snilldar tónlist. Þessi rödd er fuckin bjútífúl og þessi blanda við 50′-60′ frank sinatra og co/jazz/soul er algjörlega að gera sig. Allur diskurinn er í heild frábær, þótt lagið You Know I’m No Good standi uppúr. Þetta er klárlega diskur sem ég mun fjárfesta í næst þegar ég kem við í geisladiskabúð, ekki spurning. Og var ég búinn að segja hvað hún er með töff rödd??? djöfullsins snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Kúltúra og Tónlist Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 09.30.07 by steini @ 11:58
Þá er ég kominn “heim”. Þetta heim hugtak er reyndar orðið frekar flókið þessa dagana. Meina hvað er heim? Ég átti heima í Garðabænum frá því að ég var 12 ára og þangað til ég var 20 ára. Síðan flutti maður uppá Bifröst (reyndar fyrst í sumarbústað rétt hjá) og það varð hálfgert heimili manns, en samt fór maður oftast í bæinn um helgina “heim til sín”. Reyndar bjó ég aldrei lengur en 6 mánuði á sama staðnum uppí Norðurárdal, þannig að spurning hvort það sé eitthvað heimili frekar en t.d. Kórea núna. Núna er staðan þannig að ég á eftir svona 3 mánuði hérna í þessari íbúð sem skólinn er að skaffa okkur Palla. Getur það flokkast sem heimili? Meina, 1 mánuður búinn og 3 mánuðir eftir í umhverfi sem er svo framandi að meira að segja að panta McDonalds getur orðið erfitt. Og hvert er stefnan sett svo? Jú vonandi í eitthvað herbergi á Bifröst, en það er alveg undir Öldu (sú sem sér um húsnæðismálin uppfrá) hvað ég fæ úthlutað. Get því ekki sagt að ég hugsi til Bifrastar sem heimilis, nema þá í mjög breiðum skilningi, þ.e. með að segja að skólaumhverfið allt þarna uppfrá sé heimilið mitt. En ég get ekki einu sinni hugsað um mitt eigið litla private herbergi þarna uppfrá þar sem ég á ekkert þannig og fæ örugglega ekkert að vita hvaða íbúð ég fær úthlutað fyrr en einhverntíman í des. Það er því spurning hvort ég sé heimilislaus maður, sem er samt með þak yfir höfuðið… — Ferðalagið frá Singapore heppnaðist mjög vel að mestu leiti. Sváfum báðir bara meiri hlutann af leiðinni og svo las ég einstaklega fræðandi bók um japanskt samfélag sem heitir “Tabloid Tokyo 2: 101 tales of sex, crime, and the bizarre from Japan’s wild weeklies”. Þetta er sem sagt bók sem tekur furðulegar fréttir úr Japönskum slúðurtímaritum og bætir við smá commentum frá þeim sem setja bókina saman (þeir eru frá US, Canada, Ástralíu og fleiri stöðum). Bókin er mjög misgóð, sumar af þessum fréttum eru algjör snilld og setja punktinn yfir i-ið varðandi þær hugmyndir sem maður hefur um Japan, meðan aðrar fréttir eru frekar flatar. Allavega var þetta fín bók til að lesa í fluginu. — Það eru svo komnar nokkrar nýjar myndir frá Singapore inn. Þar gefur að líta t.d. ferðina í dýragarðinn, sightseeing um borgina, smá djamm og svona. Einnig eru nokkrar myndir sem ég fékk frá Sibbu (vegna batterísleysis) þar sem meðal annars má sjá skot frá Long Bar á Raffles Hotel (án efa einu af flottari hótelum í Singapore) þar sem við fengum okkur Singapore Sling koktailinn, en hann var einmitt fundinn upp þar Svona til útskýringar fyrir fólk þá er þessi mynd tekin af einhverju lengsta Info borði sem ég hef séð ever. En svo var bara in kona sem sat við einn endann á borðinu og þetta risapláss var allt algjörlega ónotað Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kórea og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 06.21.07 by steini @ 0:12
Fór á Air tónleikana í gær, þvílík upplifun. Fyrst spilaði ung norsk stelpa, Kate Havnevik ásamt hljómsveit og skapaði mjög fína stemmningu. Mér reyndar líkaði það vel við tónlistina hennar að ég skellti mér niður í anddyri í hléinu og keypti diskinn hennar. Diskurinn er mjög góður, en live performance hjá henni var snilld. Hendi kanski lagi með henni inn við tækifæri. — Komnar svo nokkrar myndir frá grillinu 12. júní hér á Bifröst. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 06.14.07 by steini @ 8:50
Án þess að ætla að fara að verja gjörðir þeirrar konu sem gagnrýndi Smáralindarbæklinginn hér fyrr um árið, þá verð ég að segja að ég tel mig skilja ástæðu þess að hún lét þessi orð falla. Eftir að hafa verið núna í 1-2 daga að hugsa um allskonar afleiðingar kláms, klámvæðingar, kynferðilegs ofbeldis o.s.frv. verður maður alveg hálf geðveikur og raunveruleikafirrtur. — Þegar maður les svona færslur fær maður dálítinn kjánahroll. Eigum við ekki bara næst að koma aftur á vistarbandi? — Kíkti á Ocean’s thirteen og Hot fuzz nýlega. Báðar snilldarmyndir. Seinni hlutinn í hot fuzz auðvitað með þeim betri í nokkur ár og ocean’s stóð alveg undir væntingum. — Getur annars einhver sagt mér hvað verið er að gera við smáralindina. Er verið að fara að byggja við hana, eða á að byggja nýja byggingu? Stór grunnur í smíði þar. — Merkilegt með þetta að kaupa sér flugfar. Er núna að reyna að finna hentugt far til Kóreu í haust. Icelandair bauð einhvern 150.000kr, exit enn hærra, með því að millilenda sjálfur á nokkrum stöðum (köpen, istanbul) var hægt að fá verðið í svona 75.000kr, en með því að kaupa round trip frá hamburg er hægt að fá ferðina á sirca 65.000kr. Já, þetta er algjör frumskógur og ég er alveg búinn að komast að því að leitarvélarnar á netinu sem eiga að gera þetta allt fyrir mann fá alltaf töluvert dýrari niðurstöður en ef maður tékkar sjálfur á kostnaðinum alla leiðina (hver leið fyrir sig). Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 06.05.07 by steini @ 15:16
Langt síðan maður hefur hent inn einhverri tónlist. Hérna eru tvö ágætis sumarlög: — Hátíðarkvöldverður HHS í kvöld uppá Hraunsnefi - mexico þema og stefnan tekin á hæfilegt rugl Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 06.04.07 by steini @ 12:26
Rakst á frábæra síðu á netinu í gær. Fleipur á moggablogginu eru svona aðeins ósúrari útgáfa af Baggalút, en engu að síður snilld. — Horfði á myndina Syriana í gær. Gæðamynd þar á ferð sem lýsir ástandinu í kringum olíumarkaðinn ágætlega. Enginn hefur fullkomna hugmynd um hvað er að gerast, menn eru vinnandi sitt í hverju horninu og algjört siðleysi ríkir. Já og bandaríkjamenn stjórna svo mest öllu þrátt fyrir allt. Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 06.03.07 by steini @ 14:10
Las bókina Veronika ákveður að deyja eftir Paulo Coelho (gaurinn sem gerði Alkemistann) í gær. Kom mér skemmtilega á óvart og var mun betri en Alkemistinn, sem mér reyndar fannst frekar léleg. Var reyndar búinn að ímynda mér endann aðeins áður en bókin kláraðist, en sagan fékk mann engu að síður til að hugsa mikið og var góð sem slík. (verið að tala um Adam, Evu og aldingarðinn)
— Annars var maður bara duglegur um helgina. Hélt grill á föstudaginn, tók svo til í sameigninni og herberginu á laugardaginn, þvoði allan þvott, tók á móti pabba í smá kaffi, las fyrrnenfda bók og kíkti í göngutúr. Auk þess náði maður að sofa vel út og það var nauðsynlegt fyrir komandi vikur í feminismanum — Er svo kominn með miða á Air tónleikana 19. júní í laugardalshöll. Það verður mögnuð upplifun. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 04.27.07 by steini @ 16:50
stundum getur kaldhæðnin hitt algjörlega í mark. Þetta er gott dæmi um það. — Í gær spiluðu Daníel Ágúst og Krummi uppí Hredda undir nafninu Esja. Fínasta tónlist og eiginlega bara möst að kaupa diskinn. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: Ekkert ennþá |
| « newer posts | previous posts » |
