síðustu vikur
Posted on 07.09.08 by steini @ 13:18

Var að taka myndir af símanum mínum í fyrsta skiptið um daginn, auk þess sem myndavélin var tæmd inná vélina. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum og mánuðum. Hægt er að stækka myndirnar með að smella á þær.

Sápuboltinn að byrja. Júlli, Helgi og félagar að teygja á og gera sig tilbúna.
Sápubolti Bifröst 2008

Hér er svo sigurlið ársins 2007, en í þetta skiptið fóru dómararnir illa með okkur og við fengum ekki að halda áfram eftir 2 sigurleiki í röð!
Sápubolti Bifröst 2008
Ég, Raggi Lú, Goggi, Stulli og Tryggvi.

Komnir inní Kollubúð á föstudagskvöldið og tilbúnir í smá sull fyrir veiðiskapinn sem átti að hefjast á laugardaginn.
Kollubúð Veiði 2008
Kalli, Robbi og Óli

Aflinn á sunnudaginn. Á myndinni má sjá crewið - háseta, skiptstjóra og stýrimenn.
Kollubúð Veiði 2008
Ég, Þórir, Rúrik og Óli

Hópurinn fyrir utan Kollubúð
Kollubúð Veiði 2008
Óli, Grímsi, Robbi, Kalli, Þórir og Rúrik

Hér má svo sjá aflann aftur
Kollubúð Veiði 2008

Reynir í sápuboltanum
Sápubolti Bifröst 2008

Grillið góða með blómunum. Sagan um þau kemur hér inn fljótlega. Doddinn kominn með framhaldslíf, eftir að hafa verið mest notaða grill síðasta sumars á Bifröst.
Doddinn Grill stóra blómamálið

Hér á eftir eru myndirnar úr símanum, auðvitað í mjög lélegum gæðum.

Hér má sjá mynd frá því að Fúsi var steggjaður í fyrra
Fúsi Steggjaður Vigfús Adolfsson

Hér er vel yfirlýst mynd af Chuck cup liðinu á mýrarboltamótinu á Selfossi 2008
Mýrarbolti 2008 Selfossi

Og svo mynd frá Paul Simon tónleikunum í Höllinni (btw, takk kærlega strákar). Eins og sjá má er meistarinn baðaður í ljósi og glampa, svo svipar til sjálfs Jesú Krists!
Paul Simon Höllin 2008

Og svo myndir frá göngunni á Baulu, en þær eru teknar af Sigrúnu Hermannsdóttir.

Baula 2008 Bifröst


Baula 2008 Bifröst


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Myndir og Veiði
Svör: It´s all happening! - (2)

Myndir frá evrópuferðinni
Posted on 06.01.08 by steini @ 14:24

Hérna eru myndirnar frá Evrópuferð okkar Steinars. Skrifa eitthvað sniðugt og tengi við myndirnar við tækifæri.


Skráð sem: Dagleg skrif og Myndir
Svör: It´s all happening! - (2)

sig og hlé
Posted on 03.04.08 by steini @ 16:19

Fyrir all nokkru hitti ég tvær stúlkur á förnum vegi. Þær voru og eru enn rugludallar. Algjörir rugludallar reyndar, en engu að síður er hægt að hafa gaman af ruglinu þeirra. Þær í sameiningu eða stöku lagi hafa gert margt ansi furðulegt í þann stutta tíma sem ég þekkt þær; keppt í og skíttapað Hroka, hoppað til Indlands í 4 mánuði, þrifið aðra hverja íbúð á campus, farið í appelsínuslag, orðið ritstjóri og skilað BA ritgerð um leið, tekið uppá því að vera fyrsti seyðahandillinn á netinu, tekið þátt í útsvari (og vera svo hálfpartinn rekinn úr liðinu :)) og mörgu fleira.
Á vafri mínu um netið í dag datt ég niður á þrjár myndir sem voru teknar af okkur á Bifrovison núna fyrir 2 vikum.
Fyrsta myndin er einstaklega falleg og vel heppnuð. Sést vel á henni hver munurinn er á okkur þremur. Til vinstri er skælbrosandi, glottandi og hrekkjótta Hlédís, í miðjunni er einstaklega venjulegi einstaklingurinn ég og svo til hægri sjáum við ritstýruna ákveðnu hana Sigrúnu.
Mynd númer 2 lýsir svo einstakri gleði og hamingju og ef ekki væri fyrir eins föt og á fyrstu myndinni væri eflaust erfitt að segja að þetta væru myndir teknar með innan við 1mín millibili.
Á mynd þrjú er svo mætt auk okkar hún Gugga vinkonu sem var í Bifrónefndinni. Þetta er einnig mjög fín og stíliseruð mynd, ef ekki væri fyrir fótastöðuna og einstaklega mikinn og glottandi pervertískan svip hjá henni Hlé. Reyndar aldrei að vita nema að það sé einhver listastefna sem gangi út á samsetningu mismunandi of öfgafullra stílbragða og þá er þessi mynd væntanlega algjört skólabókardæmi.

Vil annars nota tækifærið og óska þeim vinkonum aftur til hamingju með áfangana (seyðahandlið og ritstjórastöðuna) og alls hins besta með þau verkefni sem koma skulu.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Myndir
Svör: Ekkert ennþá

Myndir og fleira
Posted on 02.09.08 by steini @ 16:55

hummm… hvað er maður að gera þessa dagana. Var að skila inn umsókn um BA ritgerðina (skil í ágúst) í gær. Svo er það bara þetta venjulega, læra og skemmtanir. Var einmitt grímuball á fimmtudaginn og ég ákvað að klæðast upp í Kóreska þjóðbúninginn. Mjög gott kvöld, en vegna mikillar þreytu var farið snemma í háttinn. Erum svo að læra um fjálshyggjuna í stjórnmálaheimspeki þessa dagana. Mjög gaman að fá aðeins víðsýnari sýn á kosti og galla við þessa stefnu.

Þetta er ein af ástæðunum afhverju mér finnst RIAA vera algjört rusl og tek lítið sem ekkert mark á þeim.

Þessi bók sem hér er gagnrýnd hljómar alveg yndislega í eyrum mínum. Minnir óneitanlega mikð á bókina Ár hérans eftir Arto Paasilinna, sem er auðvitað snilldarverk út í eitt. Þessi bók verður allavega sett á listann yfir bækur sem ég stefni á að lesa.

Rosalega þykja mér annars fréttir vera leiðinlegar þessa dagana. Bara eitthvað um slæmt veður og REI málið og innkomu Villa í þau mál. Hendið bara Villa frá borði, klárið þetta mál og farið að tala um eitthvað nýtt. Það er alveg á hreinu að sjallar munu skíttapa fylgi ef þeir fara ekki að hugsa af viti hvað þeir eigi að gera með gamla manninn.
Eina viturlega sem kemur annars fram um þessi REI mál kemur svo frá bæjarstjórn Akranes. Þetta er svona eins og eftirtektasami ferðamaðurinn sem sér gallana í samfélagi þar sem borgararnir hafa orðið svo samdauna ríkjandi ástandi að þeir sjá ekkert skrítið við það.

Hér eru svo myndirnar frá Thailandi loksins:
Ferð til Phi Phi eyja
Myndir frá Phuket
Bangkok 1
Bangkok 2
Ferð til Temple of Tigers
Ferð í þjóðgarð, ferð í uxakerru og á fílsbak
Veiðiferð á aðfangadag


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Myndir og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

DMZ og næstu vikur
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34

Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi).
Þannig að planið næstu vikurnar er eftirfarandi:
10. des: Prófavikan byrjar með prófi í Theories of national security. Þar á eftir fylgja svo próf í Understanding Korean society, Economic development in Korea og svo síðast í Konfúsíusma. Auk þess þarf að henda inn einni ritgerð í Globalization and development.
14. des: Síðasta prófið
15. des: Fljúgum til Thailands með millilendingu í Hong Kong. Brottför kl 10:15 um morguninn þannig að það verður ekki beint tími fyrir neitt lokadjamm kvöldið áður.
15. des - 20. des: skoða bangkok, kíkja á markaði, vonandi í eitthvað safari, nudd o.s.frv.
21. des - 26. des: Afslappelsi á Phuket. Jól á ströndinni
26. des: Flug til Singapore. Áramót þar.
1 eða 2. jan: flug heim, væntanlega millilent í London. Eiginlega það eina sem þarf að redda og það þarf víst að gerast sem fyrst þar sem allt er að verða fullt :(

Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :))
Við fengum svo að kíkja inn í einn skúr þar sem viðræður landanna fara jafnan fram og þar gátum við labbað yfir landafræðilega línu yfir til norður Kóreu, þótt húsið sé þannig séð á ábyrgð US og Suður Kóreu. Það sem var samt mest sérstakt við þessa ferð var hvað það var rosalega mikil þögn þarna þegar maður kom alveg að landamærunum og maður fann alveg spennuna sem var þarna.
Myndir frá ferðinni eru loksins komnar hingað
Til að fólk skilji þetta betur ætla ég að útskýra nokkrar myndir.
Lest sem tók okkur niður í göng sem Norður Kóreumenn reyndu að gera yfir til Suður Kóreu fyrir sirca 20 árum eða svo. Gangnamuninn hefði ekki verið nema um 50km frá höfuðborginni seoul og hægt hefði verið að flytja 10-20þús manna hersveitir á klst þarna í gegn. Fleiri göng hafa fundist, en engin svona nálægt Seoul
Líkan af JSA svæðinu. Hvíta línan er milli suðurs og norðurs
Reynt að taka mynd af norður Kóreu í fjarska, en mjög erfitt vegna myndavélabanns á ákveðnum svæðum. Einnig var mikil þoka og því erfitt að ná einhverjum myndum
Lest að koma um einu járnbrautina milli landanna. Það eru víst einhver viðskipti í gangi með einhverjar landbúnaðarvörur (plús hjálpina sem suður sendir norður)
Ef það verður opnað fyrir ferðalög milli landanna verður þetta brúin sem labbað verður yfir. Hér í kring var það sem löngu sundraðar fjölskyldur fengu að hittast kringum 2002 þegar samningar voru gerðir milli landanna. Eins og er er girðing þarna og búið að hengja fullt af minningar og friðar dúkum á það.
Ekki taka myndir. Slatti af svipuðum skiltum allsstaðar.
Inní samningaviðræðu húsinu.
Og þarna eru landamærin sjálf
Séð yfir samningshúsin og aðalbyggingu Norður kóreu þarna hinu megin. Hornið sem sést í vinstra megin er aðalbygging suður kóreu á svæðinu.
Fyrsta/síðasta lestarstöðin í suður Kóreu. Var byggð fyrir nokkrum árum síðan en er ekkert notuð. Eitt af þeim atriðum sem hefur verið gert til að reyna að ýta undir samskipti ríkjanna.

En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um.

Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar.
Það er þó frábært hvað þessi umræða hefur fengið að haldast í þjóðfélaginu síðustu daga, ef marka má fréttavefi, umræðuþætti og blog umræður á netinu. Mjög sáttur með það og vonandi að einhverjir foreldrar sjái hvernig kirkjan er að troða sér inní skólana, sem eiga jú samt að vera þannig úr garð gerðir að þar sé ekki mismunað börnum t.d. á grundvelli trúar.
Furðulegast þykir mér þó að sjá framferði biskups og kirkjunnar gegn Siðmennt (og Vantrú) þar sem Siðmennt er hreinlega gert upp skoðanir og reynt að troða þeim að í öllum fréttatímum til að fá fólk til að halda að félagið sé t.d. á móti og vilji breyta þjóðfánanum og þjóðsöngnum (sem væri nú alveg rétt að breyta reyndar og þá aðallega vegna erfiðleika við að syngja hann) auk þess að vilja alla trúarbragðafræðslu úr skólum og að hætta með litlu jólin og páskaföndur. Þetta er auðvitað algjör rugl og hefur aldrei verið á stefnuskránni, en það hindrar samt ekki kirkjunar menn að koma fram með svona sleggjudóma sem aðrir éta svo ógagnrýnislaust upp.

Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll.
Einnit langar mig að benda á hljómsveitirnar Moldy Peaches og Beirut. Moldy peaches alveg yndislega hrátt rokk og Beirut í góðum indie swing.

Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel :( Fraus aðeins á fyrstu spurningunni og þar við sat og ég var hálf ónýtur í hausnum það sem eftir lifði prófsins. Vonum samt að þetta náist. Á morgun er svo próf í understanding korean society, frekar bjartsýnn á það.

Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (10)

saybia
Posted on 11.25.07 by steini @ 10:33

Mig langar alveg einstaklega mikið akkúrat núna að vera aftur í Tívolí í Köpen horfandi á tónleika með Saybia. Það væri yndislegt.

Myndirnar frá Incheon


Skráð sem: Dagleg skrif og Myndir
Svör: It´s all happening! - (4)

meira meira
Posted on 11.20.07 by steini @ 5:38

Nokkrar nýjar myndir frá rölti mínu um miðbæinn á sunnudaginn, en ég kíkti t.d. á eitt palace, lenti á mandarínukynningu, sá einhverskonar mótmæli og kíkti á mjög flottann og uppgerðan læk sem rennur um eina götuna.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Myndir
Svör: 1 svar komið

myndir frá international day
Posted on 11.16.07 by steini @ 10:39

Jæja, þá geta mamma og Linda loksins tekið gleði sína á ný, því ég hef komið höndum yfir nokkrar af myndunum frá því á international deginum. Á þeim degi sem sagt klæddu skiptinemarnir sig upp í alskonar þjóð búininga frá hinum ýmsu löndum og svo lentum við í einhverri myndatöku og eitthvað meira fyrir einhvern sjónvarpsþátt ef ég skildi þetta allt saman rétt.
Búningurinn sem ég er í heitir Hanbok og er þjóðbúningur Kóreu. Klárt mál að þetta verður það sem tekur við af náttbuxnaáráttunni hjá mér eftir að ég kem aftur á bifröst :)
Myndirnar


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Myndir
Svör: It´s all happening! - (4)

myndir
Posted on 11.13.07 by steini @ 10:01

Myndir komnar inn:
Jazz Story
Tank 7 nov
Afmælispartýið hans palla


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Myndir
Svör: It´s all happening! - (2)

náranudd
Posted on 11.08.07 by steini @ 10:30

Maður þarf víst að henda inn einni færslu svo mamma fari ekki að fá áfall og haldi að eitthvað hafi gerst fyrir mann hérna úti :)
Við höfum samt gert mest lítið síðustu vikuna, fyrir utan að kíkja til Sokcho og fara þaðan í Seoraksan þjóðgarðinn þar sem við löbbuðum uppá 3ja hæsta fjall Kóreu (1708m). Þegar ég var að fara í ferðina hélt ég að þetta yrði eitthvað eins og að skokka uppá esjuna, en þetta var heldur betur mun erfiðara, sérstaklega í ljósi þess að við byrjuðum eiginlega við sjávarhæð og fórum 5km alltaf uppí mót til að komast á tindinn. Endalausir stigar og stígar sem stefndu bara í eina átt. Enda var maður hálf ónýtur þegar upp var komið og ennþá ónýtari næstu tvo daga á eftir. Kíktum reyndar í nudd daginn eftir með Olgu frá Kasakstan og þar voru stundaðar pyntingar á okkur í svona 1klst sem endaði með því að konan sem var að nudda mig ákvað að lemja bara helvíti fast í hliðina á lærinu á mér (ég var búinn að emja eins og smástelpa allan tímann þegar hún var að nudda fæturna) og við það stökk ég hreinlega til vegna sársauka. Fyrir utan þetta lokaatvik var nuddið reyndar mjög gott og ég er ekki frá því að það hafi liðkað aðeins vöðvana eftir þetta púl.
Ég var reyndar smá efins á tíma þarna í nuddinu um hvort við hefðum óvart farið á “happy ending” nuddstofu þegar konan fór að nudda á mér nárann. Það reyndist þó ekki vera og hún kláraði nuddið bara venjulega.
Myndir frá ferðinni má svo finna hér

Hvað er málið með þetta? Ætla kirkjusöfnuðir ekki að skilja að það er fáránlega mikil kristinfræðikennsla fyrir í skólum til móts við frekar litla almenna trúarbragðafræðslu. Það mætti svo miklu frekar nota tímann í að kenna krökkum meira í öðrum fögum sem hafa hugsanlega eitthvað raunverulegt gildi fyrir þau varðandi frekara nám eða vinnu. Og að efla kristið siðferði? Ef mig misminnir ekki stendur einnig í námskrá grunnskólanna að allt nám eigi að vera miðað að kristinni siðfræði. Það ætti miklu frekar að afnema eitthvað svona ákvæði og kenna krökkunum almennt siðferði sem er ekki bundið við gamla bók sem er full af andstæðum pólum, ofbeldi, hræðsluáróðri og hatri gagnvart vissum minnihlutum.
Eina sem ég get að einhverju leiti tekið undir er þessi punktur:

Þá vilja félögin að Alþingi og sveitarstjórnir verji auknum hluta af almannafé til forvarna gegn áfengis- og vímuefnaneyslu, ofbeldi, sjálfsmorðum, einelti og klámvæðingu.

Það þarf reyndar að passa vel uppá það hvaða leið er notuð og hvort hún skili virkilega einhverjum árangri, en sé ekki bara sóun á peningum í fyrirfram töpuð verkefni.


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Trúmál
Svör: It´s all happening! - (3)

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
kvikmyndir
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
allt í volli
fullir ökumenn
árið 2008 í stuttu máli
jólagjöf
áhugavert myndasafn og tónleikar.
staður, stund og ímynd
skókast
full-control zone í N-Kóreu
steve jobs í kringlunni áðan
Fínt föstudagskvöld og hörmuleg W
blússandi góðæri í skeifunni
það vilja allir kosningar strax, vilji þjóðarinnar !!!
merkilegur prestur
kaupþing að gera það gott í Sviss, setja met og svona
takmarkið

Eldra efni
January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér