ólafur indriði stefánsson
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:37

Var að skoða hsi vefinn aðeins áðan. Komst þá að nokkrum áhugaverðum atriðum varðandi landsliðsmenn sem ég vissi ekki en voru smá áhugaverðir. Í fyrsta lagi heitir Ólafur Stefánsson fullu nafni Ólafur Indriði Stefánsson og svo ef hann er alveg hættur núna með landsliðinu, þá hættir hann með 1337 skoruð mörk (nördinn blundar stundum í manni ) :)
Þess fyrir utan rifjuðust upp nokkur nöfn fyrir manni sem maður var búinn að gleyma. Sigmar Þröstur markmaður og Héðinn Gilson t.d. Svo er líka áhugavert að geta þess að allavega tveir af leikmönnum landsliðsins hafa verið íþróttakennarar við þá skóla sem ég hef stundað. Maggi Teits í Garðaskóla og Viddi Sím í Verzló.

Annars er nú ksi vefurinn skemmtilegri yfirlitum og mætti hsi endilega taka þá til fyrirmyndar varðandi upplýsinga söfnun og miðlun upplýsinga.


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og íþróttir
Svör: It´s all happening! - (2)

chrome
Posted on 09.03.08 by steini @ 20:31

Rosalega finnst mér þetta vera langt út fyrir öll velsæmismörk hjá Google. Að ætlast til þess að þeir fái ótakmarkaða heimild til að nota allt sem þú lætur frá þér á veraldarvefnum (gegnum Chrome vafrann þeirra) í þeirra þágu. Þannig að þú basically gefur frá þér þinn einka eignarrétt yfir hlutum sem þú postar á netinu.
Hvað ef t.d. tónlistarmaður eða vefhönnuður notar vefmail og sendir sína nýjustu afurð á annan einstakling (samverkamann, kaupenda eða álíka) í gegnum Chrome. Ef ég skil þetta rétt, þá ætti google að eiga rétt til að nýta sér þessar hugmyndir í sína þágu. Vel gert google, þetta er skref í rétta átt ef þið viljið fá hinn almenna notenda upp á móti ykkur og verða óvinsælt og hatað vörumerki, í stað þess að vinna með kúnnanum.


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið
Svör: Ekkert ennþá

nú liggja norsararnir í því
Posted on 08.30.08 by steini @ 1:33

rickrolling fær alveg nýja vídd með þessari tækni :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið
Svör: Ekkert ennþá

allt annað má bíða á meðan
Posted on 08.28.08 by steini @ 22:40

someone is wrong on the internet


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið
Svör: Ekkert ennþá

boltinn og rúv
Posted on 08.14.08 by steini @ 7:53

Jæja, tapaður leikur gegn Kóreu. Ekki mikið við því svo sem að segja. Vantaði smá neista í sókninni og færin voru ekki að detta með okkur. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árina eins og maður hefur verið að sjá hjá öðrum og um það sem lýsandanum fannst, að dómararnir hafi verið hroðalegir. Auðvitað áttu þeir sín mistök og allt það, en þeir voru alls enginn auka leikmaður fyrir Kóreu eða algjör úrslitavaldur í leiknum.
Það sem mér finnst aftur á móti vera mjög leiðinlegt er hvernig vefsjónvarp rúv er að virka. Það var alveg hræðilegt að vera ekki með aðgang að sjónvarpi svona snemma morguns og þurfa að notast við vefsjónvarpið. Það var alltaf að detta út og bufferast aftur og aftur. Held ég hafi ekki náð 5min straight án þess að þurfa að endurhlaða spilarann. Þetta var sérstaklega taugatrekkjandi þegar streymið datt út þegar 5 min voru eftir og við 3 mörkum undir. Þegar ég náði sambandi aftur var 1 min eftir og munurinn allt í einu orðinn 1 mark! Rúv þarf klárlega að laga þennan part hjá sér á komandi dögum.

Annars er síðasti dagurinn minn á Bifröst að renna upp núna. Merkilegt að vera að fara héðan núna eftir 2 góð ár. En allt tekur víst enda og nú er komið að næsta kafla. Hver hann svo verður kemur bara í ljós. Helgin er svo frekar full bókuð, en hún inniheldur matarboð, partý, landsleik, grillun í gæsaveislu o.fl.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Netið
Svör: 1 svar komið

á ekki til orð!
Posted on 07.12.08 by steini @ 19:02

Þetta er án efa eitt það súrasta sem ég hef séð lengi. Ég er allavega enn gapandi af undrun.
Löggjafarþing Idaho samþykkti sem sagt ályktun um að hrósa ætti höfundum Napaleon Dynamite. Það besta við þetta er auðvitað þessi grein ályktunarinnar:

“WHEREAS, any members of the House of Representatives or the Senate of the Legislature of the State of Idaho who choose to vote “Nay” on this concurrent resolution are “FREAKIN’ IDIOTS!” and run the risk of having the “Worst Day of Their Lives!” ”

Meira um málið á snopes.com


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og Sniðugt stöff
Svör: 1 svar komið

dansandi um heiminn
Posted on 06.25.08 by steini @ 22:34

Pínu væmið, en fuckin geðveikt video. Þetta er Matt sem ferðast um heiminn og tekur upp þegar hann dansar hér og þar. Fær svo oft fólk með sér þannig að örugglega >1000 manns taka þátt í þessu hjá honum. Skemmtilegt að þarna bregður Íslandi einmitt fyrir :)
En já maður hefði alveg verið til í að ferðast svona mikið eins og hann gerir: 14 mánuðir og 42 lönd! Geðveikt!


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Netið
Svör: 1 svar komið

tímaferðalög
Posted on 06.24.08 by steini @ 1:34

Rökræður verða sjaldan svona nördalegar.

Baula á morgun? Hugsanlega

Mig langar í svona !

Southpark er stundum svo mikil snilld! Góð biblíusaga :)


Skráð sem: Bifröst og Netið og grín
Svör: Ekkert ennþá

Wittgenstein og Hitler
Posted on 06.05.08 by steini @ 12:47

Síðustu 3 vikur hefur verið kúrs hér á Bif um Ludwig Wittgenstein, Austurrískan heimspeking (rökhyggjumann) sem gerði eitthvað sniðugt. Ég ætlaði áðan aðeins að lesa mér til um þennan gauk og datt þá fljótlega niður á þessa mynd af honum og herra Hitler frá því í grunnskóla í Linz.

wittgenstein hitler

Fyrir utan að það er auðvitað nokkuð merkilegt að þeir hafi verið skólabræður, þá finnst mér þessi mynd af honum Dolla alveg frábær. Alveg eins og 40 árum seinna og skugginn á efri vörinni gerir svona líka skemmtilegt yfirvararskegg á hann. Priceless mynd


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið
Svör: Ekkert ennþá

kræst!
Posted on 04.02.08 by steini @ 0:54

ég er enn í shocki eftir að hafa séð þetta video áðan. Hvað er eiginlega að röddinni í þessari konu!
Þetta er svo langt frá því að vera heilbrigt að …. shit, tékkið bara á þessu.


Skráð sem: Netið
Svör: It´s all happening! - (2)

« newer posts previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
kvikmyndir
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
allt í volli
fullir ökumenn
árið 2008 í stuttu máli
jólagjöf
áhugavert myndasafn og tónleikar.
staður, stund og ímynd
skókast
full-control zone í N-Kóreu
steve jobs í kringlunni áðan
Fínt föstudagskvöld og hörmuleg W
blússandi góðæri í skeifunni
það vilja allir kosningar strax, vilji þjóðarinnar !!!
merkilegur prestur
kaupþing að gera það gott í Sviss, setja met og svona
takmarkið

Eldra efni
January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér