|
Posted on 07.25.08 by steini @ 22:14
Rosalega þoli ég ekki hvað maður er stundum slakur í íslenskunni. Klikka t.d. mjög oft á “að” og “af”, s.b. “hann hafði mjög gaman að/af e-u”. Þetta og svo n/nn reglur, klárlega ekki mitt thing. Skráð sem: Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.01.08 by steini @ 18:24
… þegar ég missi box með eyrnapinnum í gólfið. Það er eiginlega frekar að maður nenni að fara út í búð og kaupa nýjan pakka en að týna þá sem duttu niður upp og koma þeim í boxið. Það er nefnilega ekki auðvelt að gera það. Maður þarf næstum að taka hvern einasta pinna og setja hann í boxið svo allt saman passi i það. Helvítis eyrnapinnar. Skráð sem: Nöldur Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 03.12.08 by steini @ 23:11
Það er algjörlega ofar mínum skilningi hvernig maður endar alltaf með ósamstæð pör af sokkum, jafnvel þótt maður taki alla sokkana úr skúffunni og endurpari þá. Mythbusters þyrftu að taka á þessu og athuga hvort hér væri um yfirnáttúrulega hluti að ræða. Skráð sem: Nöldur Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 03.12.08 by steini @ 0:43
úff, held mér hafi sjaldan liðið jafn skömmustulega og þegar þessu verkefni var skilað. Held ég hafi allavega ekki skilað svona lélegu verkefni síðan ég byrjaði hér uppfrá Stumble klikkar ekki. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur og Sniðugt stöff Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 03.11.08 by steini @ 20:47
Jæja, loksins er “vísindaferð” hér á Bifröst, reyndar þannig að Atlantsolía mætti á svæðið með bjór í stað þess að við færum í bæinn. Auk þess er meistaradeildin, pub quiz og almennt fyllerí. Í staðin fyrir að kíkja út húki ég veikur heima og reyni að staulast gegnum verkefni í opinberum fjármálum. Á föstudaginn er svo skil á 6-8bls ritgerð í alþjóðastjórnmálum auk þess að þurfa að vera með aðra kynningu. Á mánudaginn er svo skil á öllum gögnum varðandi þá kynningu og kynninguna í skoðanakönnunum sem var í gær. Talandi um rétta tímann til að vera veikur Skráð sem: Bifröst og Nöldur Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 02.26.08 by steini @ 18:17
Internet aðgangur Íslendinga við umheiminn eru algjört djók. Í þessari frétt er t.d. komið inná að Björgólfur Thor sé að fara að fjárfesta í netþjónabúi og sé búinn að gera samning við Farice uppá 80 gbit samband gegnum Farice-1 og 80 gbit aðgang gegnum Danice (sem er væntanlegur í framtíðinni). Nú þegar er Farice-1 strengurinn með getu að flytja 720gbit á sek, en er aðeins að nota 4gbit. Þetta er sérstaklega vegna þess hversu gífurlega hátt gjald er á notkun um strenginn. Það hlýtur samt að segja sig að stærsti hlutinn við kostnað stengsins er fastur kostnaður, en ekki breytilegur kostnaður og því ætti fyrirtækið að sjá sér hag í að fá fleiri á strenginn og reyna að fullnýta flutningsgetuna. En nei, það vill Farice fyrirtækið ekki gera. — Stefni á að henda nýrri getraun inn á morgun. Hægt verður að svara henni fram yfir helgi en niðurstöður verða kynntar milli 12 og 15 á mánudaginn. Skráð sem: Fréttir og Hugleyðingar og Nöldur og tölvur og nördismi Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 02.24.08 by steini @ 19:51
helvítis kirkjuklukkur. Þó það sé sunnudagur og það sé einhver voða heilagur dagur í augum kristinna (sést það ekki vel í íslensku samfélagi í dag?) þá er algjör óþarfi að vera með 10 min kirkjuklukkusóló 3-6x yfir daginn. Ef ég má ekki vera með partý og læti á nóttinni, þá á helvítis kirkjan ekki að mega vera með kirkjuklukkusóló sem heyrist í órafjarlægð þegar henni hentar. — Fyndin grein í New york magazine um fólk sem velur sér bara föt í sama litnum. Blár, hvítur, brúnn, grænn og grár. Frekar súrt, en skemmtilegt Skráð sem: Nöldur og Trúmál Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 01.26.08 by steini @ 22:28
Ákvað í kvöld að gefa spaugstofunni smá séns, enda þvílíkt mikið efni sem þeir höfðu úr að moða og meðal grínistahópur hefði ekki átt að vera í erfiðleikum með að gera sprenghlægilegan þátt. Spaugstofan náði því samt ekki og atriðin með hnífana sem voru gegnum gangandi í þættinum voru bara aldrei fyndin. — Afslöppunin sem ég ætlaði að eiga hér um helgina féll dálítið um sjálfa sig í gær þegar ákveðið var að skella sér í partý og læti. Dagurinn í dag var þeim mun erfiðari fyrir vikið. Skráð sem: Bifröst og Nöldur Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 11.26.07 by steini @ 12:38
Eigum við að fara að tala um hvað þvinganir skila venjulega miklum árangri? Eða kanski gera þær það til skamms tíma þangað til uppsöfnað ósætti þeirra sem lenda í þvingunum springur og skaðar enn meira en skaðinn var áður. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 11.01.07 by steini @ 4:58
Orðið frekar langt síðan maður hennti inn færslu hér svo ætli það sé ekki kominn tími á nýja. Vill byrja með að þakka öllum fyrir góðar kveðjur á afmælisdaginn, gaman að fá svona frá fólki. — Þá er fyrsta sería af Californication búin og ég get bara sagt að ég sé svona nokk sáttur með hvernig hún endaði. Þó að þetta hafi endað með smá væmnu dæmi, þá er bara að vona að sería 2 tækli þetta á krassandi hátt eins og þeirra er von og vísa. — Sá frétt um daginn á mbl sem mér fannst frekar asnaleg. Þar var verið að segja frá ofsaakstri einhverstaðar úti á landi og í stað þess að segja “ofsaakstur” eða “glannaakstur” eða eitthvað í svipuðum dúr, þá var sagt “methraði”. Það var svona eins og höfundur væri að segja frá því að met hefði verið slegið í hraðakstri á landsbyggðinni, en hver er svo venjulega afstaða fólks til meta? Jú að bæta þau… — Það er svo einkennilegt hvernig allt virðist reddast hjá okkur Palla. Á þriðjudaginn eftir Nanta showið sem ég talaði um hér að ofan, þá áttum við víst að vera með kynningu á ákv. umfjöllunarefni í Understanding Korean Society. Einhverra hluta vegna vorum við alveg búnir að stimpla það í hausinn á okkur að það væri ekki fyrr en næsta þriðjudag svo við vorum ekkert að stressa okkur yfir þessu þar til um morguninn þegar ég kíkti óvart á námsáætlunina og sá nöfnin okkar. Mættum svo í tímann hálf skömmustulegir til að heyra kennarann segja að hann þyrfti að fara fyrr þennan daginn og því gæfist ekki kostur fyrir allar kynningarnar og kynningin hjá mér og Palla yrði að bíða þar til í næstu viku. Já, það er gaman af þessu — Djöfull finnst mér kostulegt að fylgjast með því að verið sé að breyta biblíunni til að gera hana meira political correct fyrir nútímann auk þess að reyna að koma meira jafnræði í hana og minnka fordóma gangvart minnihlutahópum. Ætli kirkjan sé nokkuð að gera þetta vegna þeirrar tilvistarkreppu sem hún er í og vegna þess að uppgötva að fólk er að snúast gegn henni? Væntanlega. En það skrítnasta við þetta allt saman er að meðan hún reynir að höfða til nýrra hópa þá snýr hún næstum algjörlega baki við þá hvað mest trúa á guð kirkjunnar og hans boðskap og hreinlega breytir merkingum nokkurra versa. — Nýja tónlistin er svo klárlega Datarock. Þakka Steina bróðir kærlega fyrir að hafa kynnt mig fyrir þessu. Tekur smá tíma að melta, en eftir það er þetta snilld. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea og Kúltúra og Nöldur og Trúmál og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |
