|
Posted on 08.21.07 by steini @ 15:20
Úfff… Karma karma karma… er ekki frá því að það sé eitthvað til í því. Fékk nefnilega hjólið hans Valda lánað þegar hann fór og lofaði að koma því til baka með jónínu þegar hún færi. Hún fór snemma á laugardagsmorguninn og ég ákvað að nenna ekki á fætur, nota hjólið nokkra daga í viðbót og senda það svo bara með pósti. — Í fyrradag sá ég frétt í blaðinu 24 timar hér í Danmörku. Þetta er eitt af þessum fríblöðum sem er dreift í lestunum og það sem vakti athygli mína var grein um vændismarkaðinn í Svíþjóð. Því var haldið fram að þessi breyting sem hefði orðið í löggjöfinni þar (nú eru kúnnarnir glæpamenn, ekki þær/þeir sem selja sig) væri bara af hinu slæma og hefði ekki skilað neinu jákvæðu. Sem dæmi þá var það t.d. orðið mun algengara að kúnnarnir krefðust þess að vændiskonurnar færu eitthvað langt í burtu með þeim til að það væru engar líkur á að lögreglan myndi komast að þessum business, en á sama tíma verða þær mun berskjaldaðri fyrir ofbeldi af hendi kúnnans og eiga erfiðara með að fá aðstoð frá lögreglu eða öðrum. — Ég hef fundið nýjan uppáhaldsþátt. Hann heitir Californication og er með David Duchovny (úr X-files) sem rithöfundurinn Hank Moody. Hank er í einhverskonar mid-life crises og reynir að gera allt til að ná aftur í gömlu kærustuna (sem hann á eina 12 ára dóttir með). Kærastan á aftur á móti nýjan kærasta sem hún vill giftast og allt er svona frekar furðulegt. Í ofanálagi er Hank þvílíkur glaumgosi sem húkkar upp hverja stelpuna á fætur annari, en hugsar samt alltaf um gömlu kærustuna. — Var um daginn beðinn um að skrifa grein í eitthvað nýnemablað sem kemur út fyrir nýnema á bifröst. Var sagt að ég mætti skrifa um hvað sem er, um 400 orð. Er ekki enn búinn að ákeða mig almennilega hvað ég ætti að skrifa um. Er svona að velta fyrir mér hvort maður ætti að skrifa tilfinningalega þvælu um nauðsyn vinskapar þegar maður býr á svona kampus þar sem maður hittir sama fólkið over and over, eða hvort maður ætti að skrifa um nokkra áhugaverða punkta um húsnæðimál og verð á röstinni. Aðrar hugmyndir eru svo um skiptinámið, pólitík (mjög ólíklegt), ástæður þess að ég elska og hata Kant, hluti sem hægt er að gera á Bifröst, hvernig eigi að nota fjöldapóstinn með réttum hætti - þ.e. þannig að maður pirri ekki fólk og nái sem mestum árangri, til dæmis með að fá far í ríkið á fimmtudögum, eða hvort maður ætti bara að skrifa um eitthvað allt annað… hugmyndir?? — Hvar er svo helvítis vegabréfið mitt… vissi að maður ætti aldrei að treysta þessum norsurum fyrir nokkrum sköpuðum hlut - hvað þá vegabréfinu manns. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Nöldur Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 07.16.07 by steini @ 16:31
Þá er frábær veiðihelgi liðin. Þó veðrið hafi ekki verið eins og best er á kosið var samt ágæt veiði. 31 fiskur allt í allt og fínt chill með strákunum. Ný veiðiferð svo bókuð síðustu helgina í júní á næsta ári. — Næsti kúrs er svo byrjaður, Application of moral philosophy og líst mér bara mjög vel á hann. Tvö próf en engar ritgerðir. Það þýðir að föstudagarnir verða væntanlega fríir og maður getur haft langa helgi. — Mastersnemarnir eru að flytja inn þessa dagana og er einn rúmlega 50 ára kominn í sameignina. Virðist við fyrstu sýn vera vel liberal og þægilegur í umgengni. Skulum vona að það haldist út þessar 2 vikur. — Vá hvað ég er ekki að styðja eða fíla þessa hegðun Saving Iceland samtakanna. Finnst sérstaklega pirrandi þegar reynt er að búa til einhvern fjölmiðasirkus og í leiðinni að reyna að draga úr trúverðuleika lögreglunnar, sem borgarar þurfa jú að geta treyst á. Ég vil samt taka það fram að ég er ekki að segja að lögreglunni skjátlist aldrei, en svona aðgerðir sem hafa það markmið að koma illa út fyrir lögregluna finnst mér óþarfi. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Nöldur Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 07.03.07 by steini @ 10:44
Venjulega líkar mér mjög vel við tölvur. Suma daga getur þessi velvild reyndar snúist upp í andstæðu sína og það er einmitt raunin núna síðasta sólarhringinn. Á sunnudagskvöldið var tölvan í fullkomnu lagi þegar ég fór að sofa og slökkti á henni. Svo þegar ég reyndi að kveikja á henni daginn eftir var hún í svona 40 min að starta sér og náði ekki að runna upp öll forritin. Þá reyndi ég að restarta henni en það var svipað langt process. Henti því vélinni til tölvudeildarinnar og spurði hvort þeir gætu skoðað þetta. Þeir vildu meina að þetta væri vegna þess að ég hefði ekki defragmentað tölvuna í langan tíma og að það væri of mikið af gögnum inná henni. Veit ekki alveg hvort maður eigi að taka þessa skýringu alvarlega, en allavega þá var hún komin í gang seinni partinn í gær. Ákvað svo í gærkvöldi og nótt að defragmenta hin partitionin og diskana bæði í boðrvélinni og lappanum. Allt fúnkeraði vel í borðvélinni, en þegar ég vaknaði í morgun var skjárinn á lappanum með fullt af rauðum og gulum röndum (aldrei séð það áður). Þurfti þá að restarta og tölvan sýndist þá vera komin á gott ról aftur. Svo núna þegar ég kom heim úr tíma ákvað tölvan að sýna mér blue screen of death og restarta sér! Svo þegar hún restartaðist fraus vélin aftur þegar ég var að komast inní windowsið…. Já, lappinn er ekki besti vinur minn þessa stundina. Svona fyrir utan að viftan er enn í rugli þar sem Kísildalur hefur ekki enn náð að redda viftunni. Update: Svo virðist sem vandamálið hafi verið að Event viewer í windows hafi verið fullur og ekki fattað að fara að overwrite-a sig. Þannig að þegar ég loggaði mig inn á aðganginn fór windows í eitthvað kerfi þar sem það gat ekki skrifað neitt í þennan áðurnefnda event viewer. Þetta leiddi svo til þess að windows fraus alltaf þegar ég reyndi að gera eitthvað, eins og að opna forrit sem höfðu krassað þegar ég fékk blue screen of death. Sýnir kanski fram á fáránleika default stillinga kerfisins… Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.25.07 by steini @ 12:44
Helgin var frekar róleg í þetta skiptið. Var reyndar alveg fram til 3 á laugardaginn að skrifa ritgerð í heimspeki tungumálsins. Held ég hafi sjaldan skrifað ritgerð um eitthvað sem er manni jafn flókið þegar maður hugsar um það, en frekar einfalt svona fljótt á litið. Hef ekkert stórar væntingar fyrir einkunn úr þessu, en maður vonar það besta. — Skrítið með þetta vatn. Kemur bara og fer. Var ekki til fyrir 30 árum, varð svo til og er aftur horfið. — Langar svo að biðja Óla, ef hann les þetta blog, að koma því enn betur á framfæri við yfirmenn tölvudeildar mbl að þetta autoplay á video-um er algjör óþarfi. Hafa það bara valfrjálst þegar maður skoðar fréttina hvort maður vilji skoða myndskeiðið. — Smá húmor svo í lokin: Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Nöldur Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.31.07 by steini @ 14:33
Stundum þegar ég les blog á netinu langar mig óstjórnlega mikið til að missa mig í rökræðum um það málefni sem er verið að tala um. Þetta á sérstaklega við eftir að hafa verið í heimspekikúrsum og lært um siðfræði og allt það og sjá svo fólk nota orð eins og frelsi, réttlæti og sanngirni á mjög frjálslegan hátt. Ekki að ég geti fullkomlega útskýrt eða komið með rök fyrir þessu, en þá er þetta stundum svo gjörsamlega tekið úr samhengi að maður fær svona blöndu af aulahroll og djúpu andvarpi. Í mörgum tilfellum hætti ég því við að svara og fer bara að lesa annað á netinu, en stundum leyfi ég mér að missa mig svolítið, sem hefur reyndar ekki gerst lengi. Held að venjulegar samræður hérna uppfrá nægi oft á tíðum til að svala þörf minni til að rífast Aftur á móti er maður orðinn miklu meira svag fyrir svona hálf-trollum sem eru með skemmtilega kaldhæðni, skemma samt ekki umræður en eru svo í leiðinni nett sama hvað aðrir segja. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.21.07 by steini @ 19:02
það snjóaði í morgun. ég hata snjó. ég vil sumar og sól. Skráð sem: Nöldur Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 05.15.07 by steini @ 15:42
Obama að tala um trúmál. — Djöfull er pirrandi að koma heim kl 2 eftir að hafa verið að vinna verkefni, drullu þreyttur og fatta að maður á eftir að láta lak á rúmið og sængur og koddaver utan um sæng og kodda…. og í þokkabót ekki getað sofnað fyrr en kl 4 !!! Alveg jafn pirrandi að vakna í gær með þvílíkan hálsríg afþví að maður svaf eitthvað vitlaust :S Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.09.07 by steini @ 16:24
Maður getur varla skoðað moggabloggin í dag án þess að verða var við þvílíka vitfyrringu og móðursýkisköst notenda vegna lítillar fréttar sem birtist í skólablaði Princeton skóla og Mbl ákvað að slá upp sem frétt. — Jesus loves you, and shares your hatred of homosexuals and Hillary Clinton. Government should relax regulation of Big Business and Big Money but crack down on individuals who use marijuana to relieve the pain of illness. Group sex and drug use are degenerate sins unless you someday run for governor of California as a Republican. Global warming and tobacco’s link to cancer are junk science, but creationism should be taught in schools. What Bill Clinton did in the 1960s is of vital national interest, but what Bush did in the ’80s is irrelevant. Trade with Cuba is wrong because the country is communist, but trade with China and Vietnam is vital to a spirit of international harmony. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.20.07 by steini @ 21:52
Fyrsta prófið búið og 2 eftir. Kláraði í dag þjóðhagfræðina og nokkuð öruggur með náð þar og gott betur. Snæfríður var reyndar að vanda smá erfið og var búin að snúa öllum formúlum við, þannig að skjöl sem maður hafði til að setja stærðir inní urðu að engu og maður þurfti að handreikna flest allt í mikilli tímaþröng. Það var reyndar alveg í góðu lagi, kemur hugsununni vel af stað. Á morgun er svo munnlegt próf í samanburðarstjórnmálum og svo á föst er skriflegt í sögu stjórnmálahugmynda. Fæ að sleppa að taka uplýsinganotkun og talnameðferð (upta) þar sem einkunn úr skyndiprófunum dugði mér (þótt ég hafi misst af síðasta prófinu sem felldi þá einkunn smá niður..). — Eigum við að klappa smá fyrir vinstri grænum! Hvaða helvítis forræðishyggja er þetta. Þetta er þverpólitískt frumvarp (fyrir utan VG) og þeir geta alltaf hótað með málþófi. Ætla rétt að vona að fólk hugsi um þessar endalausu hótanir þeirra þegar það kýs í vor. Hugsa um kaldhæðnina þegar flokkur segist ætla að varðveita lýðræðið … bla bla bla, en traðkar svo ofan á því sí og æ. Fáránleg hræsni og ekkert annað. — Stundum getur mannskeppnan verið alveg hreint ógeðslega vond. Þetta myndband er gott dæmi um það. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 02.15.07 by steini @ 1:44
Í dag spiluðum við okkar annan leik í utandeildinni eftir áramót. Andstæðingurinn þetta skiptið var Stjarnan. Í liðinu voru gamlar kempur eins og Tommi, Eysteinn og Ingvar Árna auk nokkurra annara. Til að gera langa sögu stutta töpuðum við öðrum leiknum í röð. Núna 40-37 (eins og tölurnar gefa til kynna var varnarleikurinn ekki uppá marga fiska). Leikurinn var samt mjög kaflaskiptur. Við höfðum yfirhöndina í byrjun og vorum t.d. með 20-16 yfir í hálfleik (já þeir skoruðu 25 mörk í seinni hálfleik!!), en svo komust þeir yfir í 26-24 og 29-26, en við komumst þá í 35-32, en þeir voru sterkari í lokin og rúlluðu yfir okkur á síðustu 8 mín. — Djöfull get ég verið sammála þessum manni um þýðingar yfir tal á svona sjónvarpsútsendingum. Þetta er greinilega eitthvað sem útvarpslögin eru að klikka á þegar þau segja að það þurfi að þýða allt efni. Þetta ætti án efa að vera undanþegið. Ég allavega var fljótur að slökkva aftur á skjánum með þessa þýðingu í gangi. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: Ekkert ennþá |
| « newer posts | previous posts » |

