aðeins of mikið af hinu góða
Posted on 11.14.08 by steini @ 22:35

Hér má sjá spurningalista sem Obama lætur fyrir umsækjendur um háttsett störf sem hann mun ráða í sem næsti forseti. Þessi listi hefur víst verið viðurkenndur af þeirri nefnd sem sér um forsetaskiptin fyrir Obama þannig að þetta er ekki bara eitthvað djók. Ath, er líka birt á nytimes síðunni.

Meina hver á að geta verið í þessum stöðum meðan spurningar eins og þessi eru í listanum:

“If you have ever sent an electronic communication, including but not limited to an e-mail, text message or instant message, that could suggest a conflict of interest or be a possible source of embarrassment to you, your family, or the President-elect if it were made public, please describe.”

Hver hefur ekki gert sig af fífli eða sagt eitthvað vitlaust á netinu? Það er eins og hann sé að leita sér að starfsfólki sem hefur aldrei farið online!

“Other than from relatives, or from close and longstanding personal friends on occasions such as birthdays or seasonal holidays, have you or your spouse ever received a gift exceeding $50.00 in value? Please identify the donor, the value of the gift, the date received and the circumstances in which the gift was received.”

Ef við miðum við gamla gengið, þá er þetta um 4000 kr. Það er ekki meira en 2-3 cd diskar úti. Ekki hátt limit sem maður hefur greinilega til að fá að sækja um vinnu :)

Provide a copy of every book, article, column or publication you have authored, any speeches you have given, any testimony delivered, any resume you’ve issued.

og

“Please list all aliases or ‘handles’ you have used to communicate on the Internet.”

og

“If you keep or have ever kept a diary that contains anything that could suggest a conflict of interest or be a possible source of embarrassment to you, your family, or the President-Elect if it were made public, please describe.”

Er ekki verið að grínast ?

Hvað sem manni finnst um trú, trúarbrögð eða að peningum sé eytt í kirkjur verður það ekki tekið til baka að margar kirkjur eru mjög flottar og/eða íburðarmiklar. Hér er aftur á móti listi yfir 20 óvenjulegar kirkjur og merkilegt nokk eru 2 íslenskar kirkjur á listanum. Mæli samt með að fólk renni í gegnum þennan lista og tékki t.d. á kólumbísku kirkjunni. Hún lookar mjög töff.
Spurning hvort það ætti ekki að bæta Blöndós kirkju við á þennan lista. Og já Breiðholtskirkju, Vídalínskirkju (sem er reyndar bara ljót, ekki óvenjuleg) og Seltjarnarneskirkju.


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og Pólitík og USA
Svör: Ekkert ennþá

sitt lítið af hverju
Posted on 11.13.08 by steini @ 1:48

Merkilegt hvernig sumir fréttamenn/dálkahöfundar eigna sér efni sem aðrir hafa nýverið skrifað um. Á bls 18 í fréttablaðinu á þriðjudaginn (pdf - html)er t.d. Freyr Gígja Gunnarsson með stuttan pistil um Tékkóslóvakíu 1989 og flauelsbyltinguna og fann út úr því nýtt orð sem passar við íslenskar aðstæður “Flísbylting”. Eða var þetta kanski eitthvað sem hann tók upp hér. Fólk á endilega að skiptast á skoðunum, dreifa skoðunum og hugmyndum sem það telur vera góða eða áhugaverða, en það ætti að vera almenn vinnuregla að geta heimilda. Þetta mætu margir fréttamett taka til sín

Á sunnudaginn hélt Heimsliðið í víking til Selfoss til að etja kappi við Selfyssinga í handknattleik. Eftir mikla baráttu og framúrskarandi karakter stóðu heimsliðsmenn uppi sem sigurvegarar og lönduðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu (eftir töp gegn Víking og Júmboys). Lokatölur voru 27-28 og hálfleikstölur 17-13 (fyrir Selfoss). Þeir austanmenn náðu hæst 6 marka forystu í stöðunni 24-18, en þá fór maskínan í gang, Ástþór átti t.d. 3 heimsklassamörk - slánna inn allt saman og Heimsliðið kláraði síðustu 10-12 min leiksins með 10 mörkum gegn 3 hjá Selfoss.
Góðum sigri var svo fagnað á Kaffi Kidda Rót í Hveragerði þar sem góðum búrger var torgað.
kiddi rot

Í kvöld var svo annar leikur gegn Aftureldingu B. Í framhaldi af góðum sigri á sunnudaginn voru allir tilbúnir í annan slíkan og því var byrjað af krafti gegn Mosfellingum og strax var komist í um 5 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleik (16-11). Í seinni hálfleik misstum við reyndar aðeins einbeitingu og hleytum Aftureldingu í jafna stöðu (22-22) þegar um 15 min voru eftir. Þá var tekið stutt leikhlé, mannskapurinn róaður og strengir stilltir og uppfrá því var leiðin bara uppá við. 10 mörk gegn 2 hjá Mosfellingum og lokaniðurstöður 32-24. Heimsliðið er því komið með 4 stig af 8 mögulegum og ætti að vera í kringum 5-6 sætið þegar umferðinni verður lokið.

Segja eitthvað um hrunið? Nei, pass.

Á föstudaginn ákváðum ég, Árný, Stjáni og Sandra að skreppa uppá Bifröst og kíkja á hátíðarkvöldverð HHS deildarinnar. Halló halló, djöfull var það gaman. Nostalgía, góður matur og mikið skrall. Mjög sáttur með ferðina og þynnkulaugardag í sveitinni. Held að ég muni áfram kalla Bifröst “heima” í smá tíma, frábær staður.

Spurning hvað eigi svo að gera þessa helgi. Grill hjá Stjána, afslöppun, ræktin og heilsusamlegt húllumhæ (og reyna að vinna að því að taka við af Krumma sem aðallínumaður liðsins), bíó (Bond), djamm eða eitthvað allt annað? Held ég reyni allavega að troða Bond og ræktinni þarna einhverstaðar.

Vá hvað þetta hefði verið mikið stærri frétt ef þetta hefði gerst fyrir 2 mán síðan (þ.e. fréttin komið fram)

Það má margt gott segja um þær hugmyndir að taka upp einhliða aðra mynt en krónu hérlendis, en hefur fólk ekkert velt því fyrir sér að með tilheyrandi hækkunar lána vegna verðbólgunnar undanfarið, þá mun slæm gengisstaða gera það að verkum að hækkunin á lánum verður töluvert meiri ef farið verður út í þessar aðgerðir.
Það vantar alveg að einhver taki fyrir þessar aðferðir allar sem talað er um og listi niður kosti og galla svo fólk sjái um hvað málið snúist. Finnst eins og sumir séu fljótir á sér til að öskra strax og eitthvað nýtt kemur upp “jájá, gera þetta núna, ekkert hangs, NÚNA”, án þess að vita neitt meira um málið. Allar gjörðir íslendinga síðustu misseri hafa haft áhrif á það hvernig umheimurinn horfir á okkur. Ef það er ekki vegna skítamála í fjármálaheiminum, þá er það vegna “lauslætis” í því að finna sér vinaþjóðir og vera tilbúinn að hoppa uppí ból með hverjum sem er (ástandið einhver?).
(spurning hvort hækkun lána sé réttnefni yfir þetta, allavega er það hærri afborgun og minni kaupmáttur)

Djöfullsins, gat ekki setið á mér að nefna eitthvað tengt hruninu :)

Langar í lokin að benda á nokkra áhugaverða tengla sem maður hefur ratað á með netvafri síðustu daga: Africa, skattar í us, mcdonalds, god - a god?.

og nokkur fyndin: rational?, skrípó, kveðjur frá nördum, wtf?, us forsetar, it’s the hat, indy, fail, kandídatar, svekkjandi að sjá þetta svona


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og grín og íþróttir
Svör: 1 svar komið

207 and counting
Posted on 11.05.08 by steini @ 3:11

Nú er það sko svart.


Skráð sem: Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

hryðjuverk og kosningar
Posted on 11.02.08 by steini @ 13:56

100 handteknir í Bretlandi. Ætli meirihlutinn af þeim sé ekki frá Íslandi?

Annars er ég sammála honum Steingrími í Silfrinu. Ekki vitlaust að kjósa þegar kemur fram á vor. Held að kosningar akkúart núna séu aðeins of erfiðar og þá muni fljóttekin geðþóttaákvörðun einstaklinga ráða hvað mestu um hver verði kosin, en ekki upplýst ákvörðun þegar fleiri bein eru komin til grafar varaðndi það sem gerðist, afhverju það gerðist o.s.frv. Sjálfur mun ég allavega vandlega þurfa að íhuga hvað ég kýs næst og næstum allir flokkar standa á sama stað í huga mínum núna (fyrir utan einn) varðandi möguleika á að ég kjósi þá. Ég vil aftur á móti fá betri upplýsingar um það hverjir voru að klikka og hverjir voru að taka rangar ákvarðanir áðru en ég geri upp huga minn og kýs nýja stjórn til 4 ára. Þessi 4 ára regla einmitt hefur ups and downs. Flokkar geta tekið ákvarðanir sem eru nauðsynlegar, en ekkert gífurlega vinsælar í blöðum og annari umræðu þar sem þrýstihópar geta farið í hart. Á móti kemur að í erfiðum aðstæðum sem þessari þá halda þeir velli, svo framalega sem ríkisstjórnin haldi velli, jafnvel þótt meirihluti almennings sé ósáttur.

Það er mjög áhugavert að uppgötva í draumi að mann sé að dreyma og geta í framhaldinu ákveðið að fara að stýra atburðarásinni í draumnum og gera allskonar rugl hluti sem manni langar að gera. Það er allavega frekar funky upplifun.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

hvað er Egill að pæla?
Posted on 10.12.08 by steini @ 13:54

Sjaldan hefur maður séð Egil Helgason jafn lélegan og í Silfrinu áðan. Viðtalið við Jón Ásgeir byrjaði ágætlega og hann kom með nokkra punkta á Jón Ásgeir og sagði hann bera töluverða ábyrgð á því sem hefði gerst hérlendis. Strax og Jón Ásgeir stoppaði aftur á móti Egil og sagði að öll þeirra félög hefðu verið í skilum og að þau hefðu verið að ganga upp þegar (alþjóðlega) hrunið fór af stað, þá fór Egill bara að gagga “Þetta er þér að kenna Jón, þetta er þér að kenna”, bara á mismunandi hátt án þess að koma með nein rök fyrir því. Meðan Egill missti sig svo í góðan tíma og gaggaði bara að þetta væri allt Jón Ásgeiri og félögum að kenna hélt Jón Ásgeir sig rólegum og kom mun betur út úr viðtalinu, allavega ef miðað er við þær forsendur sem uppi eru og hvernig maður bjóst við að hann ætti varla að geta varið sig í þessu viðtali.
Það verður bara að segjast eins og er að Egill varð sér algjörlega til skammar þarna áðan í viðtali sem fyrirfram hefði átt að vera unnin orusta.


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Pólitík
Svör: 1 svar komið

af moskum og hhs djammi
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03

Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar.
Annars má fólk trúa því sem það vill fyrir mér. Það eina sem ég set algjör mörk við er að ég er ekki hlynntur því að farið verið að gera sér dómstóla eða dómskerfi fyrir mismunandi trúar/lífsskoðunar hópa og ég vil að allir lúti almennum mannréttindum og fái ekki í krafi trúarsannfæringar að kúga aðra, hvernig sem sú kúgun á sér stað. Auk þess á að ríkja gagnkvæm virðing milli fólks með mismunandi skoðanir. Ég á ekki að öskra fyrir utan kirkjur eða moskur meðan bænarhald stendur og á móti kemur að ég tel að kirkjur og moskur eigi ekki að varpa hávaða sínum utandyra þannig að heyrist í hundruða metra fjarlægð.

HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt.

Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun.


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál
Svör: 1 svar komið

pólitík og íþróttir
Posted on 08.27.08 by steini @ 10:48

Það hefur verið áhugavert að sjá marga samfylkingarmenn kvarta undan því undanfarna daga að sjálfstæðismenn séu að nýta sér sigra handboltaliðsins til að koma sjálfum sér á framfæri. Sérstaklega hefur verið rætt um Þorgerði Katrínu í þessu samhengi s.b. þessa grein. Þessu finnst mér reyndar Hafrún nokkur Kristjáns svara ágætlega á blogginu sínu og bendir þar t.d. á að Þorgerður sé ein fróðasta og mest involveraða kona landsins í handboltamálum. Að auki er hún auðvitað yfirmaður íþróttamála í landinu og því skiljanlegt að hún sé tekin í viðtal. Þessir sömu einstaklingar og hafa verið að kvarta hvað mest ættu kanski að líta sér aðeins nær, því í 24 stundum í morgun kemur fram heilsíðuauglýsing (bls 26-27) þar sem mörg fyrirtæki taka sig saman og óska handboltaliðinu til hamingju og þar dúkkar svo einnig upp nafn Samfylkingarinnar. Merkilegt nokk þá er þessi auglýsing ekki með í netútgáfu blaðsins. Það væri áhugavert að fá að vita hvað þeir sem hafa röflað mest um tengingu sjálstæðisflokksins og handboltans segi um þetta nýjasta útspil samfylkingarinnar.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík
Svör: It´s all happening! - (2)

ræður alþingismanna og “fegranir” á orðalagi
Posted on 08.27.08 by steini @ 1:10

Í dag benti Matthías Ásgeirsson í Vantrú á að ræða Guðna Ágústssonar á vef Alþingisvefsins, eins og hún kemur fyrir í textaformi, sé aðeins öðruvísi en sú sem hann hélt í ræðustól. Fyrst bjuggust menn við að þetta væri einhver yfirsjón hjá þeim sem slá inn ræðurnar, en Vísir hafði samband við Guðna og þar viðurkenndi hann að hann hafi breytt ræðunni eftir á þar sem hann taldi sig hafa gengið of langt.
Nú get ég auðvitað röflað endalaust um það hvað ég er ósammála Guðna í þessu máli, hvort sem er í ritaða textanum eða því sem hann sagði blaðlaust - finnst það bæði vera niðrandi sagt af honum, en eitt er víst að héðan í frá mun maður horfa öðrum augum á áræðanleika þess sem skrifað er á alþingisvefinn. Ef alþingismenn eða aðrir hafa ráðrúm til að breyta og hreinlega falsa heimildir um það sem þeir hafa sagt eða gert áður, þá finnst mér ansi lítið til hins háa Alþingis koma. Hvað þá að þetta gæti stangast á við hugmyndina um opna og gegnsægja stjórnsýslu.
Það er spurning hvort blaðamenn og fólk sem er að berjast fyrir ákveðnum málefnum (og fólk í heimildaleit á alþingisvefnum) þurfi núna að fara að yfirfara allar ræður sem þar eru fluttar til að vera öruggt um að það sem skrifað sé þar hafi verið sagt í raunveruleikanum, en ekki fegrað og breytt af þingmönnum seinna meir, þegar þeir telja að ummælin hafi kanski verið of hörð eða ekki við hæfi. Þessi málsgrein segir ef til vill allt sem segja þarf um starfshætti sem virðast líðast á Alþingi:

Breytingar á ræðum þingmanna, frá því að þær falla í ræðustólnum og þangað til þær enda á vefnum, eru víst algengar að sögn Guðna, enda er það réttur allra þingmanna að mega yfirfara sínar ræður. „Yfirleitt breyta menn ekki merkingunni mikið en þetta var heldur lengra en ég vildi og ég játa það.”

Fyrir utan hve rangt mér finnst það að vera að breyta ræðunum eftir á, þá fer Guðni hér vel yfir strikið og breytir hreinlega merkingu orða sinna. Ég tel annars að einhver fjölmiðillinn ætti að senda spurningalista á þingmenn og spurjast fyrir hvort þeir hafi breytt ræðum sínum og ef svo er hvort þeir geri það oft. Ég vil vita hvort þingmenn landsins komi hreint fram eður ei. Þetta hefur reyndar kanski aðeins minna vægi en mörg lygin sem sögð er, en óheiðarleiki er þetta samt og ég tel að ráðamenn þjóðarinnar eigi ekki að standa í þannig leik.

Í versta falli ætti (annars góður) alþingisvefurinn að taka það til skoðunar að hafa möguleika á að ræður þingamanna birtist óbreyttar, en þingmenn geti svo gert athugasemdir (eins og comments í word eða alíka) við punkta sem þeir telja sig hafa farið offari í eins og þessu máli

Kaldhæðni dagsins frá Denver


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

óli borgarstjóri
Posted on 07.30.08 by steini @ 21:46

Shit, er þessi maður algjör hálfviti ??? Að þessi maður sé í ábyrgðarstöðu, hvað þá að hann sé borgarstjóri er klárlega skammarlegt fyrir Íslendinga. Hann er meira að segja miklu þverari en Gunnar I. Birgisson! Það þyrfti að brýna fyrir Ólafi að það að koma inn jákvæðum lýsingarorðum dugar ekkert fyrir heilt viðtal, það þarf að koma með svör eða eitthvað bitstætt en ekki endurtaka sömu lofsrulluna aftur og aftur sem stendur svo varla á neinum grunni. Jesús Kristur, maður fær bara kjánahroll við að hlusta á þetta.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

Framsókn
Posted on 07.13.08 by steini @ 17:01

Ég skil ekki eitt varðandi íslenska pólitík. Nú er framsókn búin að vera í stjórnarandstöðu í smá tíma og miðað við allt sem hægt er að gagnrýna við núverandi ríkisstjórn og framvindu mála í þjóðfélaginu ætti nú ekki að vera erfitt að koma með sterka gagnrýni og vinna sér inn fylgi þeirra sem eru ósáttir. Þetta eiga VG og frjálslyndir auðvitað líka að vera að vinna í, en þeir flokkar hafa kanski aðeins þéttari og ákveðnari hóp á bak við sig og ná kanski ekki að höfða til svo margra utan þess hóps. En allavega, það er fullt sem hefur gerst sem stjórnarandstæðan gæti gagnrýnt dag og nótt, en það eina sem maður heyrir í þeim er eitthvað tíst sem týnist samdægurs og það kemur í umræðuna, fyrir utan að sjaldnast tekur maður eitthvað mark á framamönnum þessara flokka, það er eins og það vanti alltaf eitthvað smá edge í þá.

Afhverju hafa stjórnarandstöðuflokkarnir t.d. ekki tekið eftirfarandi málefni uppá sína arma að mikilli festu og sýnt á heildstæðan hátt hvað sé ekki í lagi og hvernig eigi að bregðast við eða laga þau (þetta er nefnilega það sem er auðveldast fyrir stjórnarandstöður, þær þurfa ekki að sýna fram á afköst í alvörunni, bara með kenningum);
ESB og Evran, efnahagsmálin, Ramses, Orkuveitan og REI, Birgismálið (fréttirnar um sjálfsmorðin), hakka fagra Ísland í sig, Baugsmálið, hátt olíuverð, framkomu lögreglunnar og svo hvernig mál þróuðust með vörubílstjórana, hvernig Saving Iceland málin fóru í fyrra, grímseyjarferjan og óhóflega bruðlið þar, menntakerfið - var nýja námskráin að gera sig?, heilbrigðis og félagskerfið - alltaf eitthvað að setja út á einstaka hluti en er ekki hægt að koma með solid upplistun á hverju stjórnarandstöðuflokkarnir vilja breyta, sundabraut, hvalveiðar, ráðningar dómara, Árni Johnsen og öryggisráðið.

Ég er reyndar ekkert ósáttur með hvernig öll þessi mál hafa þróast eða hvernig þau voru höndluð af yfirvöldum, plús að stundum er ósanngjarnt að segja að þau séu stjórninni að kenna. Þetta hafa þó allt verið umtöluð málefni þar sem fólk hefur mismunandi skoðanir og ætti að vera hægt að nýta sér til að vinna inn fylgi.

Þetta væri örugglega ekkert svo vitlaus tími til að koma og minna all svaðalega á sig og sinn flokk, koma með alsherjar gagnrýni á núverandi ástand og fá fólk í lið með sér, en nei, íslensk pólitík virkar ekki þannig, það gerist bara fyrir kosningar þegar allir lofa öllu.

Með þessu er ég þó ekki að segja að ég vilji sjá framsókn eða VG sem stóra flokka, það er bara svo rangt takíklega séð að vera ekkert að gera almennilegt á þessum tíma. Örugglega ekkert of erfitt að komast að í fréttum og ef þetta væri eitthvað alvöru, þá héldist þetta örugglega í töluverðan tíma í umræðunni. Auk þess er það jú verk stjórnarandstöðunnar að halda stjórninni við efnið með því að sækja að henni og knýja þar með stjórnina til að standa sig svo þau missi ekki stólana í næstu kosningum. Það verður nefnilega ekkert tekið af ríkisstjórninni að hún er töluvert búin að vera að skíta uppá bak og svo virðast átök innan ríkisstjórnarinnar vera nokkur þannig að hún ætti að vera veik fyrir góðu áhlaupi sem vönduð og heilsteypt gagnrýni myndi valda.

Til að eitthvað þessu líkt gengi upp þyrftu þó framsóknarmenn að verða aðeins samheldnari og skipta um formann og koma með einhvern sem stór hluti þjóðarinnar gæti hugsað sér að gúddera. Það er ekki að gerast með honum Guðna.

Ég gæti t.d. alveg séð þetta fyrir mér sem heilsteypta áætlun sem væri svo skipt niður eftir ráðuneytum og flokkurinn myndi taka eina viku í að kynna og koma á framfæri hverjum málaflokk fyrir sig. Þá gætu þeir örugglega hámarkað áhuga fréttamanna, alltaf komið með eitthvað nýtt og haldið sér í umræðunni í góðan tíma.

Þetta verður samt örugglega eitthvað sem við munum seint sjá í íslenskri pólitík.

Neytendahetja dagsins. Djöfull hefur mig lengi langað til að gera þetta. Var alltaf alveg nóg af útrunnum vörum í Hagkaup, þó það væri alltaf verið að fara í gegnum hillur og standa, það fer alltaf slatti framhjá manni. Væri gaman að sjá hvernig þetta er í búðum sem pæla lítið eða ekkert í því að taka úr hillunum útrunnið dót. Ekki frá því að maður plebbist einhverntíman til að gera eitthvað líkt þessu :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér