ræður alþingismanna og “fegranir” á orðalagi
Posted on 08.27.08 by steini @ 1:10

Í dag benti Matthías Ásgeirsson í Vantrú á að ræða Guðna Ágústssonar á vef Alþingisvefsins, eins og hún kemur fyrir í textaformi, sé aðeins öðruvísi en sú sem hann hélt í ræðustól. Fyrst bjuggust menn við að þetta væri einhver yfirsjón hjá þeim sem slá inn ræðurnar, en Vísir hafði samband við Guðna og þar viðurkenndi hann að hann hafi breytt ræðunni eftir á þar sem hann taldi sig hafa gengið of langt.
Nú get ég auðvitað röflað endalaust um það hvað ég er ósammála Guðna í þessu máli, hvort sem er í ritaða textanum eða því sem hann sagði blaðlaust - finnst það bæði vera niðrandi sagt af honum, en eitt er víst að héðan í frá mun maður horfa öðrum augum á áræðanleika þess sem skrifað er á alþingisvefinn. Ef alþingismenn eða aðrir hafa ráðrúm til að breyta og hreinlega falsa heimildir um það sem þeir hafa sagt eða gert áður, þá finnst mér ansi lítið til hins háa Alþingis koma. Hvað þá að þetta gæti stangast á við hugmyndina um opna og gegnsægja stjórnsýslu.
Það er spurning hvort blaðamenn og fólk sem er að berjast fyrir ákveðnum málefnum (og fólk í heimildaleit á alþingisvefnum) þurfi núna að fara að yfirfara allar ræður sem þar eru fluttar til að vera öruggt um að það sem skrifað sé þar hafi verið sagt í raunveruleikanum, en ekki fegrað og breytt af þingmönnum seinna meir, þegar þeir telja að ummælin hafi kanski verið of hörð eða ekki við hæfi. Þessi málsgrein segir ef til vill allt sem segja þarf um starfshætti sem virðast líðast á Alþingi:

Breytingar á ræðum þingmanna, frá því að þær falla í ræðustólnum og þangað til þær enda á vefnum, eru víst algengar að sögn Guðna, enda er það réttur allra þingmanna að mega yfirfara sínar ræður. „Yfirleitt breyta menn ekki merkingunni mikið en þetta var heldur lengra en ég vildi og ég játa það.”

Fyrir utan hve rangt mér finnst það að vera að breyta ræðunum eftir á, þá fer Guðni hér vel yfir strikið og breytir hreinlega merkingu orða sinna. Ég tel annars að einhver fjölmiðillinn ætti að senda spurningalista á þingmenn og spurjast fyrir hvort þeir hafi breytt ræðum sínum og ef svo er hvort þeir geri það oft. Ég vil vita hvort þingmenn landsins komi hreint fram eður ei. Þetta hefur reyndar kanski aðeins minna vægi en mörg lygin sem sögð er, en óheiðarleiki er þetta samt og ég tel að ráðamenn þjóðarinnar eigi ekki að standa í þannig leik.

Í versta falli ætti (annars góður) alþingisvefurinn að taka það til skoðunar að hafa möguleika á að ræður þingamanna birtist óbreyttar, en þingmenn geti svo gert athugasemdir (eins og comments í word eða alíka) við punkta sem þeir telja sig hafa farið offari í eins og þessu máli

Kaldhæðni dagsins frá Denver


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

óli borgarstjóri
Posted on 07.30.08 by steini @ 21:46

Shit, er þessi maður algjör hálfviti ??? Að þessi maður sé í ábyrgðarstöðu, hvað þá að hann sé borgarstjóri er klárlega skammarlegt fyrir Íslendinga. Hann er meira að segja miklu þverari en Gunnar I. Birgisson! Það þyrfti að brýna fyrir Ólafi að það að koma inn jákvæðum lýsingarorðum dugar ekkert fyrir heilt viðtal, það þarf að koma með svör eða eitthvað bitstætt en ekki endurtaka sömu lofsrulluna aftur og aftur sem stendur svo varla á neinum grunni. Jesús Kristur, maður fær bara kjánahroll við að hlusta á þetta.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

Framsókn
Posted on 07.13.08 by steini @ 17:01

Ég skil ekki eitt varðandi íslenska pólitík. Nú er framsókn búin að vera í stjórnarandstöðu í smá tíma og miðað við allt sem hægt er að gagnrýna við núverandi ríkisstjórn og framvindu mála í þjóðfélaginu ætti nú ekki að vera erfitt að koma með sterka gagnrýni og vinna sér inn fylgi þeirra sem eru ósáttir. Þetta eiga VG og frjálslyndir auðvitað líka að vera að vinna í, en þeir flokkar hafa kanski aðeins þéttari og ákveðnari hóp á bak við sig og ná kanski ekki að höfða til svo margra utan þess hóps. En allavega, það er fullt sem hefur gerst sem stjórnarandstæðan gæti gagnrýnt dag og nótt, en það eina sem maður heyrir í þeim er eitthvað tíst sem týnist samdægurs og það kemur í umræðuna, fyrir utan að sjaldnast tekur maður eitthvað mark á framamönnum þessara flokka, það er eins og það vanti alltaf eitthvað smá edge í þá.

Afhverju hafa stjórnarandstöðuflokkarnir t.d. ekki tekið eftirfarandi málefni uppá sína arma að mikilli festu og sýnt á heildstæðan hátt hvað sé ekki í lagi og hvernig eigi að bregðast við eða laga þau (þetta er nefnilega það sem er auðveldast fyrir stjórnarandstöður, þær þurfa ekki að sýna fram á afköst í alvörunni, bara með kenningum);
ESB og Evran, efnahagsmálin, Ramses, Orkuveitan og REI, Birgismálið (fréttirnar um sjálfsmorðin), hakka fagra Ísland í sig, Baugsmálið, hátt olíuverð, framkomu lögreglunnar og svo hvernig mál þróuðust með vörubílstjórana, hvernig Saving Iceland málin fóru í fyrra, grímseyjarferjan og óhóflega bruðlið þar, menntakerfið - var nýja námskráin að gera sig?, heilbrigðis og félagskerfið - alltaf eitthvað að setja út á einstaka hluti en er ekki hægt að koma með solid upplistun á hverju stjórnarandstöðuflokkarnir vilja breyta, sundabraut, hvalveiðar, ráðningar dómara, Árni Johnsen og öryggisráðið.

Ég er reyndar ekkert ósáttur með hvernig öll þessi mál hafa þróast eða hvernig þau voru höndluð af yfirvöldum, plús að stundum er ósanngjarnt að segja að þau séu stjórninni að kenna. Þetta hafa þó allt verið umtöluð málefni þar sem fólk hefur mismunandi skoðanir og ætti að vera hægt að nýta sér til að vinna inn fylgi.

Þetta væri örugglega ekkert svo vitlaus tími til að koma og minna all svaðalega á sig og sinn flokk, koma með alsherjar gagnrýni á núverandi ástand og fá fólk í lið með sér, en nei, íslensk pólitík virkar ekki þannig, það gerist bara fyrir kosningar þegar allir lofa öllu.

Með þessu er ég þó ekki að segja að ég vilji sjá framsókn eða VG sem stóra flokka, það er bara svo rangt takíklega séð að vera ekkert að gera almennilegt á þessum tíma. Örugglega ekkert of erfitt að komast að í fréttum og ef þetta væri eitthvað alvöru, þá héldist þetta örugglega í töluverðan tíma í umræðunni. Auk þess er það jú verk stjórnarandstöðunnar að halda stjórninni við efnið með því að sækja að henni og knýja þar með stjórnina til að standa sig svo þau missi ekki stólana í næstu kosningum. Það verður nefnilega ekkert tekið af ríkisstjórninni að hún er töluvert búin að vera að skíta uppá bak og svo virðast átök innan ríkisstjórnarinnar vera nokkur þannig að hún ætti að vera veik fyrir góðu áhlaupi sem vönduð og heilsteypt gagnrýni myndi valda.

Til að eitthvað þessu líkt gengi upp þyrftu þó framsóknarmenn að verða aðeins samheldnari og skipta um formann og koma með einhvern sem stór hluti þjóðarinnar gæti hugsað sér að gúddera. Það er ekki að gerast með honum Guðna.

Ég gæti t.d. alveg séð þetta fyrir mér sem heilsteypta áætlun sem væri svo skipt niður eftir ráðuneytum og flokkurinn myndi taka eina viku í að kynna og koma á framfæri hverjum málaflokk fyrir sig. Þá gætu þeir örugglega hámarkað áhuga fréttamanna, alltaf komið með eitthvað nýtt og haldið sér í umræðunni í góðan tíma.

Þetta verður samt örugglega eitthvað sem við munum seint sjá í íslenskri pólitík.

Neytendahetja dagsins. Djöfull hefur mig lengi langað til að gera þetta. Var alltaf alveg nóg af útrunnum vörum í Hagkaup, þó það væri alltaf verið að fara í gegnum hillur og standa, það fer alltaf slatti framhjá manni. Væri gaman að sjá hvernig þetta er í búðum sem pæla lítið eða ekkert í því að taka úr hillunum útrunnið dót. Ekki frá því að maður plebbist einhverntíman til að gera eitthvað líkt þessu :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

þakkir
Posted on 04.05.08 by steini @ 20:59

eftirtaldi aðilar/hlutir fá sérstakar þakkir vegna viknanna sem voru að líða með tilheyrandi prófalestri, pirringi og vonleysi á köflum. Þetta er það sem gerði að verkum að maður hélt geðheilsunni og er bara þreyttur núna eftir prófin en ekki algjör taugahrúga.

    Júlli fyrir að lána mér góð headphones yfir allar vikurnar.

    Magnús fyrir að benda mér á þetta video þegar maður var alveg að fara yfir um.

    Another late night og Late night tales seríurnar auk Deck Safari diskanna sem eru einhver besta læru-tónlist sem maður getur fundið. Late night tales með Flaming lips og Groove armada voru sérstaklega öflugir.

    Air, guðdómleg tónlist sem maður getur notað til að ýta öllu öðru í burtu og fókusa á lærdóminn.

    Grétar kennari fyrir gott email (sjá neðar).

Prófin gengu annars bara ágætlega, 3 munnleg og 2 skrifleg. Er ósáttur með frammistöðuna í einu prófanna, en það er vegna þess að ég átti að vita allt um efnið. Gekk annars mjög vel í 2 prófum og ágætlega/vel í 2 öðrum.
Næst er svo bara morgunverðafundur með Al Gore á þriðjudaginn, 2 vikur að skrifa missó, 1 vika í málsvarnir og svo 2x þriggja eininga kúrsar á sumarönn áður en ég fer í BA skrif. Bíst við að taka eftirfarandi kúrsa á sumarönninni:

Trúarbrögð og stjórnmál:
Umsjón: Brenda Shaffer, prófessor við University of Haifa

Námskeiðslýsing:
This course will examine the role of religion and culture in international politics. It will focus on the approaches of the international relations disciple to religion and culture and the impact of religion on modern conflicts. The course will examine the role of Islam as an explanatory factor for policies of Muslim-majority states versus other explanatory variables, such as oil export. The course will analyze a number of case studies: Middle East, Iran, Caspian region, Turkey, and Afghanistan. The course will be especially of interest to students focusing on international relations, Middle East studies and the region of the former Soviet Union. In addition, the course will aim to develop academic writing skills.

Lesefni: Greinar úr Brenda Shaffer (ritstj.) Limits of Culture: Islam and Foreign Policy (Cambridge, MA: MIT Press, 2006)

og svo kostnaðar og nytjagreining. Shit hvað mér líst samt vel á fyrri kúrsinn. Það virðast reyndar vera mismunandi skoðanir á henni og bókunum sem hún skrifar, en ég vona að það muni bara leiða til meira dýnamískra tíma þar sem allir vilja mæta til að kynnast hennar hlið vel svo hægt sé að samsinna henni eða gagnrýna í verkefnatímum. 75% lokaritgerð hljómar líka ágætlega fyrir svona kúrs. Maður fær að kynna sér eitt efni rosalega vel og skoða það ofan í kjölinn (eða allavega frekar vel).

Flott að þetta sé komið á hreint. Reyndar verður maður að hafa í huga að það sem er næst fólki í tíma er líka það sem er því næst í hugsun. Engu að síður ættu þessir menn að vera einna færastir að setja hluti í sögulegt samhengi og velja. Og þó það væri töluverð skekkja í þessu og jafnvel þó þessi tala lækkaði niður í 50%, þá hlýtur þetta að teljast frekar slæmt fyrir hann tvöfalt vaff Bush.

Þetta hljómar vel. Ef einhver á pening og langar að gefa mér eitthvað, má sá hinn sami kaupa svona miða.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og Pólitík og USA
Svör: 1 svar komið

andríki
Posted on 04.03.08 by steini @ 15:10

Las yfir nýjasta helgarsprokið á andríkisvefnum. Rosalega getur sumt frjálshyggjufólk verið íhaldssamt. Maður hefði haldið að það væri víðsýnna og framsæknara en þessi grein gefur til kynna. Einnig að einhver rök fælust á bakvið greinarnar hjá þeim eftir 12 ár á vefnum og oft á tíðum ágætis skrif. Þessi grein er þó algjör undantekning þar á. Ætlaði að gagnrýna sérstaklega tvö atriði varðandi greinina, en sá svo að Matti á Vantrú var búinn að fiska þau upp einnig.
Skil ekki hvað andrískimenn sjá athugavert við setninguna “Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi.” sem kemur í stað “Starfshættir skólans skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi.”
Segir fyrri setningin ekki á nákvæmari hátt hvað skuli vera viðmiðin? Kristilegt siðgæði er hreinlega of vítt hugtak sem segir okkur á mjög takmarkaðan hátt hvað sé verið að leitast eftir.
Einnig virðast þeir Andríkismenn hafa lokað augunum fyrir þeim umræðum sem urðu í lok síðasta árs og svo fyrir 1-2 árum varðandi heimsóknir presta og djákna í grunn og leiksskóla og gera ekki greinarmun á fræðslu og boðun.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík og Trúmál
Svör: Ekkert ennþá

Anarkismi - aftaka.org
Posted on 03.16.08 by steini @ 23:49

Mæli með að fólk kíki á þessar síður:
Aftaka.org
Moggablot sömu samtaka
Hér er info um félagið og hér er manifesto-ið þeirra. Finnst alveg merkilegt að þau séu að trúa á þessar aðgerðir sínar. Skil alveg að sumir séu ósáttir við framgang mála á alþjóðavísu, framgang Íslendinga í sumum málefnum, það hvernig kapitalisminn er ríkjandi í samfélaginu o.s.frv., en hvað eru þau eiginlega að meina með svona eyðileggingum á eignum annara? Styðja að það sé krotað á sendiráð, málað á veggspjöld o.s.frv. Eins og ég sagði, ég skil alveg að vilja mótmæla meðferð Kínverja á Tíbetum og öðrum mannréttindabrotum sem framin eru, þó ég styðji ekki þessar aðferðir sem hafðar eru frammi. En með þessari uppreisn sinni gagnvart kapitalismanum og árásum á auglýsingaskilti, hvar vilja þau draga mörkin? Þau gefa sig fram sem anarkisma og segja: “Við höfnum og stígum á öll grunngildi sem ættleidd eru úr dönsku þingræði, amerískri frjálshyggju og tvöþúsund ára krossfestingu.”
Hver eru öll grunngildi danska þingræðisins og amerísku frjálshyggjunnar? Er eignarrétturinn kanski sterkur í því síðarnefnda? Finnst það mjög líklegt. Væri þessum sömu einstaklingum þá sama ef eignarréttur þeirra á eigin húsnæði væri vanvirtur og maður færi að krota á eða brenna það? Eða má bara ráðast á stórfyrirtæki?
Að sama skapi finnst mér hugmyndin um vörn fyrir ungdomshuset vera fáránleg. Meina afhverju áttu ungir róttæklingar að hafa afnot af því? Anarkistar voru hluti þess fólks sem hafði afdrep þarna. Væri það ekki í átt að þeirra hugsun ef einhver sterkari en hópurinn sjálfur kæmi og myndi taka húsið í stríði við hina, þar sem enginn eignarrétturinn ætti að vera? Eða virkar eignarrétturinn kanski á eigur þess sem styðja anarkismann? Finnst þetta því miður hálf barnalegt hjá þessum einstaklingum.

Verð samt að segja að ég hef alltaf verið smá svag fyrir anarkisma, finnst þetta mjög skemmtileg hugmynd og allt það, mun skemmtilegri útópísk hugmynd heldur en kommúnisminn, en maður gerði sér fljótlega grein fyrir því anarkisminn mun aldrei ganga alveg upp vegna eins veigamikils þáttar. Skapgerðar, mismunandi hugmynda og eiginhagsmuna manneskjunnar.

Það sést ágætlega hér hver var besti vinur minn í síðustu viku. Air gjörsamlega bjargaði erfiðri viku. Einnig verður kamillutei þakkað fyrir að róa taugarnar (og hálsinn).


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Netið og Pólitík
Svör: It´s all happening! - (5)

ksí fram úr áætlun
Posted on 03.07.08 by steini @ 18:30

Geir segist (auk fleiri) bera ábyrgð á aukakostnaði við framkvæmdir KSÍ. Okey… en hvað svo? Er það bara “sorry” og svo er málið dautt? Ég skal alveg taka á mig allar ábyrgð heimsins ef ég gæti bara sagt eitt sorry og svo eru engir eftirmálar. Við erum að tala um tæpan hálfan milljarð fram úr áætlun og það er bara sagt sorry! Hvað var það annars sem kostaði svona mikið, fyrirmannastúkan eða var það einhver annar ófyrirsjáanlegur hlutur?
Ef ég væri Reykvíkingur væri ég furious (ísl. hamstola) yfir þessu.


Skráð sem: Fréttir og Pólitík
Svör: 1 svar komið

talningavélar
Posted on 02.17.08 by steini @ 14:33

Hvað á oft að þurfa að gagnrýna og finna veikleika við kosninga/talninga vélarnar í US til að það verði komið á betra kerfi? Hér er eitt dæmið enn um það hvað þessar vélar virðist oft vera annaðhvort illa forritaðar eða þá að þær séu forritaðar með slæmum vilja. Svona á ekki að geta komið upp í vél sem einungis fær skipun um að segja já við valmöguleika 1 eða valmöguleika 2 (eða kanski 5 valmöguleika).
Verst var þetta auðvitað í forsetakosningunum þegar vélin prentaði ekki einu sinni út miða svo hægt væri að staðfesta talninguna.


Skráð sem: Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

Myndir og fleira
Posted on 02.09.08 by steini @ 16:55

hummm… hvað er maður að gera þessa dagana. Var að skila inn umsókn um BA ritgerðina (skil í ágúst) í gær. Svo er það bara þetta venjulega, læra og skemmtanir. Var einmitt grímuball á fimmtudaginn og ég ákvað að klæðast upp í Kóreska þjóðbúninginn. Mjög gott kvöld, en vegna mikillar þreytu var farið snemma í háttinn. Erum svo að læra um fjálshyggjuna í stjórnmálaheimspeki þessa dagana. Mjög gaman að fá aðeins víðsýnari sýn á kosti og galla við þessa stefnu.

Þetta er ein af ástæðunum afhverju mér finnst RIAA vera algjört rusl og tek lítið sem ekkert mark á þeim.

Þessi bók sem hér er gagnrýnd hljómar alveg yndislega í eyrum mínum. Minnir óneitanlega mikð á bókina Ár hérans eftir Arto Paasilinna, sem er auðvitað snilldarverk út í eitt. Þessi bók verður allavega sett á listann yfir bækur sem ég stefni á að lesa.

Rosalega þykja mér annars fréttir vera leiðinlegar þessa dagana. Bara eitthvað um slæmt veður og REI málið og innkomu Villa í þau mál. Hendið bara Villa frá borði, klárið þetta mál og farið að tala um eitthvað nýtt. Það er alveg á hreinu að sjallar munu skíttapa fylgi ef þeir fara ekki að hugsa af viti hvað þeir eigi að gera með gamla manninn.
Eina viturlega sem kemur annars fram um þessi REI mál kemur svo frá bæjarstjórn Akranes. Þetta er svona eins og eftirtektasami ferðamaðurinn sem sér gallana í samfélagi þar sem borgararnir hafa orðið svo samdauna ríkjandi ástandi að þeir sjá ekkert skrítið við það.

Hér eru svo myndirnar frá Thailandi loksins:
Ferð til Phi Phi eyja
Myndir frá Phuket
Bangkok 1
Bangkok 2
Ferð til Temple of Tigers
Ferð í þjóðgarð, ferð í uxakerru og á fílsbak
Veiðiferð á aðfangadag


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Myndir og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

sóknargjöld
Posted on 01.29.08 by steini @ 18:36

Þetta skref Kristjáns er vissulega góðs viti, þarna er verið að reyna að minnka mismununa. Aftur á móti hlýtur fólk að sjá að þarna er aðeins verið að laga eina mismununina, meðan önnur heldur áfram að vera til, þ.e. að trúlausir þurfi að borgar sóknargjöld þegar þeir eru ekki í neinum sóknum. Skora á Kristján og aðra alþingismenn að ganga skrefinu lengra og afnema að fólk skráð utan trúfélaga sé látið borga þennan skatt.

edit: Svo ég haldi nú aðeins áfram. Mæli með að sem flestir kíki á þetta skjal. Þetta er sundurliðun á útgjöldum úr ríkissjóð til ríkiskirkjunnar.
4.700.700.000 ISK á ári !!! Með öðrum orðum næstum 5 milljarðar. Það væri ansi mikið hægt að gera við þá peninga.


Skráð sem: Pólitík og Trúmál
Svör: It´s all happening! - (4)

« newer posts previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
kvikmyndir
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
allt í volli
fullir ökumenn
árið 2008 í stuttu máli
jólagjöf
áhugavert myndasafn og tónleikar.
staður, stund og ímynd
skókast
full-control zone í N-Kóreu
steve jobs í kringlunni áðan
Fínt föstudagskvöld og hörmuleg W
blússandi góðæri í skeifunni
það vilja allir kosningar strax, vilji þjóðarinnar !!!
merkilegur prestur
kaupþing að gera það gott í Sviss, setja met og svona
takmarkið

Eldra efni
January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér