Kóala-quiz #4 - svör
Posted on 05.15.08 by steini @ 1:06

Jæja hér eru svörin við getrauninni:

#1 Hljómsveitin er Chumbawamba með lagið Amnesia og sveitin kom fram á Reykjavík Music festival sem var haldin í Laugardalnum hérna fyrir nokkrum árum

#2 Söngkonan er Regina Spector með lagið On the Radio. Stefnan sem hún er venjulega kennd við er Anti-folk og með vinsældum myndarinnar Juno og soundtrackinu úr þeirri mynd fékk sú stefna töluverða umfjöllun.

#3 Hér eru það Flaming Lips sem taka Seven Nation Army eftir White stripes og covera það. (hægt að finna það á Late night tales: Flaming lips disknum.

#4 Everyday is like Sunday með meistara Morrissey

#5 Hollenska sveitin Shocking Blue með lagið Venus

#6 Led Zeppelin og lagið Thank you, en það lag hefur einmitt verið coverað af Flaming lips

#7 Hér er U2 á tónleikum að spila Paint it Black eftir Rolling Stones og það var hann Bono sem átti afmæli á dögunum.

#8 Van McCoy er hér með lagið The Hustle

#9 Þetta er hljómsveitin Cornershop með lagið Norwegian Wood (sem er einmitt Beatles cover). Þau tengjast Brighton auðvitað gegnum hinn frábæra son Brighton, FatBoy Slim, en hann remixaði lagið Brimful of Asha og gerði að miklum slagara. Persónulega finnst mér það lag þó ekki vera nærri besta lagið með Cornershop. Morrissey tengist svo sveitinni með því að hljómsveitarmeðlimir Cornershop brenndu myndir af honum fyrir utan EMI höfuðstöðvarnar þegar hann neitaði því ekki að vera rasisti.

#10 Hér var spurt um lagið Can I Kick It? með A Tribe Called Quest, en samplið er tekið úr laginu Take a walk on the wild side með Lou Reed.

#11 Spilverk þjóðanna með Sirkus Geira smart.

#12 Primal Scream og lagið Come together

#13 Súrefni og You are moving too fast. Greinilegt að maður spyr ekki aftur um súrefni í þessari keppni vegna tengsla Magnúsar við umrædda sveit :)

Úrslit þessara keppni fóru á þennan veg:
Júlli 24 stig.
Magnús 22 stig.
Þórður 18 stig.
Róbert 11 stig.
Hjalti 7 stig.
Himmi 6 stig.
Stjáni 1 stig.

Samanlagður stigafjöldi eftir keppnina er þá eftirfarandi og Maggi því kominn með forystu!

Magnús 75 stig.
Þórður 74 stig.
Júlíus 67 stig.
Róbert 29 stig
Ebbi 16 stig.
Ísak 15 stig.
Hjalti 7 stig.
Himmi 6 stig.
Stjáni 1 stig.

Vona að þetta hafi reynt aðeins á fólk.


Skráð sem: quiz
Svör: Ekkert ennþá

Kóala-quizið #4
Posted on 05.13.08 by steini @ 17:23

Fjórða getraunin loksins komin inn. Mikið var. Allavega, í dag er þriðjudagur og ég ætla bara að hafa stuttan svaratíma fyrir getraunina í þetta skiptið. Á morgun á miðnætti (00:00 milli miðvikudags og fimmtudags) er lokafrestur til að senda inn svör. Í þetta skiptið eru spurningarnar töluvert margar, 13 talsins og stigin samtals 31. Hér getur því score-ið breyst milli keppna ef fólk er að standa sig ágætlega. Ekkert theme í þessu, en það er samt slatti af one hit wonder lögum og svo eitthvað af coverum.
Minni á að það á að svara í commentakerfið, en ég mun hafa það þannig að ég þurfi að samþykkja öll comment svo fólk sér ekki önnur komment en sín eigin fyrr en keppninni er lokið.
Góða skemmtun!

Spurning #1:
Þessi hljómsveit myndi venjulega flokkast undir one-hit-wonder sveit, en engu að síður hafa þau gefið út allavega 4 lög sem hafa fengið töluverða spilun. Lagið sem spurt er um er einmitt eitt af þessum þremur lögum, en samt ekki hið lang þekktasta lag. Mætti segja að hljómsveitinni svipi til Nada Surf að því leiti til að þótt þau hafi bara átt 1 lag sem náði alþjóða hylli, þá hafa þau starfað saman í langan tíma og eru enn starfandi í dag (þessi sveit hefur samt verið starfandi um 10 árum lengur en Nada Surf). Hljómsveitin kom og hélt tónleika hérlendis fyrir nokkrum árum á tónlistarhátíð og stóð sig bara hreint ágætlega. Spurt er um nafn sveitarinnar, nafn lags og nafn hátíðarinnar sem hljómsveitin spilaði á hérlendis. (3 stig)

Spurning #2:
Tónlistarkonan sem á þetta lag hefur verið að vinna sig inn síðustu árin og er orðin miðlungs stórt nafn úti í henni Ameríku. Hefur verið talin sem ein af stóru nöfnunum í tónlistarstefnu sem hefur verið nokkuð vinsæl síðustu árin og fékk einmitt töluvert boost á síðasta ári. Tónlistarkonan hefur t.d. gefið það upp að öll lögin hennar séu frábrugðin hvert öðru og því sé erfitt fyrir hana að flokka sig í einhvern flokk tónlistarlega séð. Hver er tónlistarkonan, hvert er lagið og hvað varð til þess að auka hróður þessarar tónlistarstefnu á síðasta ári? (3 stig)

Spurning #3:
Þetta er lag sem allir ættu að þekkja, en hér er það coverað af annari hljómsveit sem hefur lengi verið í bransanum. Hvert er lagið og hver er að covera það hér? (2 stig)

Spurning #4:
Hvaða meistari á þetta lag og hvert er lagið? (2 stig)

Spurning #5:
Hollensk tónlist er ekki alltaf í sviðsljósinu, en þessi sveit kom með nokkra slagara í lok 7-unda áratugarins og byrjun þess 8-unda. Þetta lag var samt by far vinsælasta lagið þeirra. Hver er sveitin og hvert er nafnið á laginu? (2 stig)

Spurning #6:
Þessa tóna ættu flestir að kannast við. Hvert er lagið og hver er sveitin? Því má bæta við að önnur sveit sem spurt er um hér að framan hefur einnig coverað þetta lag. (2 stig)

Spurning #7:
Þetta er mjög svo þekkt lag, þannig að ekki er spurt um það. Ég vil aftur á móti fá að vita hvaða sveit það er sem er að leika lagið á þessari upptöku. Söngvari sveitarinnar hefur einnig verið smá í fréttum síðustu vikuna og því er einnig leitað að ástæðum þess. (2 stig)

Spurning #8:
Lítið hægt að segja um þennan tónlistarmann. Annað dæmið um one-hit-wonder. Hann má þó eiga það að hann var meira en bara tónlistarmaður. Hann hljóðblandaði og tók upp fyrir mörg af stóru nöfnunum á þessum tíma, en verður þó væntanlega alltaf þekktastur fyrir þennan slagara. Hver er höfundurinn og hvert er lagið. (2 stig)

Spurning #9:
Verð alltaf smá pirraður þegar ég heyri lög með þessari sveit vegna þess að ég rétt missti af tónleikum með sveitinni í Brighton fyrir um 7 árum síðan, en þá var þessi sveit í miklu uppáhaldi hjá mér. Stíll sveitarinnar er auðþekkjanlegur og ætti væntanlega að koma upp um hana strax. Sveitin er enn starfandi í dag eftir rúmlega 15 ára spilamennsku og virðist ekki vera á þeim buxunum að hætta. Eitt lag sveitarinnar og diskurinn sem það lag var á hefur næstum fest one hit wonder stimpilinn við hljómsveitina, en ég vil meina að það sé mun meira við þá en einungis að lag. Hér er spurt hvert sé nafn sveitarinnar, nafn lagsins, auk þess sem spurt er um tengingu sveitarinnar við Brighton (annað en gegnum mig og að þeir hafi spilað þar) og hver tenging sveitarinnar við tónlistarmanninn í spurningu nr 4 er. (4 stig)

Spurning #10:
Hver er hljómsveitin sem samdi þetta frábæra lag, hvert er lagið og úr hvaða öðru lagi er samplið (takturinn) tekinn? (3 stig)

Spurning #11:
Þessi kafli er í lok nokkuð þekkts lags. Hvert er lagið og hver er hljómsveitin? (2 stig)

Spurning #12:
Hljómsveitin sem spilar þetta lag hefur farið víða. Indie-pop, acid, alternative rock o.s.frv. Þetta lag er af þeirra þekktasta disk. Allavega af þeim disk sem kom þeim almennilega á kortið og gerði þá hálf mainstream. Síðan þá hefur margt gerst og forsprakki sveitarinnar gerst pólitískari og pólitískari. Hann hefur t.d. látið út úr sér, þegar rætt var um útrýmingu fátæktar, að það ætti að útrýma Ísrael. Hver er sveitin og hvert er lagið? (2 stig)

Spurning #13:
Íslenskt já takk! Árið er 1997, en hver er hljómsveitin og hvert er lagið? (2 stig)


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (15)

quizið
Posted on 05.12.08 by steini @ 22:51

Jæja, ég mun loksins á morgun henda inn fimmtu tónlistargetrauninni. Fylgist með.


Skráð sem: quiz
Svör: Ekkert ennþá

svör við númer 3
Posted on 03.17.08 by steini @ 23:36

Jæja, þá loka ég á svörun við þessu quizzi. Þetta reyndist fólki greinilega aðeins erfiðara en síðast og voru sumir jafnvel á því að sleppa að svara vegna getuleysis. Úrslit voru aftur á móti eftirfarandi:
Þórður: 18/22
Magnús: 15/22
Júlli: 8/22
Róbert: 2/22

Rétt svör voru svo:

#1: The Flaming Lips - Race for the Prize
#2: Beck - Cold Brains
#3: Purrkur Pillnikk - Draumur
#4: Scissor Sisters - Get it Get it. Það sem þetta lag auk The Skins sker sig úr öðrum lögum á sama disk vegna þess að þessi lög eru titluð sem aukalög.
#5: Stereo Mc’s - Connected
#6: Led Zeppelin - The Crunge. coverið er af nöktum börnum sem eru að klífa upp kletta og eiga að tákna mannkynið efnislega að einhverju leiti. Nóg að segja samt nakin börn að klífa kletta/fjall….
#7: Status Quo - In the Army Now
#8: Queen - Mother Love, Brian May. Freddy var alveg á síðustu metrunum þarna og hafði því ekki orkuna né röddina í að klára síðasta versið. Brian May tók það því að sér.
#9: Þetta lag er úr tölvuleiknum Monkey Island 3, en það heitir Barbery coast.
#10: Three Dog Night - Out In The Country. Það voru svo Wiseguys sem tóku þetta sampl og notuðu í Too easy, en um það var ekki spurt :)

Samtals staða er því orðin:

Þórður 56 stig.
Magnús 53 stig.
Júlíus 43 stig.
Róbert 18 stig
Ebbi 16 stig.
Ísak 15 stig.


Skráð sem: quiz
Svör: Ekkert ennþá

Kóala-quizið #3
Posted on 03.14.08 by steini @ 19:18

Loksins kemur inn þriði hlutinn af Kóala keppninni. Þessari er ætlað að vera aðeins erfiðari en þeirri síðustu þar sem meðaltal réttra svara var mjög hátt. Heildarstigafjöldi er 22 stig sem skiptist niður á 10 spurningar. Eins og venjulega á að svara í commentakerfið, en lokað verður á að fólk geti séð svör annara. Annars bara góða helgi og gangi ykkur vel með þessa þraut.
Eins og fyrr gætu einhverjir lent í veseni með að spila þetta í firefox. Þeim bendi ég á að prufa þetta í internet explorer.

Spurning #1:
Í fyrstu spurningunni heyrum við bandaríska rokk hljómsveit, sem hefur verið starfandi frá því snemma á níunda áratugnum, spila byrjunina á lagi sem varð mjög vinsælt árið 1999. Spurt um heiti lags og hljómsveitar (2 stig)

Spurning #2:
Hér er á ferðinni fjölhæfur tónlistarmaður sem virðist alltaf breyta um stíl með hverri plötunni. Hann er allavega aldrei líkur því sem hann var á plötunni á undan. Hér er einnig spurt um heiti lags og hljómlistarmannsins. (2 stig)

Spurning #3:
Íslenskur kraftur beint í æð. Hvaða snillingar eru þetta og hvað er heiti lagsins? (2 stig)

Spurning #4:
Þó þetta brot hljómi eins og eitthvað mjög einfalt sem er gert í tracker forritum, þá er engu að síður hljómsveit sem er mjög þekkt á bak við þetta lag. Spurt um nafn hljómsveitar, nafn lags og hvernig þetta lag skeri sig úr öðrum lögum sem voru á sama disk (með einni undantekningu þó) (3 stig)

Spurning #5:
Hér fáum við að heyra bút úr lagi sem kom út 1992 eftir breska hip hop hljómsveit. Spurt um nafn lags og hljómsveitar. (2 stig)

Spurning #6:
Þetta er eitt af óþekktari (allavega minna á hlustuðum) lögum hjá annars þekktri hljómsveit. Lagið sækir aðeins í funkið og sagt vera virðingavottur við James Brown. Coverið á disknum sem lagið er á var mikið í umræðunni þegar það kom út og sækir í smiðju þekkts bresks rithöfundar. Það þykir engu að síður vera vel gert og oft er horft á það sem eitt af betri coverum allra tíma. Hvert er nafn hljómsveitarinnar, lagsins og hvað má sjá á hulstrinu. (3 stig)

Spurning #7:
Hér vil ég bara fá nafn lags og hljómsveitar.(2 stig)

Spurning #8:
Þetta lag er síðasta lag sem þekktur tónlistarmaður tók upp. Hann var það kvalinn að hann gat ekki sungið síðasta vers lagsins og lét annan einstakling syngja þann hluta. Hvert er lagið, hljómsveitin og hver söng síðasta hlutann? (3 stig)

Spurning #9:
Hvaðan kemur þetta stef? (1 stig)

Spurning #10:
Þetta stef hefur verið notað oft og mörgum sinnum. Minnir að það hafi verið í Hunts auglýsingu hér á landi fyrir nokkrum árum síðan, auk þess sem það hefur verið samplað í lagi hjá þekktum trip hop artista. En hér er spurt um upprunalega bandið og nafn lagsins. (2 stig)


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (5)

úrslit
Posted on 03.11.08 by steini @ 1:42

Jæja, afsaka seinagang á tilkynningu um úrslit. Búið að vera mikið að gera + að maður er smá veikur. En allavega. Þessi getraun reyndist flestum frekar auðveld, þannig að það er alveg spurning um að þyngja næstu töluvert. Magnús fellur úr sæti vinningshafa og er orðinn jafn Þórði í heildarstigakeppninni. Hægt var að fá 23 stig samtals en annars voru úrslitin eftirfarandi:

    Þórður 23 stig - Samtals 38 stig.
    Júlíus 22 stig - Samtals 35 stig.
    Magnús 21 stig - Samtals 38 stig.
    Ísak - 15 stig - Samtals 15 stig.
    Róbert - Samtals 16 stig
    Ebbi - Samtals 16 stig.

Þórður og Magnús eru því orðnir jafnháir en Júlli er þar rétt á eftir. Helstu mistökin voru kanski þau að Júlli ruglaði Welska DJ Sasha við þýska júrópopparann Sash!, Magnús steingleymdi svo greinilega 10 spurningunni og missir þar 2 stig :)
Næsta keppni kemur vonandi inn á fimmtudaginn.

og já svörin… þau eru eftirfarandi (eins og þórður var með):
1#: Ensími - Arpeggiator
2#: Supergrass - Going Out. hátíðin var Reykjavík Trópík
3#: Sash! - Ecuador
4#: Fatboy Slim - Praise You, Brighton.
5#: lil louis - French Kiss
6#: Bran Van 3000 - Drinking in LA
7#: Curtis Mayfield - Move on up og Kanye West
8#: 74-75 - The Connels
9#: Robert Miles - Children
10#: Liquido - Narcotic


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (2)

Kóala-quizið #2
Posted on 03.07.08 by steini @ 1:45

Jæja, getraun 2/5. Þessi verður með smá áherslu á 90′ og þá kemur það í ljós hverjir hlustuðu á pop tónlist þegar þeir voru að alast upp (nema auðvitað Júlli, hann var orðinn gamall maður þegar mest af þessu kom út :)) Ætla ekki að hafa þetta neitt flóknar eða margbrotnar spurningar í þetta skiptið, búið að vera nóg að gera í skólanum og nóg framundan þannig að maður hefur varla tíma í það. En eins og venjulega, svör í comment, en þau munu svo ekki birtast fyrr en þegar úrslit eru tilkynnt á mánudaginn.
23 stig í pottinum í þetta skiptið.
Ath. ég er að lenda í einhverju veseni að spila fælana í firefox, en það virkar fínt í IE, þannig að þið verðið bara að redda ykkur. Afsaka þetta.

Spurning #1:
Hér vil ég bara fá nafn lags og hljómsveitar sem spilar þetta skemmtilega elektróníska stef(2 stig)

Spurning #2:
Þessi sveit kom til Íslands fyrir nokkru og hélt tónleika á hátíð nokkurri. Vil fá nafn sveitar og lags auk þess að fá nafnið á hátíðinni sem þeir spiluðu á.(3 stig)

Spurning #3:
Eitt gamalt og gott (frá 90′ tímabilinu). Hver er sveitin og hvert er lagið?(2 stig)

Spurning #4:
Einstaklingurinn sem er ábyrgur fyrir þessum tónum hefur einnig komið til Íslands, þó það sé aðeins lengra síðan en sveitin á undan. Hér er það nafn tónlistarmannsins og lagsins, auk þess sem óskað er eftir nafni heimaborgar tónlistamannsins.(3 stig)

Spurning #5:
Þetta lag var fyrst gefið út seint á níunda áratugnum og varð strax vinsælt meðal dansþyrstra á klúbbum í Evrópu (og örugglega víðar). 1-2 árum seinna var lagið svo endurútgefið af örðum höfundi og jók það bara við vinsældir lagsins. Undir lok tíunda áratugarins var það svo enn aftur notað, en í þetta skiptið samplað í tætlur af þekktum DJ. Hefur alla tíð síðan það kom út verið hátt á vinsældarlistum DJ-a yfir besta danslagið. Nafn lags og höfundar (sem gaf það uprunaleg út). (2 stig)

Spurning #6:
Hér heyrum við lokasekúndur þekkts lags sem var eiginlega eina topplag hljómsveitarinnar (þeir áttu samt eitt annað lag sem fékk nokkra spilun, en ekkert í líkingu við þetta). Hljómsveitin hefur alltaf verið þekkt fyrir að hafa mjög breiðan hóp tónlistarmanna innanborðs og með reglulega skiptingu. Spurt er um nafn sveitar og nafn lags. (2 stig)

Spurning #7:
Þetta stef hefur nýlega verið samplað af þekktum hip-hop artist sem gerði það af einstakri lægni enda varð útkoman þrælgott lag. En hér er spurt um upprunalega höfundinn, nafn þess lags og auk þess nafn þess sem samplaði lagið seinna meir. (3 stig)

Spurning #8:
Eitt rólegt og gott. Nafn sveitarinnar og nafn lags.(2 stig)

Spurning #9:
Þetta lag varð þvílíkur hittari á sínum tíma en margir sem tengjast elektróníska sviðinu vilja meina að þetta hafi næstum eyðilagt vissa tónlistarstefnu. Þetta lag heyrist samt jafnvel enn þann dag í dag, bæði á 90′ kvöldum sem og á skemmtistöðum bæjarins (hef allavega sjálfur heyrt það nokkrum sinnum). Spurt er um nafn lags og höfundar. (2 stig)

Spurning #10:
Síðasta spurningin inniheldur lagbút sem þýskt rokk band gerði geysivinsælt á tíunda áratugnum. Sveitin er enn að þó ekkert lag hafi komist í líkingu við vinsældir þessa lags. Það reyndar myndaðist visst cult kringum sveitina og lagið eftir að það kom út og var lagið t.d. valið næst besta rokk lag allra tíma á eftir Stairway to heaven á lókal útvarpsstöð í þýskalandi. Nafn lags og sveitar. (2 stig)


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (11)

einn með í viðbót
Posted on 03.05.08 by steini @ 0:26

Rétt eftir að ég kynnti úrslitin fékk ég sent svar í gegnum email frá einum einstakling sem ætlaði að taka þátt í getrauninni, en hafði ekki alveg lesið fyrirmælin því hann skildi ekki eftir comment um það. Engu að síður álít ég það þannig að þessi einstaklingur hafi haft fyrir því að pæla í spurningunum og gert það af heilindum og því fær svarið hans og stig að fljóta með í keppninni. Þetta var hann ebbi kallinn og hér eru hans svör:

1. Susanne Vega – Tom´s Diner
2. Lhooq en lagið er Losing hand (http://www.tonlist.is/Music/Album/3924/lhooq/lhooq/#0)
3. Var ekki erfið. Egill Sæbjörnsson og Tonk of the lawn
4. Heldur ekki erfið. Blur og Girls&Boys
5. Hef ekki grænan grun….:S
6. Skunk Anansie og Selling Jesus
7. Hef lítið spilað þennan leik og fann hann ekki til að kynna mér lagið…..hér er ég klúless….:S
8. Hip hop….Subterrerenan..hvernig sem það er skrifað og lagið It´s tha subta (http://www.tonlist.is/Music/Album/2861/subterranean/central_magnetism/#0)
9. Dudduddudddudddudud…..express your self…..dududdduduuddd….minnir að þetta sé í draslmann auglýsingunum…..:)
10. Kim Deal úr Pixies er á bakvið þetta lag…..sem heitir Cannonball með hljómsveitinni The Breeders (http://www.allmusic.com/cg/amg.dll?p=amg&sql=50:0xftxx9jld0e~T

Hann fær 16 stig fyrir þetta og er því staðan eftirfarandi:
Maggi: 17
Róbert: 16
Ebbi: 16
Þórður: 15
Júlli: 13

Til refsingar mun Ebbi þó njóta þeirrar sérstöðu að ef komi upp sú staða eftir lokagetraunina að Ebbi sé jafn öðrum einstakling að stigum verður hann úrskurðaður neðri einstaklingurinn vegna seinagangsins :)


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (2)

úrslit eftir fyrsta round
Posted on 03.04.08 by steini @ 14:38

Úrslit:
Maggi: 17
Róbert: 16
Þórður: 15
Júlli: 13

Rétt svör voru:
- 1. Suzanne vega - Tom’s diner

- 2. Lhooq - Losing Hand. Kom meira að segja á einhverjum pottþétt disknum ef ég man rétt. Málverkstengingin er frá listaverki eftir Duchamp sem heitir Lhooq þar sem skeggi er bætt á Monu Lisu.

- 3. Egill Sæbjörnsson - Tonk of the lawn. Hér hefði líka verið gefið rétt fyrir laganafnið “I love you so”. Ef ég man rétt þá var það þessi fýr sem tók upp myndband af sjálfum sér að rúnka sér og spilaði það svo á Kjarvalstöðum (leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál)

- 4. Blur - Girls & Boys. Þessi útgáfa er tekin af Country House smáskífunni (B útgáfu).

- 5. The Wiseguys - Ooh La La og auglýsingin er frá Guinness. Var fyrsta auglýsingin sem þeir notuðu þar sem lag var leikið undir. Maggi fær ekki rétt fyrir Hunts auglýsinguna þótt ennþá breyttara beat hafi verið notað í þá auglýsingu hér á landi.

- 6. Skunk Anansie - Selling Jesus. Júlli, “samsuða af Rage og Skunk Anansie” … veldu svar og þá færðu rétt næst.

- 7. The Cure - Wrong Number (acoustic) - CD2 af Greatest Hits. Maggi var einn með að fá fullt hús hér. Þótt lagið Wrong Number komi upphaflega af Galore, þá er þessi útgáfa komin af CD2 á greatest hits. Spurningin hefði hugsanlega mátt vera greinilegri þarna, en svona er þetta bara :)

- 8. Subterranean - It’s Tha Subta. Hálfgerðir frumkvöðlar á sviði raps og hip hops hér á Íslandi. Man sérstaklega eftir því þegar þau mættu í Dagsljós (eða hvað þátturinn hét þá á Rúv) og litla söngkonan (sem ég man ekki hvað heitir í dag) og aðrir sveitarmeðlimir áttu fína innkomu.

- 9. Þetta er Charles Wright & the 103rd street band með lagið Express yourself sem heyrst hefur oft í Dressman auglýsingunni. Langar að benda á aðra mun betri útgáfu af þessu lagi sem hægt er að finna á nýjasta disknum í Late Night seríunni (núna mixaðan saman af Fatboy Slim).

- 10. Breeders - Cannonball og söngkonan er Kim Deal úr Pixies.

Magnús leiðir allavega keppnina núna eftir fyrstu umferð. Vona að fleiri sjái sér fært að taka þátt næst og geri þessa keppni þannig ennþá meira spennandi.


Skráð sem: Dagleg skrif og quiz
Svör: It´s all happening! - (2)

Kóala-quizið #1
Posted on 02.28.08 by steini @ 16:57

Þá er komið að næstu spurningakeppni. Hef núna ákveðið að gera þetta að smá meiri keppni og gera eina stóra keppni (Kóala-quizið) úr fimm minni, þ.e. ég mun láta inn nýja getraun hvern fimmtudag næstu fimm vikurnar og eftir hverja keppni, sem endar á mánudögum kl 15:00, er tilkynntur vinningshafi. Eftir að allar fimm keppnirnar eru búnar verður sá einstaklingur sem áunnið hefur sér flest stig samanlagt krýndur hinn eini sanni vinningshafi, Handhafi Kóala myndarinnar*. Vinningshafinn mun þá hafa rétt til að prenta myndina út, hengja hana uppá vegg eða nota hana á annan hátt til að auka við mannorð sitt. Nafnbótin og leyfi fyrir notkun myndarinnar eru þó einungis tímabundin og missir vinningshafinn þau þegar næsti vinningshafi verður krýndur (5 vikum seinna). Fyrir utan heiðurstitlana verða einnig einhver veraldleg verðlaun sem gefin verða af umsjónarmanni getraunarinnar. Þau verða ákveðin síðar.

Getraun þessarar vikur verður eins of fyrri getraunin alfarið tengd tónlist, en það má búast við að í næstu getraunum geti komið fram myndaspurningar, orðaspurningar o.s.frv.
Svörun verður opin fram yfir helgi og fram til 15:00 á mánudaginn. Heildarstig í keppninni eru 22.

Spurning #1:
Jæja fyrsta spurningin í þessari keppni er einföld. Hér verður einungis spurt um nafn söngkonunnar og heiti lagsins.(2 stig)

Spurning #2:
Lag þetta kom fyrir sjónir almennings 1998 og varð nokkuð vinsælt á Íslandi. Nafn hljómsveitarinnar kemur frá málverki sem var stælingu á frægu listaverki. Spurt er um nafn á hljómsveit og lagi.(2 stig)

Spurning #3:
Næsti tónlistarmaður kom með disk snemma á þessari öld og varð eitt lagið, það sem hér er um rætt, lang vinsælast á disknum hans. Þessi hljómlistamaður er þó lang þekktastur fyrir allskonar aðra listaviðburði, svo sem myndlist, gjörninga og videouppkomu. Hver er listamaðurinn og hvað er lagið?(2 stig)

Spurning #4:
Hér kemur mjög þekkt lag í aðeins öðruvísi búning, enda tekið upp af tónleikum. Ætti að vera auðvelt fyrir alla sem hlustuðu á tónlist á 10 áratug síðustu aldar. Spurt um lag og höfund. (2 stig)

Spurning #5:
Þetta lag er ekkert rosalega þekkt, enda er ætlunin ekki að spurja um lagið sjálft heldur annað lag sem byggir að nokkru leiti á þessu lagi. Lagið sem spurt er um hafði sem sagt yfir að búa sample (bút) úr því lagi sem heyrist hér. Það lag varð mjög vinsælt seint á 10. áratugnum og var t.a.m. notað í fræga auglýsingu. Nefnið höfund nýja lagsins, heiti þess og hvað var verið að auglýsa. (3 stig)

Spurning #6:
Kanski ekki þekktasta lagið með hljómsveitinni, en ætti engu að síður að vera nokkuð augljóst. Spurt um lag og höfund.(2 stig)

Spurning #7:
Hér er komið annað lag sem er í aðeins öðruvísi búning en maður heyrir það vanalega í, hljómar dálítið eins og það sé tekið úr Theme Hospital leiknum :) En engu að síður. Hér er spurt um hvaða lag þetta sé, hvaða hljómsveit spilar lagið og af hvaða official útgefna disk hljómsveitarinnar þetta lag er tekið. (3 stig)

Spurning #8:
Sveit sem kom fram á Íslandi 1997. Í forsvari fyrir sveitina var söngkona sem skar sig dálítið út úr öðrum einstaklingum sem höfðu og hafa síðan þá verið framarlega í þessari tónlistarstefnu hérlendis. Spurt er um nafn hljómsveitar og lags. (2 stig)

Spurning #9:
Þetta stef kannast margir við og er hér einungis spurt um hvaðan þetta kunnuglega stef kemur. (1 stig)

Spurning #10:
Lag þetta er eini alvöru hittari sveitarinnar, þótt sveitin hafi gefið út 3 stúdíóplötur á næstum 18 ára ferli sínum (ein plata er á leiðinni á þessu ári). Eini meðlimur sveitarinnar sem hefur verið frá upphafi og er kjarni hennar hefur verið í annari mjög þekktri hljómsveit sem meðal annars kom til Íslands og spilaði tvisvar. Hver er hljómsveitin, lagið og hin þekkta hljómsveitin sem aðaleinstaklingur þessar sveitar hefur spilað í? (3 stig)

*Kóalabirnir eru merki um æðri tilveru, fjarskynjun og veðurstjórnun.


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (4)

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér