|
Posted on 02.22.08 by steini @ 12:17
Jæja þá eru úrslit ljós úr fyrstu tónlistargetrauninni. Þátttaka var ekkert rosaleg, en margir kvörtuðu víst yfir því að þetta væri of erfitt. Það verður fólk bara að eiga við sig og bíða bara eftir næstu getraun og sjá hvort þær spurningar hennti þeim betur. sp1: Devil went down to Georgia með Charlie Daniels Band og það er Johnny Cash sem er sögumaðurinn á einum stað í laginu. Stig: Geri svo ráð fyrir að henda inn nýrri getraun í næstu viku og byrja þá einhverskonar keppni þar sem stig frá nokkrum keppnum verða lögð saman og krýndur verður getrauna meistari. Ræðukeppnin búin, við töpuðum naumlega fyrir frumgreinadeildinni og lítið meira um það að segja. Við stóðum okkur mun verr heldur en á síðasta ári, fruman var mjög góð og það var ekki dæmt eins og við bjuggumst við. Rökin okkar fóru greinilega ekki í dómarana plús að okkur fannst þeir gefa andstæðingunum aðeins of hátt fyrir viss atriði. Þetta er samt bara búið og gert og lítið hægt að gera í þessu. Ég óska því bara frumunni til hamingju og vona að þau standi sig í næstu keppni. Þrátt fyrir mikla törn í þessum ræðumálum hafa samt verkefnin gengið vonum framar jafnvel þótt maður hafi verið að gera þau á frekar litlum tíma og ekki búist við neinum rosalegum árangri. Það er þó jákvætt við þessa viku — Verð í bænum um helgina og ætla að nýta kvöldið í kvöld með fjölskyldunni. Ætlum að fara saman út að borða og það verður væntanlega bara frábært. Svo er Bifrovision á morgun (árshátíð skólafélagsins) og þá verður slett úr klaufunum á hótel loftleiðum. — Þetta er svo ræða sem ég mæli með að fólk kíki á. Þvílík ræða, þvílíkur sannfæringarkraftur og bara þvílíkur maður. Ég fékk allavega gæsahúð og það oftar en einu sinni. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og quiz Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 02.19.08 by steini @ 12:47
Ætla hér að koma af stað smá tónlistar-quizzi þar sem tóndæmi verða sett inn og tilgangurinn er að giska á flytjanda og nafn lags (2 stig, eitt fyrir flytjanda og eitt fyrir lag), nema annað sé tekið fram. Hægt er svara póstinum, en commentin munu ekki birtast fyrr en svörnin verða gefin upp, sem verður á föstudaginn kl 12. Spurning #1: Spurning #2: Spurning #3: Spurning #4: Spurning #5: Spurning #6: Spurning #7: Skráð sem: quiz Svör: It´s all happening! - (5) |
| « newer posts |
