á ekki til orð!
Posted on 07.12.08 by steini @ 19:02

Þetta er án efa eitt það súrasta sem ég hef séð lengi. Ég er allavega enn gapandi af undrun.
Löggjafarþing Idaho samþykkti sem sagt ályktun um að hrósa ætti höfundum Napaleon Dynamite. Það besta við þetta er auðvitað þessi grein ályktunarinnar:

“WHEREAS, any members of the House of Representatives or the Senate of the Legislature of the State of Idaho who choose to vote “Nay” on this concurrent resolution are “FREAKIN’ IDIOTS!” and run the risk of having the “Worst Day of Their Lives!” ”

Meira um málið á snopes.com


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og Sniðugt stöff
Svör: 1 svar komið

tjáningaklám
Posted on 03.24.08 by steini @ 1:29

Þetta orð finnst mér yndislegt. Hreint og beint yndislegt og þegar ég sá þetta fyrst hló ég upphátt. Prufið bara að segja þetta upphátt. Tjáningarklám! Prufið svo að segja þetta á aðeins lágstemmdari og pervertískari hátt. Þá verður þetta hálf listrænt “tjáningarklám…”. Ég sé fyrir mér fullkominn stað fyrir notkun á þessu orði. Bóhem ljóðastaður í film noir stíl (ekki ólíkt staðnum Blue Casket í tölvuleiknum Grim Fandango) þar sem listamenn með mikla og ríka réttlætiskennd* stíga á stokk og segja fá, en um leið djúp og merkingarþrungin orð sem fólkið í salnum reynir svo að melta og koma fyrir í nýjustu samfélagskenningum sínum. Á milli atriða pískrar fólkið svo saman og laumar miðum sín á milli með áróðri eða hugmyndum um skipulag fyrir næstu uppreisn. Mikilmetnasti einstaklingurinn í þessum hópi stendur svo upp undir lok kvöldsins, íbygginn á svip, labbar að micnum og segir “tjáningaklám” á hugsandi en um leið dimman og dularfullan hátt. Endurtekur þetta svo aftur lágt og lætur orðið fade-a hægt út “tjáningaklám”.

Þetta er skrifað undir miklum nostalgíuáhrifum frá þeim dögum sem maður spilaði Grim Fandango og inní það fléttast brenglað hugmyndaflug vegna mikils lesturs á réttlætissiðfræði núna í upplestrfríinu.

Annars er þetta orð tekið úr stórskemmtilegri grein eftir konu sem kallar sig Habba Kriss og ég verð eiginlega að vera sammála í þessu sambandi.

*hér skal tekið fram að réttlætiskennd getur auðvitað verið af mismuandi toga og þetta á auðvitað við um hugmyndir þessara einstaklinga um réttlæti

Þessi Tómas er svo auðvitað frábær. Ein af þeim fréttum þar sem fleiri spurningar vakna en er svarað.


Skráð sem: Hugleyðingar og Sniðugt stöff
Svör: It´s all happening! - (2)

vorönnin
Posted on 03.22.08 by steini @ 15:20

Þegar hefðbundnum fyrirlestrum og verkefnatímum/vinnu er lokið er gaman að kíkja aðeins á smá tölfræði í þessu samhengi. Þetta voru sem sagt 10 vikur, 50 fyrirlestrar (3x 40min) = 100 klst, 39 verkefni = 0,78 verkefni á hvern virkan dag eða 3,9 verkefni í viku. En af þessum 39 verkefnum voru 2 þeirra aðeins stærri en önnur, ritgerð í alþjóðastjórnmálum og skýrslugerð og kynning í skoðanakönnunum. Búinn að fá einkunn úr öllu nema þessum tveimur verkefnum og er bara nokk sáttur. Geri ekki ráð fyrir lélegri einkunn fyrir skýrsluna, en er ekki alveg viss með ritgerðina, hún gæti fallið báðu megin.

Yndislegt að sjá kirkjunnar menn, sem hafa samþykkt viss atriði sem sannleikann, nú vilja breyta þeim vegna þess að þau passa ekki nútímafólki nægjanlega vel. Er ekki bara næsta skref að segja það hreint og beint út. Biblían og kristni er alls ekki jafn óskeikul og margir vilja halda.

Snilldarauglýsing :D

Það er merkilegt hvernig alþjóðavæðingin hefur orðið til þess að opinberir embættismenn geta varla sagt skoðanir sínar lengur á opinberum vettvangi. Utanríkisráðherra Frakka segir um morguninn á miðvikudaginn að Evrópusambandið eigi að skoða þann möguleika að sniðganga opnunarhátíð Olympíuleikanna til að gagnrýna gjörðir Kínverja gagnvart Tíbetum. Nokkrum tímum seinna dregur hann orð sín til baka og segir að mannréttindi verði stundum að víkja fyrir efnahagslegum hagsmunum. Ég hefði alveg búist við að heyra þetta frá bandarískum ráðmönnum, en ég hélt að Frakkar væru nú aðeins meira nýmóðins. Ef hagsmunadreifingin er orðin slík og sumir aðilar alþjóðasamfélagsins orðnir það stórir að þeir geti fælt alla gagnrýni frá sér í krafti stærðar, þá erum við komin út í slæma hluti. Fólk (og opinberir embættismenn) eiga að geta bent á ranglæti þegar þeir sjá það án þess að þurfa að fá bakþanka um hvort réttlætið geti leitt af sér efnahagslegar refsingar.

HAHAHAHAHA

WTF???”$$%#$% þessi frétt vekur upp svo margar spurningar en svarar engu!!

og já, það verður ekkert quiz þessa helgi. Reyni að henda inn nýju í næstu viku.


Skráð sem: Bifröst og Hugleyðingar og Sniðugt stöff og Trúmál
Svör: Ekkert ennþá

ýmislegt
Posted on 03.12.08 by steini @ 0:43

úff, held mér hafi sjaldan liðið jafn skömmustulega og þegar þessu verkefni var skilað. Held ég hafi allavega ekki skilað svona lélegu verkefni síðan ég byrjaði hér uppfrá :(
Allavega, nokkrar góðar slóðir sem ég hef rekist á síðustu daga:
Gullna reglan í mismunandi trúarbrögðum
Flott safn af myndum frá Afríku(flestar frá vestur Afríku og sýna bæði hörmungar og hamingju fólksins þar)
Trúiru á Guð - Já/nei. Sjá hvar trú er sterk og hvar hún er það ekki.
Heimspeki leikir og þrautir. Tók sjálfur Battleground God. Lenti í 1 hit og 1 bullet. Tékkið hvað þið fáið
Barack Obama fyrir slatta mörgum árum… ?
SHIT!!! slæmt ástand

Stumble klikkar ekki.


Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur og Sniðugt stöff
Svör: 1 svar komið

Er ástandið svona slæmt?
Posted on 11.24.07 by steini @ 2:19

Spurning hvort slæmt ástand dollarsins muni enda á þennan hátt:
cookies for euros


Skráð sem: Heimsmálin og Sniðugt stöff
Svör: Ekkert ennþá

brjálaða lið
Posted on 11.12.07 by steini @ 5:13

Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið.

Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni.

Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið :) Það væri töff.

Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld.
Jamendo er snilld. Afhverju var enginn búinn að segja mér frá þessu áður??


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Kúltúra og Sniðugt stöff og Tónlist
Svör: 1 svar komið

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér