hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
Posted on 11.15.08 by steini @ 20:44

Í dag náði ég að vera nokkuð atorkusamur. Byrjaði reyndar daginn ekki fyrr en eftir hádegi, en fór þá í að hjálpa við að flytja bílhræ (sem verður vonandi að drossíu von bráðar) frá Hafnarfirði yfir á Grensásveg. Því næst kíktum við bræðurnir í síðbúinn hádegismat, tónlistarmarkaðinn í perlunni (sem er ekkert spes), keypti nýjan harðan disk í tölvuna, sótti miða á stórtónleikana í Höllinni í kvöld og fór í ræktina. Stefnan er svo sett eftir nokkrar mín á tónleikana fyrrnefndu.
Diskurinn sem ég keypti er 750 GB og er um 117x stærri en fyrsti diskurinn sem ég fékk (sem var 6,4GB), en það þótt nú bara helvíti öflugt á sínum tíma. Fátt stækkar (þróast) jafn hratt og mikið og tölvubúnaður, það er á hreinu, já nema kanski íslensku bankarnir. Spurning hvort tölvubúnaður sé bara bóla sem muni springa ? :S

Langar annars að benda fólki á þessa hugmynd sem ég vona innilega að verði vinsæl hjá Íslendingum. Allavega mun ég senda eins og eitt svona kort á heppinn einstakling í Færeyjum með nafnið Thorstein :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

að gera það besta úr stöðunni
Posted on 10.12.08 by steini @ 16:06

Meðan bretar kaffærðu Kaupþing, misnotuðu hryðjuverkalöggjöf o.s.frv. þá ákvað ég að snúa vörn í sókn og valta yfir þá á öðrum vettvangi. Ákvað að vera Wales og á nokkrum klst var England orðið að engu og í þessum töluðu orðum er Skotland að falla um koll (hefnd fyrir fótboltann á dögunum). Fljótlega mun ég svo væntanlega stjórna öllum bresku eyjunum og þá geta Englendingar séð hvar Davíð keypti ölið :)


Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

Msn vírus (en samt ekki)
Posted on 06.01.08 by steini @ 13:59

Ég hef gegnum tíðina fengið töluvert af msn sendingum sem ég taldi vera vírus. Þ.e. það kom eitthvað dúbíus url og svo signaði einstaklingurinn sem sendi mér þetta út. Komst áðan að því að þetta er örugglega ekki vírus sem er að angra fólkið heldur er þetta basically spambot sem hefur fengið leyfi hjá fólki til að nota msnið hjá því. Hægt að lesa betur um þetta hér. Besta ráðið til að losna við þessa óværu virðist einungis vera að skipta um password á msn. Ekki mikið mál það og þá ætti þetta ekki að plaga þig lengur.


Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

tölvuvesen
Posted on 05.05.08 by steini @ 18:28

Ferðtölvan mín er við það að hrynja þessa stundina. Eftir að hafa látið error scanna hana og reynt að koma henni í stand í nótt slökkti hún á sér í dag. Er núna búinn að reyna að kveikja á henni 5x og núna í síðustu tilraun virðist hún vera að ná að starta sér upp (það hefur samt tekið 20min). Nú verður bara farið í að taka afrit af öllu því sem maður á ekki afrit af og formata svo vélina. Vonum að það geri eitthvað… er samt ekkert of bjartsýnn :(


Skráð sem: Vesen og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

Lush
Posted on 05.04.08 by steini @ 16:14

Mér finnst mjög gaman að uppgötva nýja tónlist sem mér líkar vel við og leikur vel um eyrun. Reyndar finnst mér eiginlega skemmtilegast þegar þessar uppgötvanir eru um nýja-gamla tónlist, þ.e. tónlist sem er orðin meira en 5-10 ára gömul en fór einhvern vegin fram hjá mér á þeim tíma (eða var gerð áður en ég fæddist eða fór að pæla í tónlist). Um daginn uppgötvaði ég eina hljómsveit sem hefur gert mikið af góðri tónlist en hefur einhvern vegin farið fram hjá mér. Þetta er breska hljómsveitin Lush sem var í fullu fjöri í kringum 1990, eða alveg þangað til trommari sveitarinnar svipti sig lífi 1996 og sveitin leystist upp. Tvö lög hafa sérstaklega fangað athygli mína, en það eru lögin Monochrome og Ladykillers. Það fyrrnefnda var einmitt það lag sem kynnti mig fyrir sveitinni, en það fann ég á safndisknum Late night tales: Flaming Lips (sem er mjög góður diskur btw). Hennti hér inn báðum lögunum svo fólk geti tékkað á sveitinni, en hún spilar draumkennt indí-britpop.
Ladykillers
Monochrome

Ég reyndar tel mig einhvern tíman hafa heyrt Ladykillers lagið áður, en kem engan vegin fyrir mig hvar eða hvenær það var. Allavega, góð tónlist og mæli með að fólk tékki á þessu.

Á að skila inn rannsóknaráætlun fyrir Ba-ritgerð á þriðjudaginn…. Gunnar, farðu að svara póstinum. Þarf að vita hvort þetta sé gott ritgerðarefni

Ferðatölvan er í fucki! Búinn að fá blue screen of death núna 4x á síðustu 2 dögum og hún er orðin geðveikt hæg og vesen. Held að það sé kominn tími á format. Hef þó engan tíma í að gera eitthvað þannig - nenni ekki! Damn.

Tryggvi og Sigga Lóa voru svo að koma með hugmynd um útilegu í sumar fyrir HHS liðið. Það er klárlega eitthvað sem þarf að skoða betur. Alveg kominn tími á að skella sér í útilegu og sofa í tjaldi :)

Ef Josef Fritzl er hataðasti maður í Austurríki eins og er, þá er verjandinn hans örugglega næst hataðasti maðurinn þar akkúrat núna


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og Vesen og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

nettengingar
Posted on 02.26.08 by steini @ 18:17

Internet aðgangur Íslendinga við umheiminn eru algjört djók. Í þessari frétt er t.d. komið inná að Björgólfur Thor sé að fara að fjárfesta í netþjónabúi og sé búinn að gera samning við Farice uppá 80 gbit samband gegnum Farice-1 og 80 gbit aðgang gegnum Danice (sem er væntanlegur í framtíðinni). Nú þegar er Farice-1 strengurinn með getu að flytja 720gbit á sek, en er aðeins að nota 4gbit. Þetta er sérstaklega vegna þess hversu gífurlega hátt gjald er á notkun um strenginn. Það hlýtur samt að segja sig að stærsti hlutinn við kostnað stengsins er fastur kostnaður, en ekki breytilegur kostnaður og því ætti fyrirtækið að sjá sér hag í að fá fleiri á strenginn og reyna að fullnýta flutningsgetuna. En nei, það vill Farice fyrirtækið ekki gera.
Þessi nýi danice strengur verður í eigu sama fyrirtækis, en við endurfjármögnun mun Farice fyrirtækið komast í eigu ríkisins. Spurning hvort ríkið muni sjá hvurslags rugl er í gangi þarna og lækka verðið á gagnaflutningnum svo fleiri vilji kaupa bandvídd en í dag. Það gæti svo einnig bara alveg verið að sömu einstaklingar fái að sitja í stjórn fyrirtækisins og muni ennþá halda verðinu uppi og gagnaflutningum niðri í krafti einokunaraðstöðu sinnar. Þegar Danice strengurinn verður tilbúinn verðum við með um 5720 gbit samband (danice um 5000 og farice 720gbit) og notkunin verður 4 gbit á alla íslendinga og 160 gbit á fyrirtækið hans Björgólfs. Finnst engum öðrum en mér skrítið að við séum að búa til svona gífurlega bandvídd sem enginn fær svo að nota? Tæplega 3% notkun af því sem gæti verið!!!!
Ég er mjög sáttur með þetta framlag Björgólfs, en hvernig tengingarmálum við útlönd er háttað er bara brandari þar sem neytendur eru dregnir á asnaeyrunum. Skil heldur ekki alveg afhverju þetta er svona. Bæði Síminn og Vodafone eru stórir eigendur í farice og það hlýtur að vera að þau sjái sér hag í því að halda internet hraða við útlönd niðri. Hvaða monkey business er það eiginlega?

Stefni á að henda nýrri getraun inn á morgun. Hægt verður að svara henni fram yfir helgi en niðurstöður verða kynntar milli 12 og 15 á mánudaginn.


Skráð sem: Fréttir og Hugleyðingar og Nöldur og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

Hræsni og ræðukeppni
Posted on 02.15.08 by steini @ 0:11

Vá hvað ég er sammála þessu commenti . Það má sem borga sig inná allskonar spila og íþróttamót sem síðan hafa vinningsupphæðir, en það má ekki borga sig inná pókermót þar sem spilað er með spilapeninga og sá sem endar með flesta/alla spilapeningana fær vinningsupphæðina. Þvílík hræsni og mismunun á áhugamálum.

Þetta greiningarforrit frá ibm lookar mjög vel. Hér hefur til dæmis einn íslendingur hennt inn Egilssögu með orðið Egill sem upphafsorð. Röð og stærð orðana sem á eftir koma fer svo eftir þeim fjölda sem það kemur fyrir í textanum. Áhugavert að prufa sig áfram í þessu.

Búið er að semja um umræðuefni í ræðukeppnina sem fram fer næsta fimmtudag milli HHS og Frumunnar. Það er Þjóðernishyggja og munum við mæla á móti. Þetta verður sem sagt hardcore vika með miklu álagi og vökunóttum :) Það er samt alltaf þess virði í lokin.

Sá á þessari síðu að nýr diskur með Goldfrapp er væntanlegur í mars og svo verður Supergrass með nýja afurð í Apríl. Það eru ánægjulegar fréttir.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og tölvur og nördismi
Svör: It´s all happening! - (3)

wikipedia
Posted on 02.10.08 by steini @ 23:50

Hérna er ein af ástæðunum afhverju maður getur ekki alltaf treyst Wikipediu:

Valur er íslenskt íþróttafélag sem hefur aðstöðu að Afturenda við Laufásveg í Reykjavík.

Félagið var stofnað 1911 af drengjum í KFUM, að hluta til að tilstuðlan séra Friðriks Friðrikssonar.

Starfsemi félagsins nú til dags er ekki einungis bundin við knattspyrnu, hjá Val er hægt að æfa knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik. Félagið hefur í gegnum tíðina náð mjög góðum árangri á Íslandsmótum í bæði knattspyrnu og handknattleik.

Vil svo mæla með þáttunum Big Bang Theory. Eðal nörda húmors þættir.


Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

morfís brjóst
Posted on 01.27.08 by steini @ 17:49

hef sjaldan verið að skora hátt hjá leitarvélum, en nýlega kom mikill kippur í þá sem rötuðu inná þessa síðu gegnum leitarvélar. Þar var aðallega um að ræða fólk sem leitaði að “morfís brjóst”, “morfís berbrjósta” og “tinna berbrjósta” (er t.d. 4 tengillinn þegar leitað er að morfís brjóst á google…). Þegar ég fór að skoða málið betur er það vegna þessarar skemmtilegu færslu og svo ná leitarbottarnir að tengja það við einhverja morfís tengla á síðunni. Tinnu tengingin var svo fengin útaf tenglinum á síðuna hjá Sigga og Tinnu.
Skemmtilegt hvernig leitarvélarnar tengja við mann :)


Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi
Svör: It´s all happening! - (2)

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér