|
Posted on 08.25.08 by steini @ 21:30
ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum í allt kvöld. Kanski ekkert rosalega alvarlegt vandamál, en samt ekkert lúxusvandamál heldur atvik sem kemur rosalega við andlegu hliðina í mér. Maður er eitthvað að reyna að einbeita sér að lesa og þá er heilinn á fullu að spila eitthvað svona kjánalegt fjörlag. Ekki að gera sig, sérstaklega ekki þegar maður er að tala við aðra í símann… — Ef fólk vill aftur á móti heyra skemmtilega íslenska tónlist, þá mæli ég með Retro Stefson, en ég sá þá einmitt spila á menningarnótt á Ingólfstorgi og þeir stóðu klárlega uppúr dagskránni, auk heimsóknarinnar í utanríkisráðuneytið (dagurinn var þess fyrir utan ekkert spes - frekar slöpp dagskrá sem höfðaði ekkert of mikið til mín). Skráð sem: Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 07.24.08 by steini @ 0:36
Nýi diskurinn með Dandy Warhols, Earth to the Dandy Warhols verður að teljast til einhverra mestu vonbrigða þessa árs. Mér hefur hingað til líkað vel við sveitina og þá tónlist sem þeir hafa verið að gefa út, en hér keyrir allt um þverbak. Hreint út sagt hræðilegur diskur frá sveit sem á að vera svo miklu miklu betri. Einu lögin sem ég beið ekki eftir að myndu klárast voru Love Song og Mis Amigos, en engu að síður er Love song ekki lag sem ég held að ég muni geta hlustað á oft og mörgu sinnum, bara þægileg melódía, en annað við það ekkert að gera sig. Mis Amigos er eina lagið sem ég fann svona einhvern smá Dandy fíling í við að hlusta á. Þetta verður að teljast frekar slappur árangur miðað við 13 laga disk. En allavega, 1/5 gef ég þessum grip og er það ríflega útlátið og einungis vegna fyrrgreindra laga. Önnur tónlist sem maður hefur svo verið að hlusta á undanfarið er t.d: Vampire Weekend, en þeir hafa fengið að vera í spilaranum mikið í sumar; Someone Still Loves You Boris Yeltsin, en breti sem leigði með Hildi og Sibbu í Singapore benti mér á þessa sveit - kemur skemmtilega á óvart; Nýi Sigur rós diskurinn sem er algjört gull, sérstaklega hressu byrjunarlögin; Lykke Li; MGMT og svo Manchester sveitin James. Shit hvað það er GEÐVEIK Hljómsveit !!! Skráð sem: Tónlist Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 05.29.08 by steini @ 12:28
Er nýja Sigur-Rósar myndbandið saklaus nekt, klám, siðleysi eða falleg sýn á manneskjuna? Er þetta hinn siðferðispóllinn á móti ofbeldinu sem þarf að ritskoða eða er nekt mun betri en ofbeldi? Hvort á að ritskoða, eða á að leyfa bæði, eða jafnvel ritskoða bæði? Myndbandið og lagið eru aftur á móti frábær. Algjör sumarfílingur og mun léttara en Sigur Rós hefur verið að gera hingað til (ekki að hitt stöffið hafi verið lélegt samt). Þetta mun því án efa hljóma í spilaranum í sumar og ég hlakka rosalega til að fá nýja diskinn í hendur þegar þar að kemur. Skráð sem: Dagleg skrif og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.28.08 by steini @ 21:54
ég missti af Bob Dylan um daginn þar sem ég var í útlöndum. Aftur á móti upplifði ég fínustu tónleika á leiðinni uppá Bifröst núna áðan þegar ég keyrði hingað. Skellti tónleikadisknum Familiar to Million með Oasis í græjurnar hækkaði vel og þvílík stemmning. Byrjar með látum á Fuckin’ in the Bushes og eftir það kemur hvert gæða lagið á fætur öðru. Diskurinn er tvöfalldur og um miðjan seinni disk taka þeir svo Hey Hey my my eftir Neil Young og er það eina lagið á disknum sem ég er ekki alveg sáttur með, en það er einungis vegna þess að upprunalega lagið er betra plús að ég á aðra útgáfu af laginu flutta af Oasis bræðrum sem er mun betra. Engu að síður okey lag. Champagne Supernova, Rock ‘n’ Roll Star koma svo áður en lokalagið Helter Skelter eftir Bítlana er tekið, en Bítlarnir eru víst meðal uppáhalds sveita og miklir áhrifavaldar á bræðurna. En þetta var allavega mjög öflugt og langt síðan ég hef verið í jafn miklum fíling í bílnum. Kæmi mér ekki á óvart að margir bílstjórar sem sáu mig hafi rekið upp stór augu ef þeir sáu mig þar sem ég var að missa mig í söngnum, svo ekki sé minnst á gangandi vegfarendur í Mosfellsbæ og Reykjavík sem gætu hafa séð mig á einhverjum ljósum Ferðasaga auk smá bjórrýni úr ferðinni kemur svo inn innan skamms. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Ferðalög og Tónlist Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 05.04.08 by steini @ 18:25
Það er klárlega kominn einhver sumarfílingur yfir mann þegar ég sit inni og reyni að lesa greinar um hvernig olía hefur áhrif á lýðræði og það rignir úti, en engu að síður er ég í massafíling að hlusta á Jurassic 5 og líður nokkurn veginn eins og ég sitji út í garði á góðum sólardegi með bjór og sé að fara að grilla Skráð sem: Dagleg skrif og Tónlist Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 05.04.08 by steini @ 16:14
Mér finnst mjög gaman að uppgötva nýja tónlist sem mér líkar vel við og leikur vel um eyrun. Reyndar finnst mér eiginlega skemmtilegast þegar þessar uppgötvanir eru um nýja-gamla tónlist, þ.e. tónlist sem er orðin meira en 5-10 ára gömul en fór einhvern vegin fram hjá mér á þeim tíma (eða var gerð áður en ég fæddist eða fór að pæla í tónlist). Um daginn uppgötvaði ég eina hljómsveit sem hefur gert mikið af góðri tónlist en hefur einhvern vegin farið fram hjá mér. Þetta er breska hljómsveitin Lush sem var í fullu fjöri í kringum 1990, eða alveg þangað til trommari sveitarinnar svipti sig lífi 1996 og sveitin leystist upp. Tvö lög hafa sérstaklega fangað athygli mína, en það eru lögin Monochrome og Ladykillers. Það fyrrnefnda var einmitt það lag sem kynnti mig fyrir sveitinni, en það fann ég á safndisknum Late night tales: Flaming Lips (sem er mjög góður diskur btw). Hennti hér inn báðum lögunum svo fólk geti tékkað á sveitinni, en hún spilar draumkennt indí-britpop. Ég reyndar tel mig einhvern tíman hafa heyrt Ladykillers lagið áður, en kem engan vegin fyrir mig hvar eða hvenær það var. Allavega, góð tónlist og mæli með að fólk tékki á þessu. — Á að skila inn rannsóknaráætlun fyrir Ba-ritgerð á þriðjudaginn…. Gunnar, farðu að svara póstinum. Þarf að vita hvort þetta sé gott ritgerðarefni — Ferðatölvan er í fucki! Búinn að fá blue screen of death núna 4x á síðustu 2 dögum og hún er orðin geðveikt hæg og vesen. Held að það sé kominn tími á format. Hef þó engan tíma í að gera eitthvað þannig - nenni ekki! Damn. — Tryggvi og Sigga Lóa voru svo að koma með hugmynd um útilegu í sumar fyrir HHS liðið. Það er klárlega eitthvað sem þarf að skoða betur. Alveg kominn tími á að skella sér í útilegu og sofa í tjaldi — Ef Josef Fritzl er hataðasti maður í Austurríki eins og er, þá er verjandinn hans örugglega næst hataðasti maðurinn þar akkúrat núna Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og Vesen og tölvur og nördismi Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.29.08 by steini @ 11:03
Kannski er ég bara svona narrow minded á allt sem tengist nýöld og allskonar kukl fræðum, en mér finnst það mjög kaldhæðnislegt þegar “detox drottningar” (sjá fréttablaðið í dag bls 22) tala um að kasta steinum úr glerhúsi. Að vera að halda einhverju fram sem hefur ekkert staðfast á bakvið sig og vilja svo meina að aðrir sem geri það sama séu að kasta steinum úr glerhús… Fyrir mér er þetta svipað og þegar trúaðir einstaklingar upphefja sinn guð, en á sama tímapunkti útiloka þeir að aðrir gætu verið til. — Var með smá hitting fyrir garðabæjar og verslóliðið á föstudaginn. Held að það hafi bara heppnast ágætlega. Allavega var fólk fram eftir nóttu og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Langt síðan maður hefur hitt flest af þessu fólki. Þakka allavega gestunum fyrir komuna. — Kúrsinn Trúarbrögð og stjórnmál er byrjaður. Þetta er 3 vikna kúrs með lokaritgerð uppá 15 bls. Áhugavert efni, en ég get ekki sagt að ég sé orðinn ready til að pæla í ritgerðinni enn, eða að maður sé mjög áhugasamur að fara að lesa á fullu. Það hlýtur samt að koma. — Það byrjaði svo að snjóa smá í dag hér uppfrá. Þ.e. það komu nokkur snjókorn, þó ekkert þeirra hafi enn náð að festa sig á jörðina. Vonum að það gerist ekki. — — Finnst dálítið fyndið að heyra og lesa um alla vera að tala um hvað hitt og þetta geti verið ógn við stöðugleikann (í efnahagsmálum). Hvernig væri nú að fólk færi að tala um þetta á réttan hátt. Það er ekkert stöðugleiki og allar breytur sem einhverju skipta í því samhengi hafa áhrif á óstöðugleikann, en ekki stöðugleikann. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.05.08 by steini @ 14:49
Það virðast sumir vera svekktir út í Dani í dag. Ég er á öðru máli. Hann Kenneth Bager er nefnilega danskur og hann er aldeilis að lífga uppá daginn hjá mér með þessu snilldar lagi sínu - The Sound of Swing - Hef lítið getað fundið um þennan gauk, en þetta er allavega svona chillout jazz eitthvað, samt fjörugt og skemmtilegt. Hlustið bara Skráð sem: Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 02.15.08 by steini @ 0:11
Vá hvað ég er sammála þessu commenti . Það má sem borga sig inná allskonar spila og íþróttamót sem síðan hafa vinningsupphæðir, en það má ekki borga sig inná pókermót þar sem spilað er með spilapeninga og sá sem endar með flesta/alla spilapeningana fær vinningsupphæðina. Þvílík hræsni og mismunun á áhugamálum. — Þetta greiningarforrit frá ibm lookar mjög vel. Hér hefur til dæmis einn íslendingur hennt inn Egilssögu með orðið Egill sem upphafsorð. Röð og stærð orðana sem á eftir koma fer svo eftir þeim fjölda sem það kemur fyrir í textanum. Áhugavert að prufa sig áfram í þessu. — Búið er að semja um umræðuefni í ræðukeppnina sem fram fer næsta fimmtudag milli HHS og Frumunnar. Það er Þjóðernishyggja og munum við mæla á móti. Þetta verður sem sagt hardcore vika með miklu álagi og vökunóttum — Sá á þessari síðu að nýr diskur með Goldfrapp er væntanlegur í mars og svo verður Supergrass með nýja afurð í Apríl. Það eru ánægjulegar fréttir. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og tölvur og nördismi Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 02.11.08 by steini @ 16:23
Ég og Ægir ætluðum að fara að gera stjórnmálaheimspeki verkefni núna áðan, en misstum okkur aðeins í væmnilagakeppni. Hérna eru úrslitin (ekki í neinni sérstakri röð): Whitney Houston - I Will Always Love You Einhverjar fleiri uppástungur? bætt við: Þetta hlýtur að vera vinningshafi: Skráð sem: Tónlist Svör: It´s all happening! - (5) |
| previous posts » |
