Hræsni og ræðukeppni
Posted on 02.15.08 by steini @ 0:11

Vá hvað ég er sammála þessu commenti . Það má sem borga sig inná allskonar spila og íþróttamót sem síðan hafa vinningsupphæðir, en það má ekki borga sig inná pókermót þar sem spilað er með spilapeninga og sá sem endar með flesta/alla spilapeningana fær vinningsupphæðina. Þvílík hræsni og mismunun á áhugamálum.

Þetta greiningarforrit frá ibm lookar mjög vel. Hér hefur til dæmis einn íslendingur hennt inn Egilssögu með orðið Egill sem upphafsorð. Röð og stærð orðana sem á eftir koma fer svo eftir þeim fjölda sem það kemur fyrir í textanum. Áhugavert að prufa sig áfram í þessu.

Búið er að semja um umræðuefni í ræðukeppnina sem fram fer næsta fimmtudag milli HHS og Frumunnar. Það er Þjóðernishyggja og munum við mæla á móti. Þetta verður sem sagt hardcore vika með miklu álagi og vökunóttum :) Það er samt alltaf þess virði í lokin.

Sá á þessari síðu að nýr diskur með Goldfrapp er væntanlegur í mars og svo verður Supergrass með nýja afurð í Apríl. Það eru ánægjulegar fréttir.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og tölvur og nördismi
Svör: It´s all happening! - (3)

væmni
Posted on 02.11.08 by steini @ 16:23

Ég og Ægir ætluðum að fara að gera stjórnmálaheimspeki verkefni núna áðan, en misstum okkur aðeins í væmnilagakeppni. Hérna eru úrslitin (ekki í neinni sérstakri röð):

Whitney Houston - I Will Always Love You
Seal Kiss from a rose
Meat Loaf - I would do anything for love
Bryan Adams - Everything i do
Bryan Adams, Rod Stewart, Sting - All for love

My Heart Will Go On - Celine Dion

Haddaway - What is love?
Holding Out For A Hero by Bonnie Tyler
All 4 One - I Swear
Boys II men - I´ll make love to you
Backstreet Boys - I Want It That Way
Toni Braxton - Unbreak My Heart
Leann Rimes - How Do I Live

Coyote Ugly - Cant Fight The Moonlight

Einhverjar fleiri uppástungur?

bætt við: Þetta hlýtur að vera vinningshafi:
Bob Carlisle - Butterfly Kisses


Skráð sem: Tónlist
Svör: It´s all happening! - (5)

tónlist
Posted on 02.11.08 by steini @ 0:38

Held að listinn minn á Last Fm þessa vikuna nái rosalega vel að sýna hvað ég er að fíla þessa dagana.

Jack Johnson, Josh Rouse og Robert Plant með henni Alison Krauss. Skilduhlustun fyrir alla tónlistaraðdáendur.


Skráð sem: Tónlist
Svör: Ekkert ennþá

langþráð færsla
Posted on 01.24.08 by steini @ 18:34

Vá, það er orðið langt síðan maður lét heyra í sér. Það var þó ekki meiningin, helduru hefur bara verið mjög mikið að gera hjá manni síðustu 2-3 vikurnar.
Fyrsta vikan hérna uppfrá byrjaði reyndar frekar rólega ef frá er dregið fínasta fyllerí sem maður skellti sér á á fimmtudaginn. Ákvað reyndar að skrá mig í fimmta kúrsinn og er því að taka 18 einingar samtals yfir önnina. Það verður eitthvað gaman. Verkefni, tímapróf eða eitthvað álíka fyrir hvern kúrs einu sinni í viku (nema auðvitað að það sé stórt verkefni sem taki nokkrar vikur… en það kemur niður á sama stað). Ákvað að slaka á uppá röstinni þá helgi og ná aðeins áttum. Vikuna eftir byrjaði svo að snjóa mjög mikið og enn í dag snjóar (rétt kom smá rigning í gær, en annars er fannfergi). Vikan var samt eins og vikan á undan, mikill lærdómur og lítið merkilegt að segja, nema auðvitað að em byrjaði (sem er búið núna fyrir okkur). Bifrestingar ákváðu reyndar að skreppa til Akureyrar í bretta og djamm ferð þá helgi. Ég krassaði hjá Lindu og Ernu uppí Giljahverfinu. Hitti svo Völu og Gulla (var í sveit hjá foreldrum þeirra forðum) þar og var helgin eiginlega bara eitt stórt djamm + handboltagláp. Náði að týna myndavélinni hennar Ernu en hún fannst svo daginn eftir af stelpu sem reyndi að hrækja á mig kvöldið áður. Ástæðuna fyrir því má væntanlega skrifa á mikla almenna ölvun og þá sérstaklega þessarar ungu snótar. Erna var reyndar ekkert of sátt með mig eftir þessa helgi. Í fyrsta lagi auðvitað útaf þessari myndavél og svo vegna þess að ég sýndi fram á að vera lang versti kúrufélagi ever fyrri nóttina þegar ég togaði öll teppi eða sængur af henni og krafðist þess svo að glugginn yrði opnaður í skítkaldri stofu. Ég fékk allavega Lindu rúm kvöldið eftir og Linda svaf í Ernu rúmi :) Stefni svo að vera hér uppfrá aftur þessa helgi og læra og slaka á. Fer reyndar að vera 1 mánuður síðan maður hitti móður og föður eininguna, en þau hafa nú lifað það verra.

Um daginn smakkaði ég kóreska hrísgrjónavínið sem ég kom með frá DMZ svæðinu í Kóreu. Það smakkast eins og Tequila og viský blandað saman, algjör óþverri. Greinilegt að Kóreubúar eru ekki bestu bruggarar í heimi, þó þeir geir Soju sem smakkast hræðilega fyrst en verður svo eiginlega ávanabindandi.

Hvað er eiginlega að gerast í pólitíkinni á Íslandi samt? Allt að verða crazy, nýr meirihluti, Bingi hættur og ég veit ekki hvað og hvað. Verð þó að segja að mér finnst þessi nýja meirihlutamyndun frekar léleg eitthvað. Ólafur ekkert að láta sína meðframbjóðendur vita og svo er allt í einu stokkið fram og tilkynnt um niðurstöðuna. Líka skrítið að Vilhjálmur láti fá sig út í þetta. Held að löglegt en siðlaust eigi ágætlega við um þetta. Sjallar hefðu betur átt að koma sterkir inn í andstöðunni, vinna sig inn hjá fólki og rústa næstu kosningum.

Hlutlægt, huglægt, er eitthvað hlutlægt yfir höfuð? Er stærðfræði bæði hlutlæg og huglæg? Verður einhverntíman hægt að gera huglægan mælikvarða og fá eitthvað hlutlægt? Er eitthvað alveg víst nema þessi setning Descartes “Ég hugsa, þessvegna er ég”?
Merkilegt með svona pælingar, að þótt þær séu mjög súrar eitthvað, þá finnst mér mjög gaman að þeim :)
Það er kanski ein af ástæðum þess að mig hlakkar einstaklega mikið til fyrir næsta verkefni í stjórnmálaheimspeki, “málsvörn fyrir nytjastefnuna”. En nytjastefnuna er einmitt hægt að gagnrýna á svo ótal vegu. Þetta verður challenge og þetta verður gaman.

Júlíus nokkur Arnarsson kom undir lok síðasta árs með skemmtilegan árslista af því tónlistar efni sem hann hafði haldið mest uppá á síðasta ári. Hafði þó áður heyrt í Radiohead og Beirut, en hitt var alveg nýtt fyrir mér. Og þvílík uppgötvun. Allir diskarnir, fyrir utan Arcade fire sem ég hef ekki enn hlustað á, eru gargandi snilld. Frábært frábært frábært. Verð þó að segja að Robert Plant & Alison Kauss diskurinn skarar fram úr. Hrein unun að hlusta á þann disk.
Öll þessi tónlist passar svo vel við hvað sem er. Síðustu tvær vikurnar hef ég t.d. lært, sofnað og slakað á við hana, alla dagana. Sést vel á þessum lista hvað þetta kom sterkt inn hjá mér í síðustu viku. Verður samt væntnalega mun stærra þegar þessi vika verður gerð upp á sunnudaginn.
Plús á Júlla fyrir þetta, jafnvel þótt ég hafi séð að margt af þessu er einnig á öðrum topplistum víðsvegar um heim.

Hér eru svo nokkrir áhugaverðir linkar:
Hillllaríus myndband af virkilega vitgrannri ljósku í spurningaþætti sem vissi ekki að Evrópa væri heimsálfa… Kjánahrollur
Er þessi mynd svo sæt eða sorgleg?
Svo er hér ein sæt jólamynd sem lætur okkur hugsa smá.
Þetta er svo skemmtileg lesning um p2p, hackers, útgáfufyrirtæki og hræsnara sem missa allt niður um sig. Er ekki frá því að maður hafi hugsað smá “victory is near” þegar maður las þetta.
Enda svo á skemmtilegum lista yfir bíómyndir sem er ekkert of líklegt að maður hafi séð á síðasta ári, en eru engu að síður mjög góðar. Mæli með þessum lista, hef séð svona 8-10 myndir þarna og þær voru allar mjög góðar (nema sunshine, hún var hryllingur).

Svo eru það stóru spurningarnar… hvað á ég að skrifa BA ritgerðina um, en ég þarf að skila inn hugmynd að ritgerð og beiðni um tútor fyrir 7 feb. Hef satt best að segja ekki hugmynd um hvað ég á að gera. Svo er það hvað maður á að gera í missó. Þetta helvítis skrímsli sem tekur alla orku manns í allavega 3 vikur, en maður lærir mjög vel á, færist nær og nær og maður er eins og venjulega í einhverju móki og veit ekkert hvernig hópaskiptingin verður eða hvað maður á að skrifa um. Loka spurningin er svo hvort maður eigi að taka sér eitt ár í frí og borga upp skuldir eða reyna að komast í skóla úti. Og ef maður fer í master úti, hvað á ég nákvæmlega að fara í? Hagfræði (sem mig langar mest í, en ég þarf væntanlega aðeins meiri stæ fyrir það), alþjóða samskipti, eða bara eitthvað allt annað. Úfff… erfitt að velja.

Ég er alltaf að lofa myndum. ég ætla bara að halda áfram að lofa þeim, þær koma einhverntíman :)

Ef einhver á svo lagið Hótel Jörð (helst í flutningi Pálma Gunnarssonar), þá má sá hin sami hafa samband við mig sem fyrst :D


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Hugleyðingar og Pólitík og Tónlist og Vesen
Svör: It´s all happening! - (2)

DMZ og næstu vikur
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34

Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi).
Þannig að planið næstu vikurnar er eftirfarandi:
10. des: Prófavikan byrjar með prófi í Theories of national security. Þar á eftir fylgja svo próf í Understanding Korean society, Economic development in Korea og svo síðast í Konfúsíusma. Auk þess þarf að henda inn einni ritgerð í Globalization and development.
14. des: Síðasta prófið
15. des: Fljúgum til Thailands með millilendingu í Hong Kong. Brottför kl 10:15 um morguninn þannig að það verður ekki beint tími fyrir neitt lokadjamm kvöldið áður.
15. des - 20. des: skoða bangkok, kíkja á markaði, vonandi í eitthvað safari, nudd o.s.frv.
21. des - 26. des: Afslappelsi á Phuket. Jól á ströndinni
26. des: Flug til Singapore. Áramót þar.
1 eða 2. jan: flug heim, væntanlega millilent í London. Eiginlega það eina sem þarf að redda og það þarf víst að gerast sem fyrst þar sem allt er að verða fullt :(

Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :))
Við fengum svo að kíkja inn í einn skúr þar sem viðræður landanna fara jafnan fram og þar gátum við labbað yfir landafræðilega línu yfir til norður Kóreu, þótt húsið sé þannig séð á ábyrgð US og Suður Kóreu. Það sem var samt mest sérstakt við þessa ferð var hvað það var rosalega mikil þögn þarna þegar maður kom alveg að landamærunum og maður fann alveg spennuna sem var þarna.
Myndir frá ferðinni eru loksins komnar hingað
Til að fólk skilji þetta betur ætla ég að útskýra nokkrar myndir.
Lest sem tók okkur niður í göng sem Norður Kóreumenn reyndu að gera yfir til Suður Kóreu fyrir sirca 20 árum eða svo. Gangnamuninn hefði ekki verið nema um 50km frá höfuðborginni seoul og hægt hefði verið að flytja 10-20þús manna hersveitir á klst þarna í gegn. Fleiri göng hafa fundist, en engin svona nálægt Seoul
Líkan af JSA svæðinu. Hvíta línan er milli suðurs og norðurs
Reynt að taka mynd af norður Kóreu í fjarska, en mjög erfitt vegna myndavélabanns á ákveðnum svæðum. Einnig var mikil þoka og því erfitt að ná einhverjum myndum
Lest að koma um einu járnbrautina milli landanna. Það eru víst einhver viðskipti í gangi með einhverjar landbúnaðarvörur (plús hjálpina sem suður sendir norður)
Ef það verður opnað fyrir ferðalög milli landanna verður þetta brúin sem labbað verður yfir. Hér í kring var það sem löngu sundraðar fjölskyldur fengu að hittast kringum 2002 þegar samningar voru gerðir milli landanna. Eins og er er girðing þarna og búið að hengja fullt af minningar og friðar dúkum á það.
Ekki taka myndir. Slatti af svipuðum skiltum allsstaðar.
Inní samningaviðræðu húsinu.
Og þarna eru landamærin sjálf
Séð yfir samningshúsin og aðalbyggingu Norður kóreu þarna hinu megin. Hornið sem sést í vinstra megin er aðalbygging suður kóreu á svæðinu.
Fyrsta/síðasta lestarstöðin í suður Kóreu. Var byggð fyrir nokkrum árum síðan en er ekkert notuð. Eitt af þeim atriðum sem hefur verið gert til að reyna að ýta undir samskipti ríkjanna.

En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um.

Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar.
Það er þó frábært hvað þessi umræða hefur fengið að haldast í þjóðfélaginu síðustu daga, ef marka má fréttavefi, umræðuþætti og blog umræður á netinu. Mjög sáttur með það og vonandi að einhverjir foreldrar sjái hvernig kirkjan er að troða sér inní skólana, sem eiga jú samt að vera þannig úr garð gerðir að þar sé ekki mismunað börnum t.d. á grundvelli trúar.
Furðulegast þykir mér þó að sjá framferði biskups og kirkjunnar gegn Siðmennt (og Vantrú) þar sem Siðmennt er hreinlega gert upp skoðanir og reynt að troða þeim að í öllum fréttatímum til að fá fólk til að halda að félagið sé t.d. á móti og vilji breyta þjóðfánanum og þjóðsöngnum (sem væri nú alveg rétt að breyta reyndar og þá aðallega vegna erfiðleika við að syngja hann) auk þess að vilja alla trúarbragðafræðslu úr skólum og að hætta með litlu jólin og páskaföndur. Þetta er auðvitað algjör rugl og hefur aldrei verið á stefnuskránni, en það hindrar samt ekki kirkjunar menn að koma fram með svona sleggjudóma sem aðrir éta svo ógagnrýnislaust upp.

Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll.
Einnit langar mig að benda á hljómsveitirnar Moldy Peaches og Beirut. Moldy peaches alveg yndislega hrátt rokk og Beirut í góðum indie swing.

Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel :( Fraus aðeins á fyrstu spurningunni og þar við sat og ég var hálf ónýtur í hausnum það sem eftir lifði prófsins. Vonum samt að þetta náist. Á morgun er svo próf í understanding korean society, frekar bjartsýnn á það.

Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (10)

Leiðarvísir að Everybody með Cocktail Vomit
Posted on 11.22.07 by steini @ 8:05

Cocktail Vomit - Everybody (rækjusalat)

Are you somebody? Not everybody can be somebody. Well I’m somebody and you are nobody! Nobody!! HAHAHA
You are just a rækjusalat. I’m from Reykjavík Iceland, the best country in the world and I’m a hrokagikkur. You lousy backpacker, go back to Germany.
Duduududud……
Vikings, Gullfoss, Geysir, The Blue lagoon, Vigdís Finnbogadóttir, glaciers, harðfiskur and Jón Páll. Malt og Appelsín, Keikó, Eiríkur Hauksson, Eurovision parties, the Icelandic horse, beauty queensbrennivín, BRENNIVÍN, brennivín, breeeennivín…


Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (3)

brjálaða lið
Posted on 11.12.07 by steini @ 5:13

Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið.

Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni.

Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið :) Það væri töff.

Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld.
Jamendo er snilld. Afhverju var enginn búinn að segja mér frá þessu áður??


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Kúltúra og Sniðugt stöff og Tónlist
Svör: 1 svar komið

þetta reddast allt
Posted on 11.01.07 by steini @ 4:58

Orðið frekar langt síðan maður hennti inn færslu hér svo ætli það sé ekki kominn tími á nýja. Vill byrja með að þakka öllum fyrir góðar kveðjur á afmælisdaginn, gaman að fá svona frá fólki.
Hér í Kóreu er svo byrjað að hausta töluvert. Hitinn lækkar dag frá degi og er örugglega núna svona kringum 8-10°c á daginn og kringum frostmark á nóttunni. það góða við þetta er samt að þetta þýðir ENGAR MOSKÍTÓ!!! Þannig að ég mun geta sofið rótt það sem eftir er ferðarinnar.
Búið að vera töluvert að gera síðustu daga og vikur. Eftir prófin var skellt sér á smá djamm og svo er Palli búinn að vera á fullu í trommuskólanum og báðir búnir að kíkja í klifur. Einnig fórum við á Nanta sýninguna síðasta mánudag, en þar eru eldhúsáhöld notuð sem áslátturshljóðfæri og smá gríni blandað í þetta. Þó sýningin hafi verið smá barnaleg á köflum (enda fjölskyldusýning), þá var þetta mjög flott show og skemmtileg tónlist. Um helgina ætlum við Palli svo að skella okkur með skiptinemunum í helgarferð uppí þjóðgarð sem er einhverja 2-3 tíma í burtu frá seoul. Ætlum þar að labba um á daginn og fara í heita pottinn hjá hótelinu á kvöldin. Verst er að við eigum ekkert af hlýjum fötum þannig að maður þarf að fara að spreða smá í hlýja peysu og föðurland á morgun. Vonum að það verði ekki of dýrt.
Í gær kíkti ég svo á Namdaemun markaðinn hér í Seoul, en hann er einn af stærri mörkuðunum hér. Þetta eru mest megnis einhverjar litlar þröngar götur þar sem selt er allskonar ekta kóreskur varningur. Allt frá geimverulegum heilsurótum yfir í myndavélar og ipoda. Keypti mér nú ekkert, en fann ágætis verð á kóreska þjóðbúningnum og sá nokkra cool boli sem ég fjárfesti kanski seinna í. Í leiðinni skoðaði ég svo gamla suður hliðið af Seoul, sem heitir einmitt Namdaemun :)
Myndir frá hliðinu og markaðinum hér (sorry hvað ég tók fáar myndir frá markaðinum, gleymdi mér alveg í að skoða :))

Þá er fyrsta sería af Californication búin og ég get bara sagt að ég sé svona nokk sáttur með hvernig hún endaði. Þó að þetta hafi endað með smá væmnu dæmi, þá er bara að vona að sería 2 tækli þetta á krassandi hátt eins og þeirra er von og vísa.

Sá frétt um daginn á mbl sem mér fannst frekar asnaleg. Þar var verið að segja frá ofsaakstri einhverstaðar úti á landi og í stað þess að segja “ofsaakstur” eða “glannaakstur” eða eitthvað í svipuðum dúr, þá var sagt “methraði”. Það var svona eins og höfundur væri að segja frá því að met hefði verið slegið í hraðakstri á landsbyggðinni, en hver er svo venjulega afstaða fólks til meta? Jú að bæta þau…

Það er svo einkennilegt hvernig allt virðist reddast hjá okkur Palla. Á þriðjudaginn eftir Nanta showið sem ég talaði um hér að ofan, þá áttum við víst að vera með kynningu á ákv. umfjöllunarefni í Understanding Korean Society. Einhverra hluta vegna vorum við alveg búnir að stimpla það í hausinn á okkur að það væri ekki fyrr en næsta þriðjudag svo við vorum ekkert að stressa okkur yfir þessu þar til um morguninn þegar ég kíkti óvart á námsáætlunina og sá nöfnin okkar. Mættum svo í tímann hálf skömmustulegir til að heyra kennarann segja að hann þyrfti að fara fyrr þennan daginn og því gæfist ekki kostur fyrir allar kynningarnar og kynningin hjá mér og Palla yrði að bíða þar til í næstu viku. Já, það er gaman af þessu :D

Djöfull finnst mér kostulegt að fylgjast með því að verið sé að breyta biblíunni til að gera hana meira political correct fyrir nútímann auk þess að reyna að koma meira jafnræði í hana og minnka fordóma gangvart minnihlutahópum. Ætli kirkjan sé nokkuð að gera þetta vegna þeirrar tilvistarkreppu sem hún er í og vegna þess að uppgötva að fólk er að snúast gegn henni? Væntanlega. En það skrítnasta við þetta allt saman er að meðan hún reynir að höfða til nýrra hópa þá snýr hún næstum algjörlega baki við þá hvað mest trúa á guð kirkjunnar og hans boðskap og hreinlega breytir merkingum nokkurra versa.
Enn betra finnst mér samt að meðan nýja political correct biblían selst eins og heitar lummur, þá selst bók sem rökrætt er um hvort sé rasísk, tíu litlir negrastrákar, mun betur og situr nr. 1 á sölulistum :)
Það ætlar greinilega bara að fara þannig að hvað sem kirkjan gerir, þá vill almenningur gera eitthvað annað… og ég er að fíla það :D

Nýja tónlistin er svo klárlega Datarock. Þakka Steina bróðir kærlega fyrir að hafa kynnt mig fyrir þessu. Tekur smá tíma að melta, en eftir það er þetta snilld.


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Kórea og Kúltúra og Nöldur og Trúmál og Tónlist
Svör: Ekkert ennþá

ruslaslagur
Posted on 10.22.07 by steini @ 5:39

Helgin búin og komið að prófaviku. Fórum í eitt próf í dag sem er væntanlega það þyngsta, svo kemur annað sem er væntanlega smá erfitt á morgun og vonandi létt próf á föstudaginn. Prófið í dag gekk bara ágætlega. 6 spurningar um national security og 75 min til að svara. Var með 4 af þessum spurningum nokkuð góðar, 1 ágæta og 1 frekar slappa. Vona samt að ég fái einhver stig fyrir hana (mismunandi vægi fyrir hverja spurningu og þessar 2 sem gengu ekkert svo vel voru lágt eða miðlungs rate-aðar)
Það eru svo komnar inn myndir frá föstudagskvöldinu, en þá héldum við Palli partý í íbúðinni og kíktum svo smá út eftir það með fólkinu. Laugardagurinn var svo bara tekinn rólega, tekið til eftir partýið og aðeins kíkt á lærdóm. Einnig lentum við í ruslaslag við húsvörinn en hann öskraði eitthvað á okkur þegar við vorum á leið út með ruslið. Loksins kom annar Kóreubúi okkur til aðstoðar og útskýrði fyrir okkur að ruslið þyrfti að vera í ákveðnum pokum (þannig skildum við hann allavega). Því fórum við út í búð og keyptum þannig poka og allt gekk upp þann daginn. Engu að síður líður manni núna eins og glæpamanni þegar maður fer út með ruslið, veit ekkert hvort maður er að gera það rétt eða ekki…

Undanfarna daga er ég búinn að vera aðeins að kanna nýja tónlist. Fyrst af öllu er það nýi Radiohead diskurinn. Hef hingað til ekki verið neinn stór aðdáendi, þótt mér finnist þetta góð hljómsveit. Nú er ég búinn að hlusta á In Rainbows 3-4x og þótt þetta sé góður diskur, þá finnst mér hann ekki eins frábærlega góður og margir eru að tala um. Diskurinn rennur rosalega vel í gegn, en það vantar eitthvað meira finnst mér. Einhverja góða hápunkta. Reyndar eru lögin Weird Fishes/Arpeggi og 15 Step að mínu mati þau bestu, en það vantar eitthvað meira. Þetta er alls ekki það besta sem radiohead hafa gert.
Næst er það nýi diskurinn hjá Kent, Tillbaka till samtiden. Það sama á við um Kent og Radiohead, ég bjóst við mun meira af þeim, þótt þetta sé ágætis diskur. Diskurinn er aðeins lágstemmdari en fyrri verk þeirra Kent manna sem ég hef hlustað á, en hefur að geyma töluvert meiri elektróník, sem ég myndi helst vilja í burtu frá þeirra verkum - en það er ég. Er ekki enn komin með nein uppáhaldslög, en þrátt fyrir það held ég að diskurinn muni vinna á með meiri hlustun, jafnvel betur en Radiohead diskurinn.
Fann svo á tölvunni diskinn Has Been með William Shattner, en þeim manni kynntist ég þegar Sibba leyfði mér að hlusta á Common People (pulp lag) í hans útsetningu á síðasta ári. Gleymdi svo alltaf að hlusta almennilega á diskinn, en hann er að koma mér skemmtilega á óvart. Meðan sumt á disknum er næstum algjört rugl og rusl, þá er annað algjör snilld. Common people stendur klárlega uppúr, en þar á eftir eru t.d. It Hasn’t Happened Yet, Has Been og Real.
Það þarf svo varla að taka það fram að soundtrackið úr Death proof er að standa undir væntingum. Quentin klikkar ekki frekar en fyrri daginn og maður kemst aftur í svipaðan fíling og þegar maður horfði á myndina við að hlusta á soundtrackið.

He wears a red bandana, plays a blues pianna, In a honky-tonk, down in Mexico

Síðasti diskurinn er jafnframt sá sem ég hef fílað hvað mest, eiginlega bara langt síðan ég hef orðið svona hrifinn af tónlist við fyrstu hlustun, er diskurinn Back to Black með Amy Winehouse. Ég hefði auðvitað fyrir löngu átt að vera búinn að uppgötva kjellu, en sögur um 23 ára stelpu sem hagar sér eins og blanda af Lindsey Lohan og Brittney Spears hefur haldið mig í órafjarlægð frá því að langa að hlusta á hana. Ekki bætir svo að ég er hálf útvarpsheftur og er sjaldan að reyna að koma mér inní mainstream hlustun. En boy oh boy, djöfull er þetta mikil snilldar tónlist. Þessi rödd er fuckin bjútífúl og þessi blanda við 50′-60′ frank sinatra og co/jazz/soul er algjörlega að gera sig. Allur diskurinn er í heild frábær, þótt lagið You Know I’m No Good standi uppúr. Þetta er klárlega diskur sem ég mun fjárfesta í næst þegar ég kem við í geisladiskabúð, ekki spurning. Og var ég búinn að segja hvað hún er með töff rödd??? djöfullsins snilld.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Kúltúra og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (5)

« newer posts
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
kvikmyndir
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
allt í volli
fullir ökumenn
árið 2008 í stuttu máli
jólagjöf
áhugavert myndasafn og tónleikar.
staður, stund og ímynd
skókast
full-control zone í N-Kóreu
steve jobs í kringlunni áðan
Fínt föstudagskvöld og hörmuleg W
blússandi góðæri í skeifunni
það vilja allir kosningar strax, vilji þjóðarinnar !!!
merkilegur prestur
kaupþing að gera það gott í Sviss, setja met og svona
takmarkið

Eldra efni
January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér