|
Posted on 11.23.08 by steini @ 18:27
Maður getur ekki annað en hrósað honum Hirti Magna sóknarpresti fríkirkjunnar fyrir þessa predikun sína. Hann er að hitta naglann á höfuðið þarna. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Trúmál Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03
Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar. — HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt. Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.03.08 by steini @ 15:10
Las yfir nýjasta helgarsprokið á andríkisvefnum. Rosalega getur sumt frjálshyggjufólk verið íhaldssamt. Maður hefði haldið að það væri víðsýnna og framsæknara en þessi grein gefur til kynna. Einnig að einhver rök fælust á bakvið greinarnar hjá þeim eftir 12 ár á vefnum og oft á tíðum ágætis skrif. Þessi grein er þó algjör undantekning þar á. Ætlaði að gagnrýna sérstaklega tvö atriði varðandi greinina, en sá svo að Matti á Vantrú var búinn að fiska þau upp einnig. Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík og Trúmál Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.30.08 by steini @ 3:05
Afhverju setur fréttamaður á mbl.is gæsalappir utan um orðið trú í fréttinni sem ber yfirskriftina Doherty tekur “trú”? Skráð sem: Fréttir og Trúmál Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.22.08 by steini @ 15:20
Þegar hefðbundnum fyrirlestrum og verkefnatímum/vinnu er lokið er gaman að kíkja aðeins á smá tölfræði í þessu samhengi. Þetta voru sem sagt 10 vikur, 50 fyrirlestrar (3x 40min) = 100 klst, 39 verkefni = 0,78 verkefni á hvern virkan dag eða 3,9 verkefni í viku. En af þessum 39 verkefnum voru 2 þeirra aðeins stærri en önnur, ritgerð í alþjóðastjórnmálum og skýrslugerð og kynning í skoðanakönnunum. Búinn að fá einkunn úr öllu nema þessum tveimur verkefnum og er bara nokk sáttur. Geri ekki ráð fyrir lélegri einkunn fyrir skýrsluna, en er ekki alveg viss með ritgerðina, hún gæti fallið báðu megin. — Yndislegt að sjá kirkjunnar menn, sem hafa samþykkt viss atriði sem sannleikann, nú vilja breyta þeim vegna þess að þau passa ekki nútímafólki nægjanlega vel. Er ekki bara næsta skref að segja það hreint og beint út. Biblían og kristni er alls ekki jafn óskeikul og margir vilja halda. — Það er merkilegt hvernig alþjóðavæðingin hefur orðið til þess að opinberir embættismenn geta varla sagt skoðanir sínar lengur á opinberum vettvangi. Utanríkisráðherra Frakka segir um morguninn á miðvikudaginn að Evrópusambandið eigi að skoða þann möguleika að sniðganga opnunarhátíð Olympíuleikanna til að gagnrýna gjörðir Kínverja gagnvart Tíbetum. Nokkrum tímum seinna dregur hann orð sín til baka og segir að mannréttindi verði stundum að víkja fyrir efnahagslegum hagsmunum. Ég hefði alveg búist við að heyra þetta frá bandarískum ráðmönnum, en ég hélt að Frakkar væru nú aðeins meira nýmóðins. Ef hagsmunadreifingin er orðin slík og sumir aðilar alþjóðasamfélagsins orðnir það stórir að þeir geti fælt alla gagnrýni frá sér í krafti stærðar, þá erum við komin út í slæma hluti. Fólk (og opinberir embættismenn) eiga að geta bent á ranglæti þegar þeir sjá það án þess að þurfa að fá bakþanka um hvort réttlætið geti leitt af sér efnahagslegar refsingar. — WTF???”$$%#$% þessi frétt vekur upp svo margar spurningar en svarar engu!! — og já, það verður ekkert quiz þessa helgi. Reyni að henda inn nýju í næstu viku. Skráð sem: Bifröst og Hugleyðingar og Sniðugt stöff og Trúmál Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.11.08 by steini @ 11:36
Jónas hittir ágætlega naglann á höfuðið hér, þótt það sé búið að fjölga dauðasyndunum hjá kaþólsku kirkjunni, þá var gleymt einni mikilvægri synd sem kaþólskir prestar hafa mikið stunda, barnaníð. Reyndar er hægt að segja að þetta sé hluti af losta, en engu að síður finnst mér þetta vera það stórt vandamál hjá kaþólskum prestum að páfinn hefði átt að koma þessu að líka og skerpa enn frekar á að þessir menn kæmust ekki til himnaríkis. Skráð sem: Trúmál Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 02.24.08 by steini @ 19:51
helvítis kirkjuklukkur. Þó það sé sunnudagur og það sé einhver voða heilagur dagur í augum kristinna (sést það ekki vel í íslensku samfélagi í dag?) þá er algjör óþarfi að vera með 10 min kirkjuklukkusóló 3-6x yfir daginn. Ef ég má ekki vera með partý og læti á nóttinni, þá á helvítis kirkjan ekki að mega vera með kirkjuklukkusóló sem heyrist í órafjarlægð þegar henni hentar. — Fyndin grein í New york magazine um fólk sem velur sér bara föt í sama litnum. Blár, hvítur, brúnn, grænn og grár. Frekar súrt, en skemmtilegt Skráð sem: Nöldur og Trúmál Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 01.29.08 by steini @ 18:36
Þetta skref Kristjáns er vissulega góðs viti, þarna er verið að reyna að minnka mismununa. Aftur á móti hlýtur fólk að sjá að þarna er aðeins verið að laga eina mismununina, meðan önnur heldur áfram að vera til, þ.e. að trúlausir þurfi að borgar sóknargjöld þegar þeir eru ekki í neinum sóknum. Skora á Kristján og aðra alþingismenn að ganga skrefinu lengra og afnema að fólk skráð utan trúfélaga sé látið borga þennan skatt. edit: Svo ég haldi nú aðeins áfram. Mæli með að sem flestir kíki á þetta skjal. Þetta er sundurliðun á útgjöldum úr ríkissjóð til ríkiskirkjunnar. Skráð sem: Pólitík og Trúmál Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34
Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi). — Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :)) En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um. — Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar. — Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll. — Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel — Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist Svör: It´s all happening! - (10) |
|
Posted on 11.29.07 by steini @ 7:03
Ég veit ekki alveg hvert ég á að snúa mér þessa dagana. Er eiginlega bara hálf ringlaður af furðu yfir því sem ég sé að Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra, er að gera þessa dagana. Mér hefur nefnilega aldrei líkað það vel við þau áhersluatriði sem hún hefur verið að standa fyrir og hreinlega aldrei líkað vel við hana sem stjórnmálamann/konu hingað til. En eitthvað er að breytast. Þorgerður er byrjuð að setja stein í götu kirkjunnar varðandi aðgang þeirra að skólum landsins, setur fram nýtt frumvarp um skólamál þar sem orðin “kristilegt siðferði” er tekið út og mun skárri skilgreining sett í staðin. Einnig reynir hún að hindra að fermingarfræðsla sé næstum hluti af skólastarfi og að ferðir á vegum kirkjunnar, t.d. í vatnaskóg, megi vera á skólatíma. viðbót: gleymdi auðvitað að minnast á afnám samræmdu prófanna! Talandi um framþróun. Skráð sem: Pólitík og Trúmál Svör: It´s all happening! - (5) |
| previous posts » |
