|
Posted on 11.14.08 by steini @ 22:35
Hér má sjá spurningalista sem Obama lætur fyrir umsækjendur um háttsett störf sem hann mun ráða í sem næsti forseti. Þessi listi hefur víst verið viðurkenndur af þeirri nefnd sem sér um forsetaskiptin fyrir Obama þannig að þetta er ekki bara eitthvað djók. Ath, er líka birt á nytimes síðunni. Meina hver á að geta verið í þessum stöðum meðan spurningar eins og þessi eru í listanum:
Hver hefur ekki gert sig af fífli eða sagt eitthvað vitlaust á netinu? Það er eins og hann sé að leita sér að starfsfólki sem hefur aldrei farið online!
Ef við miðum við gamla gengið, þá er þetta um 4000 kr. Það er ekki meira en 2-3 cd diskar úti. Ekki hátt limit sem maður hefur greinilega til að fá að sækja um vinnu
og
og
Er ekki verið að grínast ? — Hvað sem manni finnst um trú, trúarbrögð eða að peningum sé eytt í kirkjur verður það ekki tekið til baka að margar kirkjur eru mjög flottar og/eða íburðarmiklar. Hér er aftur á móti listi yfir 20 óvenjulegar kirkjur og merkilegt nokk eru 2 íslenskar kirkjur á listanum. Mæli samt með að fólk renni í gegnum þennan lista og tékki t.d. á kólumbísku kirkjunni. Hún lookar mjög töff. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og Pólitík og USA Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.29.08 by steini @ 18:14
Ef fréttir af glitni voru stórfréttir í nótt og í morgun, þá hljóta þessar fréttir um að öldungaþingdeild Bandaríkjanna hafi fellt tillöguna um björgunaráætlun að vera RISAfréttir. Skráð sem: Dagleg skrif og Heimsmálin og USA Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 04.05.08 by steini @ 20:59
eftirtaldi aðilar/hlutir fá sérstakar þakkir vegna viknanna sem voru að líða með tilheyrandi prófalestri, pirringi og vonleysi á köflum. Þetta er það sem gerði að verkum að maður hélt geðheilsunni og er bara þreyttur núna eftir prófin en ekki algjör taugahrúga.
Magnús fyrir að benda mér á þetta video þegar maður var alveg að fara yfir um. Another late night og Late night tales seríurnar auk Deck Safari diskanna sem eru einhver besta læru-tónlist sem maður getur fundið. Late night tales með Flaming lips og Groove armada voru sérstaklega öflugir. Air, guðdómleg tónlist sem maður getur notað til að ýta öllu öðru í burtu og fókusa á lærdóminn. Grétar kennari fyrir gott email (sjá neðar). — Prófin gengu annars bara ágætlega, 3 munnleg og 2 skrifleg. Er ósáttur með frammistöðuna í einu prófanna, en það er vegna þess að ég átti að vita allt um efnið. Gekk annars mjög vel í 2 prófum og ágætlega/vel í 2 öðrum.
og svo kostnaðar og nytjagreining. Shit hvað mér líst samt vel á fyrri kúrsinn. Það virðast reyndar vera mismunandi skoðanir á henni og bókunum sem hún skrifar, en ég vona að það muni bara leiða til meira dýnamískra tíma þar sem allir vilja mæta til að kynnast hennar hlið vel svo hægt sé að samsinna henni eða gagnrýna í verkefnatímum. 75% lokaritgerð hljómar líka ágætlega fyrir svona kúrs. Maður fær að kynna sér eitt efni rosalega vel og skoða það ofan í kjölinn (eða allavega frekar vel). — Flott að þetta sé komið á hreint. Reyndar verður maður að hafa í huga að það sem er næst fólki í tíma er líka það sem er því næst í hugsun. Engu að síður ættu þessir menn að vera einna færastir að setja hluti í sögulegt samhengi og velja. Og þó það væri töluverð skekkja í þessu og jafnvel þó þessi tala lækkaði niður í 50%, þá hlýtur þetta að teljast frekar slæmt fyrir hann tvöfalt vaff Bush. — Þetta hljómar vel. Ef einhver á pening og langar að gefa mér eitthvað, má sá hinn sami kaupa svona miða. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og Pólitík og USA Svör: 1 svar komið |
