|
Posted on 07.09.08 by steini @ 13:18
Var að taka myndir af símanum mínum í fyrsta skiptið um daginn, auk þess sem myndavélin var tæmd inná vélina. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum og mánuðum. Hægt er að stækka myndirnar með að smella á þær. Sápuboltinn að byrja. Júlli, Helgi og félagar að teygja á og gera sig tilbúna. Hér er svo sigurlið ársins 2007, en í þetta skiptið fóru dómararnir illa með okkur og við fengum ekki að halda áfram eftir 2 sigurleiki í röð! Komnir inní Kollubúð á föstudagskvöldið og tilbúnir í smá sull fyrir veiðiskapinn sem átti að hefjast á laugardaginn. Aflinn á sunnudaginn. Á myndinni má sjá crewið - háseta, skiptstjóra og stýrimenn. Hópurinn fyrir utan Kollubúð Grillið góða með blómunum. Sagan um þau kemur hér inn fljótlega. Doddinn kominn með framhaldslíf, eftir að hafa verið mest notaða grill síðasta sumars á Bifröst. Hér á eftir eru myndirnar úr símanum, auðvitað í mjög lélegum gæðum. Hér má sjá mynd frá því að Fúsi var steggjaður í fyrra Hér er vel yfirlýst mynd af Chuck cup liðinu á mýrarboltamótinu á Selfossi 2008 Og svo mynd frá Paul Simon tónleikunum í Höllinni (btw, takk kærlega strákar). Eins og sjá má er meistarinn baðaður í ljósi og glampa, svo svipar til sjálfs Jesú Krists! Og svo myndir frá göngunni á Baulu, en þær eru teknar af Sigrúnu Hermannsdóttir. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Myndir og Veiði Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 04.21.08 by steini @ 19:50
Jæja, bara jákvæðar fréttir núna. Einkunnir fyrir vorönn (fyrir utan missó) voru að koma í hús og ég held að ég geti bara verið mjög sáttur. Allavega náði ég öllu og einkunnir úr prófunum eru jafn góðar eða betri en ég bjóst við. — Kolluvatn 27-29 júní!
Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Veiði Svör: Ekkert ennþá |







