Tónlist

Hér eru nokkur lög sem mér hefur fundist áhugaverð gegnum tíðina, eða þá að ég tengi þau við eitthvað sérstakt. Fleiri lög munu bætast hægt og hægt við þetta.

Retro Stefson - Papa Paulo III
Eftir að ég sá Retro Stefson á menningarnótt 2008 heillaðist ég algjörlega af þeim. Þvílík spilagleði og skemmtileg lög. Hér má hlusta á lagið Papa Paulo III, en diskurinn þeirra Montaña, er fullur af góðum lögum.

Mixset #1
Fyrri hluti af mixseti sem ég gerði í jan09. Smá samantekt á því sem ég hef verið að hlusta á síðustu mánuðina. Tracklist

Mixset #2
Fyrri hluti af mixseti sem ég gerði í jan09. Smá samantekt á því sem ég hef verið að hlusta á síðustu mánuðina. Tracklist

Lush - Ladykillers
Annað frábært lag með Lush.

Datner & Kushnir - Shir Habatlanim
Mest underrate-aða lag Eurovision fyrr og síðar. Var í keppninni 1987 og kom frá Ísreal. Klárlega skandall að lagið hafi ekki fengið fleiri stig en það gerði.
Þetta hefur Wikipedia t.d. Um lagið að sega: “The song went on to achieve success, primarily amongst the younger demographic who appreciated their slapstick style presentation, especially in Iceland, where the duo later toured and performed live and in television shows. An English version of the song was also recorded. “

BC Camplight – Blood and peanut butter
Hresst lag frá BC Camplight

Don Ray - Standing in the Rain
Fínt lag tekið úr hinni margrómuðu seríu Another late night/Late night tales. Í þetta skiptið var það Groove Armada sem valdi lagið.

Morning Benders – Lovefool (Cardigans)
Áhugavert cover af Cardigans laginu Lovefool. Þægilega afslappað, ekta fyrir sunnudaga.

Lush - Monochrome
Ein af betri hljómsveitum ársins sem ég uppgötvaði. Samt er þetta gamalt dót, frá um 1990. Aftur var það Late night serían sem kom mér á bragðið, en Palli gamli ýtti mér einnig út í það að skoða sveitina betur og finan þá t.d. Lög eins og Ladykillers, Single girl o.s.frv.

James – Come home
Heyrði remix af þessu lagi fyrst á gömlu Ministry of sound diskunum FSUK (Future sound of UK). Svo bennti Júlli mér aftur á þessa sveit og síðan þá hef ég tekið ástfóstri við hana. Frábært lag með frábærri hljómsveit.

Kraak & Smaak
Hress kósýheit úr Greys :)

Cocktail Vomit – Everybody (rækjusalat)
Hressasta Íslenska sem gert hefur verið auk David með Gus Gus. Hildur og Sibba fengu líka að kynnast því og fluttu lagið út til Singapore.

KT Tunstall – Suddenly I See
Mjög hresst köntrý popp rokk frá KT Tunstall. Kemur mjög sterk inn með þessu lagi.

Charles Wright and the Watts 103rd street rhythm band – Express yourself
Dressman lagið í upprunalegri útgáfu

Kenneth Bager – Fragment eight (the sound of swing)
Einhver crazy dani sem var kom með í brettaferð til Akureyrar með mér, Fúsa, Braga o.fl. Bennti mér á þetta lag. Kenneth Bager er víst fær producer í DK, en þarna hennti hann saman góðu lagi og gaf út sjálfur. Mjög flott allt saman.

Jurassic 5 – Concrete Schoolyard
Besta hip hop sveit sem ég hef kynnst, en ásamt A tribe called Quest og nokkrum öðrum álíka, er þetta aðal undirstaða þess hip hops sem ég hef hlustað á. Lagið er af fyrstu breiðskífu þeirra, Jurassic 5 LP. Síðan þá hafa komið út meistaraverk eins og Quality Control, Feedback og Power in Numbers. Fyrsta platan er samt (og verður örugglega) þeirra topp plata.

Rilo Kiley - Go Ahead
Man ekki alveg hvar ég fékk þetta lag, en örugglega frá sýrðum rjóma. Allavega. Indí tónlist uppá sitt besta. Gott til lærdóms, chills, hugsunar eða bara fyrir allt. Fínasta tónlist

Obadiah Parker - Hey Ya
Þetta er svo skuggalega cool útsetning á Outkazt laginu Hey Ya að ég á varla til orð. Guðgeir var snillingurinn sem benti mér á þetta. Rólegt gítarplokk og flott rödd. Róleg (gargandi) snilld.

The Who - Behind blue eyes
Stundum þarf maður róleg og þægileg lög. Þá er lagið Behind blue eyes með The Who alls ekki svo slæmt.

Ryan Adams - To Be Young
Maður heyrði fyrst í þessum gaur með þetta frábæra lag í kvikmyndinni Old School. Síðan þá hefur hann komið með ömurlega útgáfu af Oasis laginu Wonderwall og eitthvað annað sem ég var ekki að fíla nógu mikið. Engu að síður er þetta lag hressleikinn uppmálaður og fær mann alltaf í gott skap.

Hayseed Dixie - Roses
Þetta mun vera hillbilly útgáfa af laginu Roses með Outkazt. Hljómsveitin er Hayseed Dixie, en það er lítið annað sem ég veit um bandið. Er með nokkra diska með þeim og þetta eru allt blugrass hillbilly cover lög. Nokkur Led zeppelin, aerosmith, mikið af kiss (tribute diskur), darkness og queen, svo eitthvað sé nefnt.

Girls in Hawaii - Time to forgive the winter
Þetta band kom sá og sigraði hjá mér á Reykjavík Trópík. Blanda af rólegum og svo ferskum indí rokk-pop lögum. Held að fæstir hafi eitthvað verið að gera miklar vonir til þeirra, en þeir voru að mínu mati besta hljómsveit kvöldsins.
Lagið þeirra Time to forgive the winter var þeirra besta lag, en maður sér það eftir að hafa hlustað á studio upptökuna að þeir eru mun betri á sviði en í studio-i. Ná að vera mun kröftugri. Gítarleikararnir voru líka nett hressir og tóku góðan þátt í showinu sem söngvarinn sá annars aðallega um. -Mjög gott band.

Cut Chemist - The Garden
Var að fá í hendurnar nýtt lag með meistara Cut Chemist (snillingurinn á bak við Jurassic 5 og hinn helmingurinn af góðu samstarfi við DJ shadow). Lagið heitir The garden og er af óútkomnum disk sem heitir The Audiences’ Listening. Þægilegt lag með dj áhrifum. Held að ég geti best lýst þessu sem “where sunset meets turntablism”.
Flott lag sem fer beint á ipodinn og ég býð spenntur eftir meira efni af þessum disk.


Architecture in Helsinki - Souvenirs

Læt svo lag inn með áströlsku hljómsveitinni Architecture in Helsinki. Lagið heitir Souvenirs og er af fyrsta disk þeirra, Fingers crossed. Sumt af því sem þessi sveit gerir minnir mig á Múm, þó að þetta lag geri það kanski ekkert svo mikið. Engu að síður fínasta lag og stórgóð hljómsveit.
Þarf bara að fara að komast í nýrri diskinn þeirra, en hann kom út í fyrra.

The Dandy Warhols - We Used To Be Friends
Pop, rokk, sækódelik, rokk & roll. Dandy eru það allt og eru í leiðinni aðeins of töff. Eiga fullt af fanta góðu efni eins og Boys better, Everyday should be a holiday, Plan A, Godless, Get Off, Bohemian Like You, Not If You Were The Last Junkie On Earth og mörg fleiri. Allir að tékka á þessu og missa sig í gleiðinni…

Kim Wilde - Kids in America
Veit ekki afhverju ég fíla þetta lag, það er þannig séð ekkert spes, enda gott dæmi um 80′ lag :). Samt sem áður er eitthvað við það sem er að heilla mig.
Heyrði lagið fyrst í GTA:VC, en þar var það á flash fm ef ég man rétt, good times… (þ.e. í gta, ekki að hlusta á flash fm).

Pink Floyd - The Great Gig In The Sky
Að mínu mati besta lag Pink Floyd, ásamt Wish you were here. Steinar kynnti mig fyrir þessu lagi almennilega þegar hann lét þetta á disk sem kallaðist Softcore og var í bílnum mínum svona sircabát 1 ár. Þetta var lag nr 11 og var örugglega oftast spilað.
Þetta fær að fara hér inn sem smá svona tribute þar sem Roger Water er væntanlegur á klakann.
Skora hér með á alla sem ekki hafa hlustað á Pink Floyd að gera það. Hefur hingað til verið ein mesta tónlistarupplifunin fyrir mig.

Beastie boys og fatboy slim - Peanut butter and jelly
Hérna kemur eitt sem mér fannst mjög nett fyrir nokkrum árum (finnst það reyndar ennþá). Þetta er sem sagt remix með fatboy slim og víst orginal lag (eða sampl, veit ekki alveg) með beastie boys.
Ég veit ekkert mikið um þetta þar sem ég hef aldrei séð þetta áður eða eftir að ég fann þetta á audiogalaxy, meðan það var ennþá nett skráskiptarsíða. Það sem ég veit eftir að hafa flett þessu aðeins upp er að þetta er lag sem var á Body movin smáskífunni hjá BB og síðar sem aukalag á ásrölsku útgáfu Hello nasty.
Allavega, svalt lag.

Client - Radio
Flott kvennmannsband með stórskemmtilegt lag sem tekur samt góðan tíma að venjast. Eitthvað sem maður þarf að fara að athuga betur, enda gæðatónlist á ferðinni.

Handsome boy modeling school - The truthTveir nettir pródúserar taka höndum saman og útkoman verður svona líka drullunett. Af disknum So…How’s Your Girl? sem verður örugglega næsti keypti diskur hjá mér. Trip hop, hip hop, flott tónlist. Kallið þetta það sem þið viljið en þetta stendur allavega fyrir sínu.

Cranberries - In the ghetto
Fínasta cover af laginu In the ghetto með Elvis. Ekkert meira um það að segja, nema ég mæli með að fólk skoði aðeins þessa hljómsveit (meira en bara lögin zombie og ode to my familie), þar sem þetta er flott band.

Supergrass - We’re not Supposed To
Þetta lag er kanski ekki besta dæmið til að kynna hljómsveitina, en engu að síður mjög skemmtilegt lag. Það er eitthvað við umgjörðina sem minnir mig á áhyggjulausa barnæsku þegar ég heyri þetta lag. Mjög þægilegt án þess að vera rólegt.

Fastball - Out of my Head
Þetta lag með Fastball var mjög vinsælt 1999. Ef ég man rétt var ég þetta sumar í vinnu í sveit á suðurlandi. Allavega eignaðist ég lagið á geisladisk, hvort sem það var skrifaður diskur eða pottþétt diskur og alltaf þegar maður kom inn eftir langan dag í heyskap og var að fara að sofa, þá var lagið sett á og slakað aðeins á. Enn í dag finnst mér þægilegt að láta þetta á einmitt þegar maður hefur gert eitthvað mikið og er að ná sér niður eftir daginn. Setja lagið bara í gang, leggjast uppí rúm og horfa útí loftið.
Þetta lag hefur einnig verið tíður gestur á skrifuðum diskum sem ég læt í gang þegar ég fer að sofa á kvöldin.

Ween - Roses are Free
Eitt af mörgum lögum sem ég fann í gegnum safn disk sem franska raftónlistarsveitin Air gaf út og kallast Deck Safari. Er svona einskonar mix diskur þar sem þeir setja fullt af stuffi sem þeir Air liðar hafa fílað í gegnum tíðina.
En að hlómsveitinni Ween, þá ætla ég bara að láta fylgja það sem Allmusic.com segir um þessu furðulega merkilegu sveit:
“Ween was the ultimate cosmic goof of the alternative rock era, a prodigiously talented and deliriously odd duo whose work traveled far beyond the constraints of parody and novelty into the heart of surrealist ecstasy. Despite a mastery for seemingly every mutation of the musical spectrum, the group refused to play it straight; in essence, Ween were bratty deconstructionists, kicking dirt on the pop world around them with demented glee. Along with the occasional frat-boy lapses into misogyny, racism, and homophobia, the band’s razor-sharp satire cut to the inherently silly heart of rock & roll with hilariously acute savagery; fueled by psilocybin mushrooms and an all-consuming craving for hot meals, Ween created its own self-contained universe, a parallel dimension where the only sacred cow was their own demon god, the Boognish.”


Ween

Primal Scream - I’m comin’ down
Rock, pop, ambient, indie o.s.frv. Þetta eru allt orð sem manni dettur í hug þegar maður hlustar á Primal Scream. Þetta er nefnilega jafn fjölbreytt hljómsveit og hún er skrítin.
Þetta lag er tekið af plötunni Screamadelica sem kom út 91 og er að mínu mati þeirra besta plata. Þarna eru lög eins og hið súrskemmtilega Loaded, rolling stones lega Movin’ on up og rólegu lögin I’m comin down og Shine like star.
Skylda að kíkja á…


Screamadelica

Daft Punk - Teachers
Franska danstónlistarsveitin Daft Punk er flestum vel kunn. Þetta lag er af þeirra fyrstu plötu Homework sem kom út 1996 og var svo sannarlega
vel tekið, enda gæðagripur á ferðinni. Einhverjir hafa reyndar viljað meina að þetta sé versta lagið á disknum. Því verð ég bara að vera algjörlega ósammála, enda er þetta, ásamt Da Funk, Around the world og High Fidelity mitt uppáhald á disknum.
Eftir Homework tóku þeir félagar sér langa pásu áður en þeir gáfu út diskinn Discovery (sem ég les alltaf Disco-very), þar sem þeir voru sem fyrr töluvert á undan sinni samtíð og komu með diskóið aftur í danstónlistina sem varð svo vinsælt nokkru seinna. Þeir gáfur svo nýverið út diskinn Human after all, sem verður því miður að teljast með þeirra lakara stuffi.


Daft Punk

Mr Fingers
Mr Fingers er einn af þessum gömlu í electrónískri tónlist. Veit ekki hvað maður á að kalla þetta annað en old-house. En þetta stendur fyllilega fyrir sínu og er með betri house lögum sem ég hef hlustað á, svo einfalt, en samt svo töff.
Mr Fingers er ekki Íslendingum ókunnur því hann kíkti á klakann fyrir u.þ.b. 2 árum og ef ég man rétt, þá spilaði hann á Kapital.


Larry Heard aka Mr. Fingers

Les Rythmes Digitales - Sometimes
Breski danstónlistarmaðurinn með franska nafnið með meistaraverk af plötunni Darkdancer. Lagið er frekar skrítið, með þennan dance tónlistar takt, en svo er söngurinn (sem er geðveikt nettur) og stefið meira svona poppað. Það gerir samt lagið að því góða lagi sem það er.
Fleiri góð lög af sama disk eru t.d. Jacques Your Body (Make Me Sweat) og (Hey You) What’s That Sound.


Darkdancer

Cornershop - Good to be on the road back home
Af plötunni When I was born for the 7th time með Cornershop, kemur indy tónlist eins og hún gerist best. Þetta lag er þar engin undantekning. Cornershop er á þessari plötu á toppi ferilsins (allavega enn sem komið er) og henda fram lögum eins og Brimful of Asha (sem FatBoy Slim remixaði svo eftirminnilega seinna meir), Funky days are back again, Norwegian Wood (gamalt Beatles lag) og svo þessu fyrrnefnda lagi.
Diskurinn í heild sinni er mjög heildstæður, rennur ljúflega í gegnum tóneyrað og lítið hægt að finna að honum. Þeir Cornershop meðlimir nota indversk áhrif sem uppistöðu og það passar líka svona andskoti vel. Allavega gott lag á góðum disk.


When I was born for the 7th time

Flevans - Spooked
Þú kannast örugglega við þetta lag, eða öllu heldur stefið, en veist samt ekki hver flytjandinn er. Það er væntanlega vegna þess að þetta lag hefur verið samplað töluvert oft. Því er það skrítið að maður finni akkúrat ekkert um lagið eða þessa hljómsveit Flevans á netinu. Allavega er þetta mjög “catchy” lag sem er gott að hlusta á oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Lagið er tekið af disknum Another Late Night sem
var tekinn saman af Kid Loco.
Another Late Night er röð af diskum þar sem þekktir raftónlistarmenn
taka saman lög sem hafa haft áhrif á þá. Meðal þeirra sem hafa sett saman diska fyrir þessa seríu eru t.d. Groove Armada, Rae & Christian, Fila Brazilla, Howie B og Zero 7. Einnig hafa verið gefnir út samskonar diskar undir heitinu Late Night Tales, en þar hafa Jamiroquai og Air t.d. hent saman diskum. Flest allt góðir diskar sem búa yfir lögum sem eru sjaldheyrð og góð.


Another Late Night - Kid Loco