Eldri myndir
Hátíðarkvöldverður á Hraunsnefi 05.06.07
Próflokadjamm - Grímuball. 23. mars 07
Ræðukeppni - HHS vs VD 07 + djamm
Ræðukeppni milli HHS og VD ‘07. Umræðuefnið var “Á að banna trúarbrögð” og HHS vann sannfærandi. Lið HHS var: Sandra Ósk, ég, Palli Kvaran og Helgi Þór.
Svo var skellt sér í gott djamm á eftir. (8.mars 07)
Brettaferð til Akureyrar 2-5. mars 07
Bretta og djammferð til Akureyrar. Djamm á Amor og sjallanum, vísindaferð í Vífilfell og ég náði að renna mér niður heila brekku í fyrsta skipti á bretti ever
Flott helgi
Djamm á Bifröst 15.02.07
Þórir og Rúrik kíktu við á Bifröst og djömmuðu fram á nótt. Án efa eitthvað besta eftirpartí sögunnar í miðgarði (batteríið kláraðist, þannig að bara 2 myndir þaðan)
Bifró 2007
Myndir frá sjálfu Bifróvision á Hótel Sögu 2007. Allir í sínu flottasta og tóm hamingja og gleði.
Umbakvöld 2007
Umbakvöldið 2007 sem var haldið á Hreddanum. Fullt af flottum atriðum, en Andri 88 átti klárlega atriði kvöldsins.
Veiðiferð #1
Fyrsta veiðiferðin með fólkinu úr verzló + nokkrum öðrum.
Djamm á Bifröst 30.01.07
Myndir frá djamminu 30.01.07. Einnig nokkrar myndir frá áhorfi á handboltann
Bústaðurinn minn
Á myndunum getið þið séð hvernig maður býr þessa dagana. Í notalegum, ruslaralegum en þægilegum bústað með ljótum gluggatjöldum
Veiðiferð í Kolluvatn í sept 2006
Helgina 11 - 13 sept héldum ég, Kalli, Guðgeir og Þórir í veiðiferð í Kolluvatn á Tröllaskaga. Veiddum 17 fiska allt í allt og mjög sáttir með góða ferð. Guðgeir fór heldur harkalega í drykkjuna á laugardaginn eins og myndirnar sýna
Interrail 2006
Ég og Rúrik fórum á Interrail um mið, austur og suður Evrópu frá 13. júní til 19 júlí 2006. Byrjuðum í Danmörk og flugum svo heim frá Króatíu.
Löndin eru í ferðaröð.
Danmörk
Þýskaland - München
Þýskaland - Berlin
Tékkland - Prag
Tékkland - Loket og Karlovi Vari
Pólland - Krakow
Ungverjaland - Budapest
Rúmenía - Bucarest
Tyrkland - Istanbul
Grikkland - Thessalonika
Grikkland - Aþena
Ítalia - Róm
Ítalía - Feneyjar
Króatía - Porec
Roger Waters í Egilshöll 12 júní 2006
Gamli meðlimurinn úr Pink Floyd með einhverja flottustu tónleika sem ég hef séð á ævinni. tók blöndu af sínum eigin lögum og pink floyd lögum í fyrri hlutanum, en tók síðan allan Dark side of the moon diskinn í einu í seinni hlutanum.
Ljósashow og allskonar visual effects voru stór hluti af tónleikunum (t.d. geimfarinn sem sveif yfir mannhafið)
Reykjavík Trópík 2006
Tónleikar á HÍ lóðinni og Nasa þar sem meðal annars tróðu upp Supergrass, Girls in Hawaii, Ladytron, Hjálmar, Jeff Who?, Benni Hemm Hemm, ESG og mikið fleiri ísl hljómsveitir.
Hugins Partý
Hugins partý hjá skemmtanastjóranum. Skemmtilega ruglaður glaðningur
REunion GG - útskriftarárgangur 2001
Myndir frá Reunion-i GG - útskriftar árgangi 2001 sem haldið var 1 apríl síðastliðinn.
Fyrst var haldið til í sal Kvennréttindafélags Íslands að Hallveigarstöðum, en svo var farið á Pravda.
Nettar myndir af jörðinni
Fékk sent email um daginn með þessum myndum. Drullu flottar myndir frá nokkrum stöðum í heiminum.
“What a wonderful world…”
Bikarleikurinn 2006 - Stjarnan vs Haukar
Bikarleikur kk í handbolta 2006. Stjarnan mætti Haukum í höllinni og fóru með sigur af hólmi.
Súberstar fer svo á kostum sem besta stuðningslið á Íslandi.
Útskriftarferð 2005
Útskriftarferð til Mallorca 2005 með Verzlunarskóla Íslands:
Andri: 1 - 2 - 3
Birna: 1
Gréta: 1
Linda: 1
Rósa: 1
Siggi: 1 - 2 - 3
Steini: 1 - 2
Akureyri
Ferð til Akureyrar fyrstu helgina í janúar 2006. Fólk ætlaði fyrst í brettaferð, en vegna veðurs varð þetta bara að djammi og chilli.
Bústaðarferð með Ívari og fleirum
Ferð í ættaróðal Ólafsættarinnar í Norðurárdalnum með Ívari, frændunum og fleirum. Skemmtilegu myndirnar af Arnari eru þegar hann bað Ásthildi um að vaxa af sér bringuhárin.
Morfís - Mr vs Borgó (8 liða úrslit)
Keppni milli Mr og Borgó í Morfís keppninni. Fór fram einn góðan föstudag í Janúarmánuði 2006. Mr endaði sem sigurvegari með 200+ stigum og Saga meðmælandi Mr var ræðumaður kvöldsins.
Veit alveg að myndirnar eru lélegar, en það verður bara að hafa það.
Selfossferð stuðningsmanna Stjörnunnar
Skemmtilega rugluð ferð til Selfoss þar sem stuðningsmenn Stjörnunnar og reyndar leikmenn m.fl Stjörnunnar völtuðu yfir slaka Selfossmenn.
