|
Posted on 11.27.08 by steini @ 20:38
Ætlar einhver að láta Hagkaup vita að það sé víst kreppa á íslandi, en ekki blússandi góðæri eins og undanfarin ár. Finnst eins og þetta lýsi aðeins of mikilli bjartsýni Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 11.25.08 by steini @ 10:44
Eins og sjá má á frétt Fréttablaðsins í dag þá er það skýlaus krafa þjóðarinnar að kosningar verði haldnar strax! 5,9% vilja kosningu fyrir áramót. Þjóðin hefur talað. Við sáum það á fundinum í gær. Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 11.23.08 by steini @ 18:27
Maður getur ekki annað en hrósað honum Hirti Magna sóknarpresti fríkirkjunnar fyrir þessa predikun sína. Hann er að hitta naglann á höfuðið þarna. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Trúmál Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.23.08 by steini @ 17:53
Á rúv er lítil frétt um Kaupþing í Sviss og að þeir hafi verið lýstir gjaldþrota í vikunni. Einnig að tryggingarsjóður svissneskra banka hafi borgað innistæðu eigendum það sem þeir áttu að fá samkvæmt lögum. En svo kemur stutt setning sem mér finnst mjög merkileg:
Það þurfti sem sagt íslenskan banka og útrásarvíkinga til að koma í fyrsta skiptið viðskiptabanka í sviss í gjaldþrot (sem ekki er yfirtekinn af öðrum bönkum eða komið á annan hátt til bjargar). Þetta finnst mér merkilegt. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: 1 svar komið |
Posted on 11.23.08 by steini @ 3:31
When I was 5 years old, my mom always told me that happiness was the key to life. When I went to school, they asked me what I wanted to be when I grew up. I wrote down “happy.” They told me I didn’t understand the assignment and I told them they didn’t understand life. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 11.22.08 by steini @ 11:53
Ég uppgötvaði hvað ég er skrítinn eftir að ég bað leigubílsstjórann að hækka í útvarpinu því veðurfréttir á rás 2 voru að byrja kl 4 eða 5 þegar ég var á leiðinni heim. — Kanski gaman að bæta því við að utandeildarleikurinn í gær endaði með stórsigri heimsliðsins á leiftra, heil 16 kvikindi, 39-23 sem er einmitt stærsti sigurinn í utandeildinni þetta tímabil
Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 11.19.08 by steini @ 19:28
Þegar maður getur hlustað á tónlist úr tölvuleik eina og sér án þess að vera að spila leikinn, þá hlýtur það að flokkast sem vel heppnuð tónlist. Tónlistin í Grim Fandango er einmitt þannig. Frábær tónlist og frábær leikur. — Varðandi hið árlega jólalan strákar, eru ekki allir game í eitt stykki þannig annaðhvort rétt fyrir jól eða milli jóla og nýárs? Látið vita hvaða dagsetninga hentar best og pælum í því hvar við gætum verið. Skráð sem: Dagleg skrif og Tónlist og tölvur og nördismi Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 11.16.08 by steini @ 23:40
Ætli hafi eitthvað breyst í hugum almennings á síðustu vikum? — Kíkti á Bond í kvöld. Hún er fín, en hún er ekki svo mikil Bond mynd, meira bara endalaus hasarmynd. Ég vil fá minni hasarBond, en meira af uppbyggingu (fyrir svo spennu og hasaratriðin) í næstu mynd. Skráð sem: Kúltúra og Netið Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 11.15.08 by steini @ 20:44
Í dag náði ég að vera nokkuð atorkusamur. Byrjaði reyndar daginn ekki fyrr en eftir hádegi, en fór þá í að hjálpa við að flytja bílhræ (sem verður vonandi að drossíu von bráðar) frá Hafnarfirði yfir á Grensásveg. Því næst kíktum við bræðurnir í síðbúinn hádegismat, tónlistarmarkaðinn í perlunni (sem er ekkert spes), keypti nýjan harðan disk í tölvuna, sótti miða á stórtónleikana í Höllinni í kvöld og fór í ræktina. Stefnan er svo sett eftir nokkrar mín á tónleikana fyrrnefndu. — Langar annars að benda fólki á þessa hugmynd sem ég vona innilega að verði vinsæl hjá Íslendingum. Allavega mun ég senda eins og eitt svona kort á heppinn einstakling í Færeyjum með nafnið Thorstein Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og tölvur og nördismi Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 11.14.08 by steini @ 22:35
Hér má sjá spurningalista sem Obama lætur fyrir umsækjendur um háttsett störf sem hann mun ráða í sem næsti forseti. Þessi listi hefur víst verið viðurkenndur af þeirri nefnd sem sér um forsetaskiptin fyrir Obama þannig að þetta er ekki bara eitthvað djók. Ath, er líka birt á nytimes síðunni. Meina hver á að geta verið í þessum stöðum meðan spurningar eins og þessi eru í listanum:
Hver hefur ekki gert sig af fífli eða sagt eitthvað vitlaust á netinu? Það er eins og hann sé að leita sér að starfsfólki sem hefur aldrei farið online!
Ef við miðum við gamla gengið, þá er þetta um 4000 kr. Það er ekki meira en 2-3 cd diskar úti. Ekki hátt limit sem maður hefur greinilega til að fá að sækja um vinnu
og
og
Er ekki verið að grínast ? — Hvað sem manni finnst um trú, trúarbrögð eða að peningum sé eytt í kirkjur verður það ekki tekið til baka að margar kirkjur eru mjög flottar og/eða íburðarmiklar. Hér er aftur á móti listi yfir 20 óvenjulegar kirkjur og merkilegt nokk eru 2 íslenskar kirkjur á listanum. Mæli samt með að fólk renni í gegnum þennan lista og tékki t.d. á kólumbísku kirkjunni. Hún lookar mjög töff. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og Pólitík og USA Svör: Ekkert ennþá |
| « newer posts | previous posts » |
