Apr 5, 2009 kl 21:09: Bóka flug hjá Air Baltic gegnum ferðaskrifstofuna Just the flight. Flugið er frá Tel aviv 3. júní til Riga og þaðan til London.
Apr 6, 2009 kl 02:45: Bókunin staðfest og ég er búinn að borga.
Apr 17, 2009 kl 02:37: Just the flight sendir mér email og segir mér að Air Baltic hafi breytt (reschedule) fluginu mínu. Senda nýjan miða með þar sem bæði fyrri flugin (Tel-Riga-Lon) eru inni og svo eitt auka flug frá Tel-Riga daginn eftir. Svo stóð einnig á honum Time Change, svo mér fannst líklegt að það væri verið að reyna að færa flugið um dag. Mjög furðuleg framsetning samt á breytingu.
Apr 17, 2009 kl 05:27: Ég sendi spurningu á Just the flight til að fullvissa mig um að flugið hafi verið fært.
Apr 18, 2009 kl 08:30: Fæ fyrsta svarið, já, flugfélagið lagði flugið niður. Ég get samt fengið flug 2. eða 4. júní.
Apr 18, 2009 kl 10:18: Bið um að fá frekar fulla endurgreiðslu, enda um samningsrof af hálfu flugfélagsins að ræða.
Apr 18, 2009 kl 11:07: Starfsmaður Just the flight misskilur beiðnina um endurgreiðslu og heldur greinilega að ég sé að spurja hvort það sé hægt að fá endurgreiðslu. Hann allavega segir að það sé hægt.
Apr 18, 2009 kl 11:11: Staðfesti aftur að ég vilji endurgreiðslu.
Apr 18, 2009 kl 15:25: Panta nýjan miða og breyti ferðinni. Ætla ekki lengur til Ísrael, heldur fljúga aftur frá Damascus í Sýrlandi. Ferðatíminn og ferðahögun breytist óvenjulítið við þetta.
Apr 20, 2009 kl 07:58: Fékk þetta frábæra svar frá Just the flight: “Your booking has now been cancelled and we will refund the card as soon as we have the refund from the airline, this can take upto 10 weeks.”
10 vikur !!! Vá, þvílík þjónusta
Apr 20, 2009 kl 09:54: Svara þeim að þetta sé algjörlega óásættanlegt og krefst þess að fá greiðsluna endurgreidda ekki seinna en í þessari viku.
Apr 20, 2009 kl 11:28: Svar um að þetta muni væntanlega taka styttri tíma. Starfsmaðurinn ætlar að tala við innheimtudeildina.
Apr 20, 2009 kl 12:30: Staðfesting um endurgreiðslu.
Mun svo sjá á visa yfirlitinu á morgun eða miðvikudaginn hvort þetta sé komið inn.
Þrátt fyrir að maður hafi verið frekar pirraður yfir svona bréfi og að flugið hafi allt í einu verið lagt niður og svo svari um hugsanlegar 10 vikur í endurgreiðslu, þá má Just the flight eiga það að einstaklingurinn sem svaraði mér gerði það hratt og örugglega.
April 20th,2009
ferð 2009 |
2 Comments
Gaman að sjá hvað Ástþór hefur verið duglegur að fá myndarfólk á listana hjá sér. Sá sem er t.d. þriðji í suð-vestur (fyrsti maður er reyndar bara tilgreindur, eftir það er stafrófsröð) er einstaklega hæfileikaríkur og góður maður. Hver vill ekki hafa valkost um að geta sett hann á þing?
Hér er svo annar sem virðist vera góður kandídat á hið háa Alþingi
Maggi benti mér líka réttilega á þá skemmtilegu staðreynda ða þegar komið er út fyrir Reykjavík og Suð-vestur kjördæmin, þá sé áhugavert hvað fáir búi innan þess kjördæmis sem þeir bjóða sig fram í. T.d. í N-V kjördæmi, þar eru 2 með lögheimili innan kjördæmisins.
Fékk bréf í dag þar sem mér var tilkynnt á fallegum pappír frá Logos lögfræðisstofu að nýtt félag í eigu Lýðs og Ágústs bakkabræðra væri tilbúið að taka yfir Exista bréfin mín á genginu 0,02 (fór það ekki hæðst í eitthvað 35-40?). Eftir að hafa staulast í gegnum bréfið og lagalegar ástæður þessa yfirtökutilboðs var svo loks komið að uppgjörinu. Þeir voru sem sagt til í að kaupa hlutina mína 160 á genginu 0,02 og = 3 ISK. Og til að gera tilboð í þessar 3 krónur, þá er öllu hennt á fallegan pappír, sent heim til mín í stóru umslagi og svo svarumslag og ég veit ekki hvað og hvað. Ég á bara að kvitta á þetta, láta votta undirritunina og labba út á næsta pósthús og senda svarið. Svar uppá 3 krónur um hvort ég vilji láta taka yfir bréfin mín eða ekki. Ég held í alvöru að fáir muni nenna að elta þetta tilboð þeirra, enda ekki einusinni 3 krónu virði að labba út á pósthús.
April 15th,2009
Viðskipti | tags:
exista |
1 Comment
Hvenær ætla samt stjórnmálamenn að fara að tala um það sem máli skiptir. Þ.e. tala um hvernig eigi að bregðast við þeim vanda sem við erum í, hvar og hvernig á að skera niður, hvernig verður með skattahækkanir, hvernig verða þær framkvæmdar, einhverjar nýjar hugmyndir um atvinnusköpun, stóriðju o.s.frv.?
Eins og það er nú ótrúlega lélegt hvernig sjálfstæðisflokkurinn hefur komið fram og að virðist þegið beinar mútur frá stórfyrirtækjum o.s.frv., þá er slíkt uppgjör ekki jafn mikilvægt í dag og framtíðarsýnin og lausnirnar. Ef Samfylkingin og vinstri grænir vilja bara láta kjósa sig út á óvild Sjálfstæðisflokksins, þá eru þeir á rangri grein. Þeir eiga auðvitað að koma fram með eitthvað bitstætt. Eitthvað sem fær mig og aðra kjósendur til að vilja kjósa þá, eitthvað sem fær okkur til að nenna að mæta á kjörstað til að kjósa áfram stefnu og lausnir.
Allavega hafa afglöpp Sjálfstæðisflokksins fengið mig til að vilja skila auðu eða jafnvel frá því að vilja mæta á kjörstað eftir 10 daga og greiða þeim atkvæði. En ef ég á að mæta og kjósa einhvern annan, eða sleppa því að skila auðu, þá vil ég sjá einhverjar lausnir og hugmyndir. Þetta helvítis kaðrak og rugl síðustu daga sem er basically bara “þú ert spilltur”, “nei þú ert spilltur” “þú ert hægrimaður og villt ekki velferð” eða “þú ert vinstri maður og villt hærri skatta” fær mig bara til að hrista hausinn. Ég vil málefnalega umræðu þessa síðustu daga fyrir kosningar!
—
Flokkarnir segjast nú jafnframt sammála um að við ráðningar í störf hjá bæjarfélaginu verði framvegis farið eftir faglegri úttekt.
Merkilegt þegar tveir flokkar ná að sannmælast um að gefa út yfirlýsingu sem er svona skemmtilega orðuð. Sem sagt, þeir ætla loksins að fara að láta fagleg vinnubrögð ráða för. Væri gaman að fara yfir gamla bókhaldið og skoða fundargerðir aftur í tímann
-via
Svona til að halda í hefðina væri nú ekki vitlaust hjá Andra Óttarsyni að koma með tilvitnun í krossfestinguna við það tilefni að hann sé hrakinn svona úr flokknum á ekki síðri degi en föstudeginum langa. Það væri svo hægt að misskilja hana duglega í fjölmiðlum og telja að Andri væri að líkja sér við Jessa kallinn.
Það er samt mjög skrítið að horfa svona uppá Sjálfstæðiflokkinn tæta sig sundur að innan á síðustu dögum. Allt að koma í ljós, allir benda í aðrar áttir en að sjálfum sér og hver reynir að bjarga sjálfum sér.
Greinilegt að Hume kallinn hafði rétt fyrir sér þegar hann talaði um að maður gæti aldrei verið viss um hvað myndi gerast, þótt það hefði gerst 100x áður og að samband orsakar og afleiðingar væru ekki alveg jafn traust og við höfum venjulega talið. Flestir töldu morgunblaðið og sjálfstæðisflokkinn vera eitt það traustasta í tilverunni ef frá er talið dauðann og skatta, en á síðustu misserum hefur annað komið í ljós.
Búinn að vera aðeins að leita að Sýrlendingum á couchsurfing.com sem væru til í að hýsa mann meðan á ferðinni stendur eða að hittast til að spjalla og sýna mér um. Einhverra hluta vegna virtist samt alltaf mjög stór hluti Sýrlendinganna sem eru skráðir á síðuna vera staðsettir einhverstaðar víðsvegar um heiminn en ekki í heimalandinu. Ég fékk svo svar við því:
Couchsurfing.com is banned in Syria, as are Youtube and Facebook. To access them here, just ask the guy in the internet cafe to let you use Facebook. The program they use will slow down your connection a bit, and display your CS login as somewhere in California or Saudi Arabia.
Sem sagt, proxy for the win
Þetta finnst mér vera sniðug leið sem BMI flugfélagið er að fara. Fá leyfi hjá nokkrum flickr meðlimum til að setja myndirnar þeirra sem background á síðuna sína. Gerir síðuna mun líflegri og skemmtilegri, en það má svo deila um hvort hún verði hægari fyrir vikið (ég hef allavega ekki upplifað það).
Auglýsing fyrir ljósmyndarann og skemmtilegri síða hjá BMI, allir græða.
April 6th,2009
Dagleg skrif | tags:
BMI |
1 Comment
14. mai: KEF-LHR-BEY (flug um morguninn frá Keflavík til London og verð svo kominn til Beirút í Líbanon um kvöldið)
3. jún: TLV-RIX-LGW LHR-KEF (flug frá Tel Aviv í Ísrael til London með millilendingu í Riga í Lettlandi. Rúmlegt stopp í London áður en ég kem aftur til Íslands)
Svo verður eitthvað skemmtilegt gert í 19 daga sem maður hefur til að skoða svæðið.
Kl 02:30 í nótt ákváðu ráðamenn í N-Kóeru að senda á loft langdræga flaug, Taepo-dong 2, og var ætlunin að senda hana í átt að Japan og að þeirra sögn svo á sporbaug um jörðina þar sem hún átti að láta uppreisnasöngva leiðtoganna Kim Il-sun og Kim Jong-il. Norður Kóreumenn gáfu það fljótlega upp að skotið hefði verið lukkað og að flaugin færi nú um jörðina á 104min fresti. Aftur á móti eru önnur ríki ekki jafn tilbúin að taka undir það og herforingi US í NA-Asíu segir að fyrsti hluti flaugarinnar hafi hrapað í Japanshaf, en restin í Kyrrahaf.
Það sem vekur upp spurningar við það er að ef hluti flaugarinnar hefur hrapað í Kyrrahaf, þýðir það væntanlega að flaugin hefur farið um lofthelgi Japana. Þeir voru búnir að segja að þeir myndu skjóta flaugina niður ef hún færi yfir lofthelgi þeirra, en það gerðu þeir ekki. Afhverju leyfa Japanar þessu að fara yfir lofthelgi sína? Þeir reyndar hafa kallað til öryggisráð UN, en þar hafa auðvitað Kína neitunarvald svo það verður væntanlega ekkert dramatískt samþykkt gegn Norður Kóreu. Bandaríkjamenn hafa einnig verið skeptískir á að blanda sér of mikið í þetta til að styggja ekki N-Kóreumenn frá samningaborðinu varðandi önnur mál, svo sem kjarnorkumál.
Japanir virðast hér sem sagt gefa nokkuð grænt ljós á að leyfa flaugar yfir sína lofthelgi, svo lengi sem ekkert dettur af henni á Japanskt yfirráðasvæði:
No attempt at interception was made since no debris fell onto its territory, a Defense Ministry spokeswoman said in Tokyo, speaking on condition of anonymity, citing department rules.
- via
Þannig að N-Kórea virðist vera að komast upp með að hafa skotið þessu á loft og ná að fá lof frá íbúum síns eigins lands sem trúa því að þessu hafi verið skotið á braut um jörðu. Ekki lélegt að geta bara sagt í ríkisblaðinu að allt hafi gengið vel og allir trúa því.
Fór á Nokia on ice tónleikana í gær. Missti reyndar af Bang Gang sem mig langaði að sjá, en sá Sudden Weather Change og Mammút. SWC voru góðir, en Mammút voru hreint út sagt frábær. Sveitin hefur verið ein af mínum uppáhalds íslensku í smá tíma núna og það varð enginn breyting á því eftir þessa tónleika. Frábær sveit sem kemur efninu vel til skila á tónleikum. Tónleikarnir voru á Sódóma Reykajvík (efri hæðin á gamla Gauknum) og ég er eiginlega bara dálítið hrifinn af þeim stað. Ég gerði þó þá breytingu á djammi niðrí bæ og var edrú í þetta skiptið. Það kom bara helvíti vel út og þægilegt að geta keyrt heim og ekkert vesen. Mun örugglega gera meira af þessu framvegis.
—
Meira um íslenskar hljómsveitir. Í kvöld var úrslitakvöld músíktilrauna. Ég hef lítið fylgst með þessu í ár og stillti óvart inná Rás2 í kvöld þegar það var verið að útvarpa frá viðburðinum. Heyrði lokin á Blanco (held ég) og svo allt prógramið hjá Bræðrum Svartúlfs. Eftir að hafa hlustað á það datt mér ekki annað í hug en að þessi sveit myndi standa uppi sem sigurvegarar, það hefði allavega þurft að vera helvíti góð tónlist. Ótrúlega töff rapprokk sem náði óskiptri athygli minni. Söng/rapp stíllinn hjá söngvaranum var mjög skemmtilegur og tónlistin per se var öflug á bakvið. Hljómaði einhvern vegin smá epísk. Sá svo núna þegar ég kom heim að sveitin stóð uppi sem sigurvegari. Þetta er klárlega hljómsveit sem maður þarf að veita athygli á næstunni.
Guðlaugur Þór hefur gaman af allskonar útreikningum. Á síðu sinni í dag reynir hann að verja Davíð Oddsson með reiknikúnstum og kemst að því að nýi bankastjórinn sé að standa sig hræðilega og að krónan sé í frjálsu falli hjá honum. Hann tekur dæmi um breytingu á gengisvísitölunni og erlendum skuldum og eignum þjóðarbúsins. Segir að skuldirnar hafi hækkað og gengisvísitalan hækkað einnig síðan nýi bankastjórinn tók við (á rúmlega einum mánuði). Það er reyndar alveg satt, en common, þetta finnst mér léleg finnska hjá ráðherranum. Með svipuðum rökum og hann notar væri auðvelt að sjá hversu mikið erlendar skuldir og gengisvísitalan hækkuð meðan Davíð var í sama stól. Nenni ekki að fletta upp skuldunum, en gengisvísitalan er töluvert auðveld.
Davíð byrjar sem bankastjóri (25 okt 04): GVT: 120,63
Davíð hættir (24 feb 09): 189,64
Hækkun: 57,2% eða 69,01 stig
Norsarinn Svein Harald Øygard (jamm, viðurkenni að hafa þurft að fletta upp eftirnafninu) byrjaði í sömu tölu og Davíð hættir í og síðan þá hefur GVT hækkað töluver:
24. feb 09: 189,64
31.03.09: 212,08
11,8% hækkun eða 32,44 stig
Þannig að samkvæmt aðferðafræði Guðlaugs ætti Davíð að vera mun verri en Svein. En þetta er auðvitað mjög gölluð aðferðafræði og að setja stuttan tímaramma við svona aðstæður eru bara útúrsnúningar.
Þess fyrir utan tekur Svein við mjög erfiðu búi með ónýtan gjaldmiðil þegar rýkja neiðarlög og Guðlaugur gefur honum 1 mánuð og 7 daga til að úrskurða um og gefa honum falleinkunn.
Í grein sinni segir Guðlaugur: “þá hefur krónan verið í frjálsu falli síðan að Davíð fór úr bankanum”. Til gaman má geta að krónan styrktist fyrsta hálfa mánuð seðlabankastjóra en hefur síðan veikst aftur.
Að lokum endar hann á þessum klassísku orðum “Spurningin er hvert sendum við reikninginn?”
Ég spyr á móti, Guðlaugur, hvert sendum við reikninginn fyrir því tjóni sem varð meðan síðasta ríkisstjórn (og seðlabankastjóri) var við stjórn? Er Háaleitisbraut 1 eitthvað verri addressa en hvað annað?
—
Þegar ég var að finna réttu dagsetningarnar fyrir hvarfi og upphafi starfsferils Davíðs í seðlabankanum notaði ég wikipediu.
Hann er einn sigursælasti og vinsælasti, en um leið umdeildasti, stjórnmálamaður Íslandssögunnar.
Ég væri nú alveg til í að sjá heimild fyrir þessu “vinsælasti”
Það getur verið gaman að fylgjast með pólitík og pólitískri orrahríð. Ég hef töluverðan áhuga á þessari marg umtöluðu pólitík og fylgist töluvert með fréttum af þessum vettvangi (þótt að hafi komið stund í vetur þar sem ég sagði stopp og nennti ekki meir), les pólitísk blogg og pæli í því hver tengist hverjum og hver hefur hvaða hagsmuna að gæta til að fá aðeins meiri dýpt í allt saman.
Um helgina hefði átt að vera gósentíð fyrir pólitíska perverta eins og mig, landsþing hjá bæði sjöllum og samfylkingu. En vegna náms og matarboðs hafði ég takmarkaðan tíma og fylgdist rétt svo með aðalræðum sjálfstæðismanna á netinu og smá fréttamiðlunum á netinu. Við tækifæri á ég svo eftir að renna yfir fleiri ræður og lesa samþykktirnar, en eins og er, þá birtist þessi helgi mér svona:
- Byrjar mjög rólega, cheese-ý ræður og klapp fyrir öllum (flestum) þótt ræðurnar séu hálf innihaldslausar.
- Dagur kosinn varaformaður samfylkingar. Launar VG fyrir ályktunina af þeirra landsfundi með að segja hreint út að samfylkingin ætli í evrópusambandið eftir kosningar, punktur! Og afþví að samfó og sjallar verða væntanlega ekki tilbúin að mynda nýja stjórn, þá er voða lítið eftir annað en framsókn fyrir samfylkinguna. Gott fyrsta move.
- Davíð kemur og heldur rosalega ræðu. Þvílíkur kraftur og maður kinkar kolli með öllu sem hann segir. Stoppar reyndar stundum pínu þegar hann stuðar mann sem mest, en dettur strax út úr þeim pælingum þegar hann heldur svona áfram af krafti. Svo klárast ræðan og fólk stendur upp og klappar og maður hugsar með sjálfum sér hvað þetta var magnað. En svo fara þessi stuð-atriði að poppa upp aftur og maður renndi í gegnum ræðuna aftur í huganum. Ha?
Vá, hvernig tókst honum þetta? Þvílík blekking, maður einhvernveginn trúði að hann væri að gera upp gamla tíma en hann hennti bara kúk yfir allt og alla, nema auðvitað sjálfan sig. Ekki honum að kenna eitt boffs að bankinn sem hann stjórnaði er kominn á kúpuna, betra að dissa norsarann. Og nei, ekki heldur honum að kenna þegar hann var forsætisráðherra að dreifð eignaraðild bankanna var ekki tryggð. Það er öllum hinum að kenna.
Það má kanski taka undir einn og einn punkt hjá honum, en ræðan sem slík óð bara úr einu í annað og enginn grunnur (nema hann sjálfur sem píslavottur). Svo nær hann að rakka niður eigin félaga og starf þeirra á mettíma án atrennu, setja einstaklega mikið af myndmáli í ræðuna sem fólk misskilur svo sem jesús-komplexa. Mjög góður endir hjá kallinum í pólitík…
- Vilhjálmur og fleiri verða crazy yfir þessum látum og ofsagangi í Davíð, skiljanlega, jafnvel þótt Vilhjálmur mætti alveg skammast sín.
- Fréttamiðlar setja inn mjög mismunandi fyrirsagnir af ræðunni:
Eyjan: Davíð á landsfundinum: Óttast var að Björgvin og Össur lækju út upplýsingum um stöðu bankanna
Mbl: Útrásarvíkingar með Samfylkingunni
Vísir: Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists
Hvaða miðill ætli standi með hverjum? Merkilegt líka að Eyjan hafi náð að vera tæplega 40 min á undan öðrum með þessa frétt (samt var þeirra frétt ekki stutt eða óýtarleg). Aðrir fréttamiðlar höfðu verið töluvert fljótir með aðrar fréttir.
- Geir kemur svo loks daginn eftir og gagnrýnir Davíð á mjög hógværan hátt. Allir sem klöppuðu fyrir Davíð daginn áður klappa nú fyrir Geir ??? Prik fyrir Geir, en voðalega var þetta samt aumt, virðist vera duglegur að gera upp hluti svona alveg á síðustu metrunum.
- Jóhanna kosin formaður og segir í ræðunni að sjallar eigi að vera áfram í stjórnarandstöðu (betri við VG en Dagur), en kemur svo líka inná ESB og evruna og bæjar þannig VG aftur frá sér. Aftur, framsókn og samfó ef allt gengur að óskum hjá þeim?
- Bjarni kosin formaður en Kristján kemur reyndar merkilega sterkur inn og annaðhvort augljóst að deigluhópurinn er áfram fáránlega öflugur í svona herkænsku og kosningaslögum, eða þá að fólk er ekki nægjanlega sátt með að Bjarni sé að koma inn.
- Þorgerður kosin varaformaður og heldur einhverja verstu ræðu sem ég heyrt. “berjast berjast berjast áfram ísland!!!” Jesús kristur, hræðilegt, fékk sama kjánahroll og þegar maður sá “játning til hildar myndbandið”.
- Bjarni fer í pontu og heldur voða litlausa ræðu þar sem ekkert nýtt kom fram í. Ræðan mun allavega gera lítið fyrir höfuðlausan her eins og ísland er í dag, land sem vantar einhverja von. Hann talar um endurnýjun og uppgjör flokksins við fortíðina sem enginn annar flokkur myndi gera. Held að mjög fáir séu að sjá þetta uppgjör nema flokksmenn sjálfir kanski. Allavega er ég ekki að skynja að flokkurinn og hans forystumenn séu að afsaka sig eða tilbúnir að taka á sig sök (ja, nema auðvitað Geir, daginn sem hann hættir!) Ég myndi allavega ekki kjósa Bjarna ef ég mætti bara dæma út frá þessari einu ræðu. Arfaslakt alveg hreint.
Svona eftir á að hyggja þá lítur þetta í stuttu máli þannig við mér að sjálfstæðismenn á þessum fundi sínum séu hjarðdýr sem klappa við öll möguleg tækifæri og haldi kjánalegar eða slakar ræður. Ef ræðan er ekki kjánaleg við fyrstu hlustun er aftur á móti mjög líklegt að innihaldið sé mjög kjánalegt þegar maður pælir nánar í hlutunum. Samfylkingin aftur á móti kemur töluvert betur út yfir höfuð, en byrjar samt á því að ýta nærtækasta samherjanum í burtu og heldur sig við það.
Fyrir mig sem útiloka nánast að kjósa frjálslynda og vg þá er lítið um góða kosti í komandi kosningum. Ég er ekki að sjá þennan voða kraft eins og landsfundarfulltrúar beggja flokkanna töluðu svo mikið um. Landsfundir þeirra staðfestu einnig áhugaleysi mitt á að kjósa þá. Ég er heldur ekki að fíla nýja pappakassann hjá framsókn og það virðist enginn vera með neinar lausnir eða geta unnið með öðrum flokkum að farsælli lendingu eftir kosningar. Merkilegt að á umbrotatímum eins og þessum sé auður seðill það besta sem maður sér í stöðunni!
—
Versta tímasetning helgarinnar er aftur á móti klárlega grein þessa gaurs. Mun örugglega alveg týnast og gleymast vegna pólitíkur helgarinnar.
Pólitísk kjánalegheit helgarinnar sem ekki tengjast samfó eða sjöllum er svo þessi frétt (reyndar spurning hversu stórvægilegt þetta er, en kjánaleg mistök samt sem áður)