Steini

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Er á 24 ári og stundaði nám við HHS deild Háskólans á Bifröst frá 2006-2009. Útskrifaðist vorið 2009 og skrifaði BA ritgerð með yfirskriftinni “Stöðugleiki í NA-Asíu: Framtíðahorfur varnarsamstarfs Bandaríkjanna, S-Kóreu og Japans”.
Hef áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, veiði, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum, þó það sé orðið langt síðan síðast.

Fæddur í Reykjavík, uppalinn í Kópavogi fram til 12 ára aldurs, eftir það í Garðabæ. Ættaður úr Skagafirði og frá Finnlandi og nýt þess einstaka heiðurs að vera bæði meðlimur og ekki meðlimur að ESB.
Styð Stjörnuna og Heimsliðið, en er skítsama um fótbolta. Hef mikla ástríðu fyrir ferðalögum og þá helst þeim sem eru frekar óskipulögð og maður stýrist áfram af því sem maður sér og vill þá stundina frekar en af fyrirfram ákveðnu plani. Reyni af því tilefni að notast við vefi eins og Couchsurfing.com þegar ég ferðast.

Hægt er að kíkja á mig á Facebook athuga hvaða tónlist ég er að fíla á Last.fm, spjalla við mig á msn eða verið formlegur og sent mér e-mail